Þjóðarbúskapurinn

Issue

Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Page 42

Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Page 42
40 vegna aukningar tekna og kaupmáttar, eða um riim 2 7%. Hins vegar hefur innflutningur rekstrarvara minnkað um rúm 6% það sem af er árinu, og er það meginskýringin á hinni tiltölulega hægu innflutningsaukningu. Lítil vitneskja er fyrir hendi um birgðir rekstrarvara, en telja má öruggt, að £ lok s.l. árs hafi til- tölulega mikil birgðauppsöfnun rekstrarvara 4tt sár stað vegna verkfalla, sem þá vofðu yfir. Því má gera ráð fyrir, að þessi hluti innflutningsins aukist er lengra líður á árið. Veruleg aukning (21% að verðmæti) hefur orðið á innf1‘utnirgi almennra fjárfestingarvara fyrstu fimm mánuði ársins, en gera má ráð fyrir miklu meiri aukningu það,sem eftir er af árinu, þegar framkvæmdir eru almennt komnar í gang. Sýnt ef, að ýmsum framkvæmdum hefur verið hrundið fremur seint af stað á þessu ári, og hlýtur þetta að hafa haldið aftur af innflutningi fjárfestingarvara fyrri hluta ársins, auk þess sem gengið kann að hafa verið á birgðir slíkra vara það, sem af er árinu- Aukning innflutnings fyrstu fimm mánuði ársins hefur þannig orðið hægari, en spáin gerði ráð fyrir. Er þá tvennt til, annars vegar5að spáin sé fullhá, og hins vegar, að á síðari hluta ársins verði aukningin enn drýgri en búizt var við. Vegna hinna fyrrnefndu áhrifa hugsanlegra birgðá- breytinga rekstrar- og fjárfestingarvara og tímasetningar ýmis konar framkvæmda virðist mun líklegra, að innflutningurinn síðari hluta ársins verði það mikill, að aukningin, sem spáð var fyrir árið £ heild. komi að mestu fram. Sem aðrar mögulegar skýringar á tiltölulega hægum innflutningi fyrstu fimm mánuði ársins, má nefna, að e.t.v. beinist eftirspurnin að öðrum gæðum um sinn, t.d. ferðalögum til útlanda og einnig inn á húsnæðismarkaðinn. Að auki má vera, að sala spariskírteina og happdrættisskulda- bréfa hafi um sinn dregið eitthvað úr eftirspurn, auk þess sem örar verðhækkanir - ébættar milli verðbótadagsetninga - kunna að hafa slegið á kaupmátt um stundarsakir og ennfremur hefur tollhlutfallið hækkað sjálfkrafa að mun. Þá má vera, að hertar reglur um heimildir til þess að taka vörukaupalán erlendis til skamms t£ma haff haft nokkur áhrif til þess að hægja á innflutningi. Til þess að spáin rætist fyrir árið £ heild, verður heildaraukning almenns vöruinnflutnings á tfmabilinu jún£-desember að vera á bilinu 35-40%. Þótt þessi tala sé allhá, er hún alls ekki óhugsandi, enda er nú gert ráð fyrir mun meiri

x

Þjóðarbúskapurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.