Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Blaðsíða 20
18
Áætlaðar magnbreytingar þjóðarframleiðslunnar
1970 og 1971 eftir atvinnugre inum.
1970 1971
% %
Landbúnaður 0.2 9.2
Sjávarútvegur 5.7 -4.8
Iðnaður 22.0 13.0
Byggingarstarfsemi 2.0 17.0
Opinber þjónusta 4.5 6.4
önnur þjónusta og viðskipti 4.Q 13.7
Ibúðanot 2.1 3.5
A L L S 6.3 9.5
F j ármunamyndun.
Mjög mikill samdráttur varð £ fjármunamyndun á árunum
1968 og 1969. Á árinu 1967 jókst fjármunamyndunin, þrátt
fyrir þá minnkun eftirspurnar, er varð á því ári. Þó ber að hafa
í huga, að árið 1967 var upphafsár framkvæmdanna við Búrfell og í
Straumsvík, sem var helzta orsök aukningar fjármunamyndunarinnar.
Árið 1968 minnkaði fjármunamyndunin um 7.3% mælt á verðlagi ársins
1971;.séu stórframkvæmdirnar undanskildar varð minnkunin miklum
mun meiri. Árið 1969 varð svo mjög mikill samdráttur £ fjármuna-
myndun eða um 22.3%, hér gætti bæði áhrifa hagsveiflunnar og
talsverðs samdráttar framkvæmda við Búrfell og í Straumsvík.
Eftir lægð ársins 1967 jókst fjármunamyndunin talsvert árið 1970.
Aö vísu nam heildarvöxturinn aðeins um 5.7%, en á móti hemlaði
51.6% samdráttur stórframkvæmdanna við Búrfell og í Straumsvík.
Hins vegar jókst fjárfesting atvinnuveganna um 22.3% og uitl'71.0%
af Álverksmiðjan er undanskilin. Innflutningur skipa og flugvóla
varð talsverður, en hafði verið nær þv£ enginn 1969. Þróun
fjármunamyndunarinnar £ fbúðarbyggingum gegnum hagsveifluna var
með l£kum hætti og oft áður. Eftir mikinn samdrátt 1969 varð
aukningin sáral£til árið eftir, og það var ekki fyrr en 1971, að
skriður komst á fbúðabyggingar, en aukning fjármunamyndunar £
fbúðarbyggingum nam 13.4% 1971. Vöxtur fjármunamyndunarinnar £