Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Page 27
25
vegar varð nokkur samdráttur peningamagns síðari hluta ársins og
varð aukningin að meðaltali um 33.5%. Meginorsök þessarar þenslu
árið 1970 fólst £ miklu innstreymi erlends gjaldmiðils vegna
hagstæðs greiðslujafnaðar fyrstu þrjá ársfjórðungana og stórauknum
útlánum bankakerfisins.
Heildarútlán bankakerfisins £ árslok 1970 höfðu aukizt
um 2.822 m.kr. eða 18.8% frá árinu áður miðað við 10.6% aukningu
árið 1969. Nettógjaldeyriseign bankanna jókst um 1.390 m.kr. að
meðtöldum 130 m.kr. nettóinnstreymi erlends fjármagns til endur-
lána, og jókst peningaiitstreymi frá bankakerfinu £ heild þannig
um tæpar 4.100 m.kr. árið 1970. Sparifjáraukning varð mun meiri
en árið áður og nam um 2.576 m.kr. eða 23.9%, sem hafði gagnverkandi
áhrif á peningaþensluna.
Lausafjárstaða innlánsstofnana fór mjög batnandi fyrri hluta
ársins 1970. Stafaði batinn af hinni hagstæðu þróun útflutnings-
atvinnuveganna og miklu innstreymi erlends gjaldmiðils, en einnig
gætti áhrifa útstreymis fjármagns frá Seðlabankanum vegna þarfa
sjávarútvegsins og r£kissjóðs. Þetta hafði £ för með sár mikla
aukningu innlána hjá innlánsstofnunum, sem aftur auðveldaði inn-
lánastofnunum að mæta stóraukinni eftirspurn eftir lánsfá. Á
s£ðustu sjö mánuðum ársins varð mikil breyting á þessu. Ráðstöf-
unarfá innlánsstofnana óx miklum mun hægar en áður, og gætti þar
mest áhrifa neikvæðrar þróunar greiðslujafnaðar á sfðari hluta
ársins svo og mikillar árstfðabundinnar sveiflu gjalda og tekna
rfkisins, en að jafnaði fara tekjur rfkisins langt fram úr gjöldum
á sfðari hluta árs - og öfugt fyrri hluta ársins, einkum vegna
mikils innstreymis skatttekna sfðari hluta ársins. Hins vegar
varð ekki mikið lát á útlánaaukningu bankakerfisins; heldur dró
þó úr vaxtarhraða útlána viðskiptabankanna, en útlán annarra
innlánsstofnana jukust jafnt og þátt. Versnandi lausafjárstaða
viðskiptabankanna hlýtur að hafa hamlað á móti vexti útlána, og
lfklega hefur samkomulag Seðlabankans og viðskiptabankanna haft
áhrif £ sömu átt. Samkomulag þetta, sem var gert eftir viðræður
aðilanna f jún£, fól £ sér, að viðskiptabankarnir stefndu að þv£
að auka ekki útlán um meira en 14% fyrir árið £ heild. Engu .að
sfður jukust útlán viðskiptabankanna um 19.2% á árinu,
þótt heldur drægi úr vaxtarhraðanum á sfðari hluta ársins eins
og fyrr sagði.