Neyslukönnun - 01.10.1997, Side 39

Neyslukönnun - 01.10.1997, Side 39
Neyslukönnun 1995 37 Leiðrétting vegna brottfalls við útreikning meðaltala hefur vegið á móti þessu þar sem vægi stórra heimila var minnkað og vægi lítilla heimila aukið. 9.2 Ástæða brottfalls Þeir sem neituðu eða luku ekki þátttöku í könnuninni voru beðnir um að gefa upp helstu ástæðu fyrir ákvörðun sinni. Helsta ástæða þess að heimili luku ekki þátttöku var sú að þau sendu ekki gögnin til baka þrátt fyrir að þau sögðust hafa haldið búreikning eða sögðu að of mikil vinna fælist í þátttöku. Helstu ástæður neitana voru sagðar áhugaleysi og tímaskortur. Á þessu má sjá að sú mikla vinna sem fólst í þátttöku í könnuninni og takmarkaður áhugi á viðfangsefni hennar áttu mestan þátt í brottfallinu. Luku ekki þátttöku. Algengasta ástæða þess að heimili luku ekki við könnunina var að þau sendu ekki gögnin til baka eftir að búreikningstímabili lauk þrátt fyrir ítrekanir. Hér var um að ræða 38% þeirra sem ekki luku könnuninni. Annar hópur, 36% þeirra sem ekki luku við könnunina, gafst upp á meðan á búreikningshaldi stóð. Ætla má að einhver skörun sé milli þessara hópa því líklegt má telja að eitthvað hafi farið úrskeiðis í búreikningshaldinu fyrst gögnin voru ekki send til baka. Ef ástæða þess að heimilin luku ekki þátttöku er skoðuð með tilliti til búsetu sést að á höfuðborgarsvæðinu báru menn helst við of mikilli vinnu en úti á landi sendi fólk ekki gögnin til Hagstofunnar. Skýringin á þessu gæti verið sú að á höfuðborgarsvæðinu kom spyrill heim til þátttakenda til að ná í gögnin. I 19. yfirliti sjást ástæður þess að heimili luku ekki þátttöku skipt eftir búsetu, heimilisgerð og fjölda heimilismanna. Neituðu þátttöku. Algengasta ástæða neitunar var sú að viðkomandi heimili hafði ekki áhuga á eða nennti ekki að taka þátt í könnuninni, 65,7%. Næst algengasta ástæða neitunar var tímaskortur, 16,9%. Þetta eru 82,6% allra neitana. Skýringin á þessu er væntanlega sú mikla vinna sem felst í þátttöku í neyslukönnun. Hugsanlega mætti lækka þetta hlutfall rneð því að minnka svarbyrði í könnuninni eða umbuna þátttakendum á annan hátt og reyna þannig að auka áhuga fólks á henni. Fólk í dreifbýli bar síður við áhugaleysi en fólk í þéttbýli. Þá báru hjón með böm oftar við ónógum tíma en fólk á annars konar heimilum. Einstæðir foreldrar virtust einnig hafa minni áhuga á könnuninni en aðrir. Tfmaleysi var algengari ástæða neitana hjá stómm heimilum en litlum. Tímaleysi virtist skipta meira máli hjá þeim sem hafa langa menntun að baki en áhugaleysi á viðfangsefni könnunarinnar hjá þeim sem einungis höfðu lokið gmnn- menntun. f 20. yfirliti sjást ástæður neitunar eftir búsetu, heimilisgerð, fjölda heimilismanna, menntun og starfi aðal- fyrirvinnu. income ones. Part of the explanation is the relatively low level of non-response among large households where there are more wage-earners. An adjustment to compensate for non-response in calculation of averages has been used to offset this factor, reducing the weighting of large households and increasing that of smaller ones. 9.2 Reasons for non-response Those who refused to take part in the survey or did not complete it were asked to state their main reason for that decision. The main reason for non-completion was that households failed to submit data, even though they said they had kept household diaries, or claimed that too much effort was involved in taking part. Refusals were mainly explained by lack of interest and lack of time. The large effort involved in taking part in the survey, and limited interest in its subject, were thus the main factors contributing to non-response. Did not complete. The most common reason for non- completion was failure to submit data at the end of the diary recording period, in spite of reminders. This group was responsible for 38% of those who did not complete the survey. Another group, responsible for 36%, gave up during the diary recording period. Some overlapping may be as- sumed between these groups, since it seems likely that problems were encountered in keeping the diaries which were not retumed. Examined in terms of residence, the main reason for non-completion in the capital area was that people claimed it to be too much effort, but in other communities it was the failure to return data to Statistics Iceland. Summary 19 shows the reasons for non-completion, according to residence, type of household and size. Refused to take part. The most common reason for refus- ing to take part was that the household in question was not interested in doing so, at 65.7%. Next came lack of time, at 16.9%. Between them these two groups account for 83.6% of all refusals. The explanation is presumably the large effort involved in taking part in a household budget survey. Conceiv- ably this proportion may be lowered by reducing the response burden or by rewarding participants in some other way to try to generate interest. Relatively fewer people in other communities than in towns claimed lack of interest. Couples with children cited lack of time more often than people in other types of households. Single parents also appeared to have less interest in the survey than other groups. Lack of time was a more common reason for refusal among large households than small ones, and also appears to be a more important factor among those with a longer educational background, while lack of interest was more common among those having only manda- tory education. Summary 20 shows the reasons for refusal, according to residence, type of household, size of household, and education and occupation of head of household.

x

Neyslukönnun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neyslukönnun
https://timarit.is/publication/1396

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.