Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Page 17
15
Vergur hagnaður helztu siávarútvegsgreina.
Milljónir króna.
1969 Áætlun 1970 Áætlun 1971
Bátaflotinn 277 430 520
Togaraflotinn 35 52 + 8
Frysting 434 417 504
Saltfisk- og skreiðarverkun 131 174 184
Fiskmjölsverksmiðjur 125 144 48
1.002 1.217 1.264
Greiðslur í Verðjöfnunar- sjóð fiskiðnaðarins 390 685
1.002 1.607 1.949
Landbúnaður.
Árið 1971 reyndist landbúnaðarframleiðslunni hagstætt.
Arin 1966 til 1970 voru landbúnaðinum erfið ár. Heyfengur minnkaði
að magni og gæðum, mikill innflutningur fóðurbætis var óhjákvæmi-
legur og endurgræðsla kalinna túna bændum dýr. Framleiðsla sauð-
fjárafurða er talin hafa minnkað um 14% og framleiðsla mjólkur-
afurða um 9% að meðtöldum bústofnsbreytingum. Þá var bústofn
skertur um u.þ.b. 10% á þessu tímabili. Þrátt fyrir þessa skerðingu
bústofns varð framleiðslan á árinu 1971 heldur meiri en árið 1965,
en það ár hafði landbúnaðarframleiðslan áður náð hámarki. Árið
1971 jókst meðalfallþungi dilka mjög verulega, framleiðsla sauð-
fjárafurða jókst um tæp 10% frá árinu áður og framleiðsla naut-
gripaafurða (mest mjólkurafurða) jókst um 8% miðað við árið á
undan. Kartöfluuppskera varð og með eindæmum mikil á árinu 1971
eða um 14 þús. tonn og hefur aldrei orðið meiri. 1 heild má telja,
að landbúnaðarframleiðslan árið 1971 hafi orðið 9-10% meiri en
árið áður.
Á því tímabili sem hér hefur verið getið, 1965-1971, verður
greinilega vart nokkurrar tilhneigingar til breytinga á búskapar-
háttum. Þannig hefur þáttur yl- og gróðurhúsaræktar aukizt að
mun hlutfallslega og hið sama má segja um þátt alifugla- og svína-
eldis. Þetta er og helzta ástæðan til þess, að þrátt fyrir þá
skerðingu bústofns sem fyrr getur, varð heildarframleiðslan meiri
árið 1971 en árið 1965.