Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Síða 34
32
frá fyrra ári, en aukningin stafar m.a. af innflutningi togara
svo og mikilli innlendri skipasmíði og endurbátum eldri skipa.
Mikil verkefni eru framundan hjá frystihúsunum vegna aukinna
krafa um hreinlæti og hollustuhætti. Er búizt við um 25%
aukningu fjármunamyndunar £ fiskiðnaði. Á þessu ári mun lokið
framkvæmdum við þriðja áfanga álverksmiðjunnar, en afkastageta
verksmiðjunnar verður þá allt að 77 þús. tonnum á ári.
Framkvæmdaupphæðin á þessu ári vegna stækkunabinnar er áætluð um
1.200 m.kr., sem er um 50% aukning frá árinu áður. í öðrum
iðnaði er gert ráð fyrir nokkurri aukningu fjármunamyndunar eða
e.t.v. um 8%. Þá er áætlað, að innflutningur flutningatækja
muni minnka verulega og aðeins nema um 750 m.kr., sem er einungis
u.þ.b. fjórðungur magnsins árið 1971. Fyrirsjáanlegt er, að
allmikil aukning verður £ £búðabyggingum á árinu og er gert
ráð fyrir að aukningin verði a.m.k. 15%.
Talsverð aukning (21.3%) varð £ fjármunamyndun £ byggingum
og mannvirkjum hins opinbera á s.l. ári. Á þessu ári er gert
ráð fyrir um 11% aukningu opinberra framkvæmda. Þó munu fram-
kvæmdir við rafvirkjanir og veitur minnka um 13%, og stafar
samdrátturinn af minni framkvæmdum Landsvirkjunar, en spáð er
aukningu f öðrum raforkuframkvæmdum. Aukning hita- og vatns-
veituframkvæmda er áætluð um 57% á árinu. Búizt er við, að
samgöngumannvirkjagerð muni aukast um 17% frá fyrra ári, og
eru framkvæmdir við flugbrautargerð á Keflavíkurflugvelli þá ekki
taldar með. Þá er gert ráð fyrir aukningu framkvæmda við
opinberar byggingar sem nemi rúmum 17% frá fyrra ári.
Sé innflutningur ýmissa vála og tækja talinn frá ásamt
innflutningi flugvóla og skipa má gera ráð fyrir aukningu
framkvæmda innanlands, er nemi 12%. Vafalaust verður mjög erfitt
að anna svo mikilli aukningu £ byggingastarfsemi, einkum með
tilliti til hinnar miklu aukningar, sem varð á s.l. ári (17%), nema
byggingariðnaðurinn dragi til sfn fólk frá öðrum greinum £
verulegum mæli. Slfkri þenslu fylgir hins vegar jafnan til-
hneiging til launaskriðs og kostnaðarhækkana.