Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Síða 4
aldrinum ef marka má hraðamælinguna sem nefnd var hér á undan. Lifir fyrir íþróttina En hvernig getur maðurinn verið svona góður, 42 ára gamall? Brady leggur allt í sölurnar til að vera eins góður og hann mögulega getur, eins lengi og hann getur. Hann fylgir einstaklega ströngu mataræði, borðar lítið sem ekk- ert af dýraafurðum eða unnum matvælum og drekkur mjög sjaldan áfengi. Þá er æfingaáætlun hans ólík flestra annarra í deildinni. Hann lyftir lóðum sáralítið heldur notast við alls kyns teygjur til styrktaræfinga og leggur mikla áherslu á sveigjanleika eða það sem hann kallar „pliability“. Hann hefur sinn eigin sjúkraþjálfara sem með- höndlar hann dag og nótt og sér um styrktaræfingarnar. Þá leggur Brady ómælda vinnu í íþróttina sjálfa. Hann horfir á myndbönd af leikjum liðs síns og andstæðinganna marga klukkutíma á dag og vinnur með sérstökum kastþjálfara sem fékk hann til að breyta kasttækni sinni fyrir nokkrum árum svo eitthvað sé nefnt. Í þáttunum Tom vs. Time sem birtir voru á Facebook í upphafi árs 2018 sést greinilega hversu einbeittan sigurvilja Brady hefur. Í þáttunum sýnir hann einnig mýkri hliðarnar og ef marka má þættina er hann mikill fjölskyldumaður, á tvö börn með ofurfyrirsætunni Gisele Bündchen og eitt úr fyrra sambandi. Orðspor Brady er þó ekki hreint en hann tók út fjögurra leikja bann árið 2016 fyrir meint svindl í úrslitakeppn- Í fullu fjöri á fimmtugsaldri Fáir íþróttamenn eru jafn óþolandi og TomBrady og það er í raun einungis vegnaþess að hann hættir ekki að ná árangri. Hann hefur unnið leikinn um Ofurskálina, úr- slitaleik NFL-deildarinnar í ruðningi, sex sinn- um, og verið valinn mikilvægasti leikmaður leiksins fjórum sinnum, bæði oftar en nokkur annar leikmaður. Þá hefur hann verið valinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar þrisvar, síðast fyrir tímabilið 2017-18 og varð þá elsti leikmaður sögunnar til að hljóta þá nafnbót. (Hægt væri að telja talsvert lengur met og af- rek Bradys.) En Brady, sem varð 42 ára á dögunum og er elsti leikmaður deildarinnar að spörkurum und- anskildum, ætlar ekki að láta sér þetta nægja. Hann hefur einsett sér að leika þar til hann nær 45 ára aldri og verða þar með elsti leikstjórn- andi í byrjunarliði í NFL-deildinni. Hann hefur raunar nú þegar endurskrifað söguna er varðar leikstjórnendur í deildinni, var 40 ára þegar hann var valinn sá mikilvægasti, og er að flest- um talinn sá elsti sem leikið hefur af jafnmikilli getu og raun ber vitni. Falla fram af bjarginu Oft er talað um að leikstjórnendur falli fram af bjargi þegar þeir nálgast eða ná fimm- tugsaldri. Þ.e.a.s. þeir eru meðal þeirra bestu en skyndilega, oft vegna meiðsla, tapa mestallri getu sinni og eru með þeim verstu í deildinni. Af þessari ástæðu rignir oft gagnrýni og dómsdagsspám yfir Brady þegar honum gengur ekki sem skyldi eða lið hans, New England Patriots, sýnir nokkur veikleikamerki. Síðustu tvö tímabil hafa gárungar vestanhafs velt fyrir sér hvort kappinn sé að verða búinn um leið og smá lægð hefur gert vart við sig hjá Brady. Í bæði skiptin hefur hann leitt lið sitt í leikinn um Ofurskálina og þaggað nið- ur í efasemdaröddunum. Sumarið 2016 lýsti Max Kellerman hjá ESPN – sem að vísu hefur lífs- viðurværi sitt af því að rífast við fé- laga sinn Stephen A. Smith – því yfir að Brady yrði orðinn að „ónytjungi“ í deildinni innan 18 mánaða. Sagði hann kraftinn í kasthendi Bradys fara þverrandi og aðeins tímaspursmál hvenær hann yrði lélegur leikstjórnandi. Brady lék sér að orðum Kellerman á instagram núna í sumar; birti mynd af hraðamæli sem mældi hraða eins kasta hans. Mælirinn sýndi yf- ir 100 kílómetra hraða sem telst ansi gott meðal leikstjórnanda í NFL-deildinni. Með myndinni fylgdi tilvitnun í Kellerman: „Hann mun falla fram af bjargi.“ Vissulega hefur hægst á Brady og hann virð- ist hræddari en áður við að lenda í klóm varnarmanna deild- arinnar og hætta á meiðsli. En hann hefur alltaf verið hægur og byggir leik sinn á útsjónarsemi sem á sér fáa líka í sögu deild- arinnar. Þá virðist kast- hönd hans ekki finna fyrir inni tímabilið 2014-15. Málið var kallað „Def- lategate“ og var Brady ásakaður um að hafa lát- ið hleypa lofti úr þeim boltum sem Patriots notuðust við í einum leiknum. Liðin sem keppa nota ekki sömu bolta og reglur NFL kveða á um að boltarnir skulu hafa ákveðinn loftþrýsting sem ekki má fara undir. Fékk Brady banninu upphaflega seinkað með því að áfrýja en þurfti á endanum að sætta sig við niðurstöðuna. Nýtur góðs af þeim besta Árangur Bradys talar sínu máli en hann má einnig þakka þjálfaranum Bill Belichick sem hefur verið við stjórnvölinn allt frá því Brady var valinn nr. 199 í nýliðavalinu árið 2000. Marg- ir telja Belichick vera besta þjálfara sögunnar og gefa honum, ásamt eigandanum Robert kraft og aðstoðarmönnum eins og Josh McDaniels, meiri heiður að titlunum sex sem þeir hafa unn- ið saman heldur en Brady. Erfitt er að dæma um það en ruðningur er mikil liðsíþrótt og magnaður leikstjórnandi ger- ir lítið í lélegu liði, þótt mikilvægur sé. Belichick virðist ávallt hafa betur gegn þeim þjálfurum sem hann mætir hvað varðar undirbúning fyrir leiki og er einstaklega lunkinn við að loka á styrkleika andstæðingsins með leikskipulagi sínu. Það sást líklega hvað best í leiknum um Ofurskálina þegar Patriots-vörnin hélt Los Angeles Rams, sem skorað hafði næstflest stig á tímabilinu, tæplega 31 í leik, í þremur stigum allan leikinn. Hvað sem því líður verður áhugvert að fylgj- ast með Brady í vetur. Hann gengur nú ótroðna slóð þar sem enginn hefur verið einn bestu leik- stjórnenda deildarinnar á viðlíka aldri. Margir telja hann þann besta til að kasta ruðningsbolt- anum og aldrei er að vita hvort hann þaggi niður í öllum efasemdaröddunum og spili til 45 ára aldurs. Sigursælasti ruðningsleikmaður sögunnar, leikstjórnandinn Tom Brady, varð 42 ára á dögunum. Hann hefur sagt tímanum stríð á hendur og hyggst setja met og spila til 45 ára aldurs. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is AFP Tom Brady fagnar félögum sínum í æfinga- leik á dög- unum, orðinn 42 ára karlinn. HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.8. 2019 SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. Tom Brady fagnar Ofurskálartitlinum árið 2017 eftir sigur á Atlanta Falcons þar sem hann var val- inn mikilvægasti leikmaður leiksins. Bill Belichick, maðurinn á bak við árangurinn, fylgist með. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.