Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Qupperneq 23
21
Verðmæti útflutnings jókst einnig talsvert á árinu 1970 eða
um 25.3% að undanskildum útflutningi áls. Að álinu meðtöldu varð
útflutningsaukningin um 36.5% aö verðmæti. Þessi aukning
útflutningsins varð vegna hagstæðrar þráunar bæði magns og verðs.
í heild er taliðjað verðmæti innflutnings vöru og þjónustu
hafi numið 20.487 m.kr. og útflutnings 21.138 m.kr. og varð
viðskiptajöfnuðurinn 1970 þannig hagstæður um 651 m.kr.. Þrátt
fyrir nokkurt útstreymi fjármagns til greiðslu á erlendum skuldum
varð fjármagnsjöfnuðurinn jákvæður og nam heildarbati gjaldeyris-
stöðunnar 1.200 m.kr..
Innflutnipgur jókst mjög mikið árið 1971. Er talið, að
aukning almenns vöruinnflutnings hafi numið allt að 30% að verð-
mæti á árinu. Heildaraukning innflutningsins varð þó enn meiri
eða um 40%. Munar þar mestu um hinn mikla innflutning flugvéla og
skipa, sem nam um 2.250 m.kr. á móti 856 m.kr. 1970 og 52 m.kr.
1969 .
Ötflutningur jókst hins vegar miklu minna. Verðmæti
vöruútflutnings jókst þannig aðeins um 2.3%. Þessu olli að nokkru
farmannaverkfalliö £ desember, sem tafði útflutning nokkuð, en að
mestu rlði mikil uppsöfnun álbirgða. Að álinu undanskildu var
útflutningsaukningin um 10%. Fjölbreytni útflutnings hefur aukizt
nokkuð á undanförnum árum. Árið 1967 námu sjávarafurðir tæpum
90% af heildarútflutningi, en 78% árið 1970 og 84% 1971. Öt-
flutningur áls féll úr 13% af heildarútflutningi 1970 í tæp 7%
1971. Aðrar iðnaðarvörur juku hlutdeild sína í heildinni úr 2%
1967 £ 5% 1971. Kísilgúr er hér meðtalinn, en útflutningur
kísilgúrs nam um 1% bæði árin 1970 og 1971. Hvað útflutningi sjávar-
afurða viðvíkur hefur hlutdeild síldarafurða minnkað afarmikið
og var aðeins um 6% af heildarútflutningi 1971, en var mest 44%
1966. Hlutdeild þorskafurða, einkum freðfisks, hefur hins vegar
aukizt -verulega og var útflutningur freðfisks um 40% heildar-
útflutnings 1971.
I heild mun útflutningur vöru og þjónustu hafa oröið u.þ.b.
22.290 m.kr. 1971, en innflutningur u.þ.b. 26.275 m.kr.. Viðskipta-
jöfnuóurinn varð þv£ óhagstæður um 3.985 m.kr. og var það mikil
breyting frá árinu áður. Þegar þessi háa tala er skoðuð þarf þó
að hafa £ huga hinn óvenju mikla innflutning flugvéla og skipa
eins og fyrr var getið.