Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Qupperneq 25
23
Vinnumarkaður, kauplag, tekjur, verftlag;.
Atvinnuástand batnaði allverulega á árinu 1970 miðað við
árið 1969. Arstíðabundið atvinnuleysi var nokkuð í byrjun árs,
en almennt atvinnuleysi minnkaði er á árið leið. Atvinnuástand
var gott á árinu 1971 og er áætlað, að atvinpumagn, mælt í mann-
árum; hafi aukizt um nær 3% frá fyrra ári. Almennt atvinnuleysi
var nær ekkert og vinnuaflsskorts tók að gæta. Meðalhlutfall
skráðs atvinnuleysis af mannafla var um 2.5% 1969, 1.3% 1970, en
lækkaði í 0.7% 1971. Þess er ekki að vænta, að þetta hlutfall
geti orðið miklu lægra £ bráð. Hér er ekki um almennt fyrirbæri
að ræða, heldur stað- og tímabundið vandamál og að nokkru félags-
legt vandamál.
Kauplags- og verðlagsþróun á árunum 1970 og 1971 réðist
mest af kjarasamningunum, sem gerðir voru £ jún£ 1970 (A.S.Í.)
og £ desember 1970 (B.S.R.B.), svo og af verðstöðvunarlögunum £
nóvember 1970.
Með jún£samningunum 1970 voru ákvæði um fullar hlutfalls-
legar verðlagsuppbætur tekin inn £ alla kjarasamninga. Þegar £
september það ár var svo greidd 4.2% vfsitöluuppbót á allt kaup
ofan á þá hækkun, sém samið var um £ jún£/júl£. Séu áætlaðar
breytingar kauptaxta dregnar saman £ eina tölu fyrir árið 1971
fæst meðalbreyting nálægt 18.5%, en meðaltekjur hækkuðu mun meira
en þetta, eða sennilega nálægt 23%. Munurinn á þessum tölum er
að nokkru fólginn £ þv£,að ýmsar stéttir, sem ekki þiggja taxtalaun,
t.d. sjómenn, hafa notið tekjuhækkunar umfram taxtahækkun, en að
auki hefur vinnut£mi án efa lengzt nokkuð á árinu.
Fyrirsjáanlegt var, að miklar verðhækkanir fylgdu £ kjöl-
far jún£samninganna, auk þess sem erlendra verðhækkana gætti £
vaxandi mæli. Var þv£ gripið til verðstöðvunaraðgerða £ nóvember
1970, og réðist verðlagsþróunin á árinu 1971 af þeim aðgerðum. í
sambandi við undirbúning verðstöðvunar voru verðhækkanir vegna
visitöluuppbótar launa um 4.2% £ september, ekki leyfðar. Niður-
greiðslur landbúnaðarafurða voru hækkaðar (£ nóv. og des.), og
nam lækkunin á smásöluverði landbunaðarafurða um 28% að meðaltali.
Fjölskyldubætur voru hækkaðar um 60%.' 1 ágúst 1971 var sölu-
skattur af ýmsum vörum og þjónustu felldur niður. Þessar að-
gerðir jöfnuðu hækkanirnar, sem fram höfðu komið vegna kauphækkana
og erlendra verðhækkana. Með þessum hætti og með þv£, að haldið