Fréttablaðið - 11.10.2019, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 3 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
Kauptu fjórar
pizzur og fáðu
fimmtu fría
Frír
frystipoki
fylgir með
AF PIZZUM
5
4FYR
IR
HÚSNÆÐISMÁL „Við erum að reyna
að leysa stærsta vandann sem er
fjármögnun Blæs. Við erum nú
að teikna upp möguleikana sem
við sjáum fyrir okkur varðandi
fjármögnun til lengri tíma,“ segir
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, um húsnæðisfélagið Blæ sem
nú er reynt að koma í gang.
ASÍ og BSRB stofnuðu Blæ til
hliðar við húsnæðisfélagið Bjarg
sem er óhagnaðardrifið félag sem
ætlað er að tryggja tekjulágum fjöl
skyldum aðgengi að öruggu hús
næði í langtímaleigu. Blær átti að
vera almennara félag sem væri ekki
bundið sömu kvöðum og Bjarg um
hvað mætti byggja og fyrir hvern.
Ragnar Þór segir ljóst að Blær
verði að geta komið mjög sterkt inn
á markaðinn til að leysa úr þeim
mikla vanda sem sé á húsnæðis
markaði. „Svona verkefni þarf að
hlaupa á tugum milljarða. Við
leitum auðvitað til þeirra aðila sem
hafa þolinmótt fjármagn, eins og
lífeyrissjóðir og Íbúðalánasjóður.“
Nú sé verið að kynna verkefnið
fyrir ríkisstjórninni og lífeyrissjóð
um. „Auðvitað er ekkert í hendi og
við vitum ekki hvernig þetta mun
ganga en ég vona svo sannarlega að
þetta taki ekki of langan tíma.“
Dagskipunin hjá sér og þeim sem
staðið hafi að lífskjarasamningnum
sé að fylgja því risastóra verkefni
eftir og þar leggur Ragnar Þór mikla
áherslu á húsnæðismálin. „Þetta er
ákall til lífeyrissjóða, stjórnvalda,
Íbúðalánasjóðs og allra þeirra sem
vettlingi geta valdið í þessu að koma
að þessu með jákvæðum hætti. Ekki
fara að spá í því hver á hugmyndina
eða hver er í hvaða liði.“
Ragnar Þór bendir á að hjá Íbúða
lánasjóði liggi á þriðja hundrað
milljarða óráðstafaðir og að eignir
lífeyrissjóðanna séu um 4.700 millj
arðar. „Þótt svona verkefni sé dýrt
eigi að gera þetta af myndarskap,
eru þetta smáaurar í stóra sam
henginu. Það væri lítill hluti fjár
festingargetu sjóðanna sem færi í
slíka uppbyggingu á ári, kannski
sjö til átta milljarðar.“
Ragnar Þór segir að Blær muni
geta farið í átak fyrir þá hópa sem
séu í mesta vandanum hverju sinni
eins og eldra fólk er nú. „Það þarf að
vera gríðarleg innspýting fyrir eldra
fólk því staða þess á húsnæðismark
aði í dag er grafalvarleg. “ – sar
Skoða milljarðatuga fjármögnun Blæs
Fjármögnun húsnæðisfélagsins Blæs, sem er í eigu ASÍ og BSRB, er nú á teikniborðinu. Formaður VR segir verkefnið hlaupa á tugum
milljarða og sér fyrir sér að félagið geti farið í átak í húsnæðismálum eldra fólks. Leitað sé til aðila sem hafi þolinmótt fjármagn.
Svona verkefni þarf
að hlaupa á tugum
milljarða.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
Landhernaður Tyrkja er hafinn í Kúrdahéröðum Sýrlands og mannfall eykst með hverjum klukkutímanum. Sýrlenski stjórnarherinn er kominn á svæðið austan við ána Euphrates í
Norður-Sýrlandi til að taka þátt í hernaði Tyrkja gegn stuðningssveitum Kúrda. Sprengjum var beint að fangelsum sem vista hryðjuverkamenn ISIS í gær. Sjá síðu 10 NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í fótbolta mætir heimsmeisturum
Frakka á Laugardalsvelli klukkan
18.45 í kvöld í undankeppni EM
2020. Erik Hamrén og Freyr Alex
andersson þurfa að finna staðgengil
fyrir fyrirliðann Aron Einar Gunn
arsson sem er fjarri góðu gamni
vegna meiðsla.
Didier Deschamps,
þjálfari Frakka, bar fyrir
liðabandið síðast þegar
þeir spiluðu á Íslandi
en það var í 11 jafnt
ef lisleik 1998 en þá
voru Frakkar einn
ig ríkjandi heims
meist a r a r. „ Ég
held að fæstir
leikmennirnir
muni eftir því
síðast þegar Frakkar
heimsóttu Ísland, f lestir þeirra
voru bara börn þó að ég muni vel
eftir leiknum,“ sagði Deschamps á
blaðamannafundi í gær.
Rafael Varane, fyrirliði Frakka,
segist ekki vanmeta íslenska liðið.
„Íslendingar hafa verið erfiðir
viðureignar á heimavelli og við
megum búast við erfiðum
leik,“ sagði Varane.
Fyrir leikinn eru Frakk
ar og Tyrkir efstir í
riðlinum með 15
stig en Ísland
kemur næst með
12. Tyrkir mæta
Albönum í kvöld
en Albanir hafa 9
stig eftir sigurinn
á Íslandi í síðasta
mánuði. – kpt, ho /
sjá síðu 16
Heimsmeistararnir mæta
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
0
-2
B
F
0
2
4
0
0
-2
A
B
4
2
4
0
0
-2
9
7
8
2
4
0
0
-2
8
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K