Fréttablaðið - 11.10.2019, Síða 4
Við teljum mikil-
vægt að við getum
rætt saman um þær sam-
eiginlegu áskoranir sem er
að finna á
norðurslóð-
um
Ásthildur Sturlu-
dóttir, bæjarstjóri
Ný ljóð eftir
Fríðu Ísberg sem
vakti mikla athygli
fyrir fyrri verk sín,
Kláða og Slitförin
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Lau. 11-16 | www.forlagid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Það eru erfiðir
tímar sem við erum að ganga í gegn
um, nú er mikilvægt að við stöndum
saman. Frumskylda starfsmanna
samkvæmt lögum er að sinna sjúkl
ingum þó okkur greini á í mörgum
atriðum,“ segir Sveinn Guðmunds
son, stjórnarformaður SÍBS.
Starfsmenn Reykjalundar, sem er
í eigu SÍBS, lögðu niður störf í gær
morgun og voru sjúklingar í dag
deildarþjónustu sendir heim. Að
loknum starfsmannafundi í hádeg
inu lögðu starfsmenn, 114 af rúm
lega 200, fram vantraust á stjórn
SÍBS. Magda lena Ás geirs dóttir, for
maður lækna ráðs á Reykja lundi,
segir þá vilja losna undan stjórn
SÍBS. „Þetta er ó fremdar á stand
hérna og bara stjórnunar krísa sem
rak okkur í þessar að gerðir,“ segir
Magda lena. „Okkur var svo stór
kost lega mis boðið og allir hrein
lega í sorg.“
Birgi Gunnarssyni forstjóra var
sagt upp fyrirvaralaust um mán
aðamótin, algjör trúnaður ríkir um
starfslokin. Viðmælendur Frétta
blaðsins segja að starfsandinn hafi
verið orðinn slæmur áður en Birgi
var sagt upp.
Hádegisfundurinn í gær var stutt
ur. „Ég tilkynnti starfsmönnum á
fundinum að verið væri að vinna í
að auglýsa starf nýs forstjóra, það
ferli tekur dálítinn tíma, en það
verður bæði faglegt og gagnsætt,“
segir Sveinn.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins sýður á læknum Reykja
lundar eftir að Magnúsi Ólasyni var
sagt upp sem framkvæmdastjóra
lækninga á miðvikudaginn eftir 34
ára starf. Magnús segir að uppsögn
in hafi verið fyrirvaralaus, hann
hafi einungis átt nokkrar vikur í
eftirlaun. Strax í kjölfar uppsagnar
innar var lokað á tölvuaðgang hans.
Sveinn segir uppsögn Magnúsar
ekkert tengjast stöðunni inni á
Reykjalundi. „Við erum með ráðn
ingarferli í gangi, við ræddum við
Magnús og töldum réttast að segja
honum upp. Hann er kominn á
aldur. Það verður nýr framkvæmda
stjóri lækninga kominn í hús mjög
fljótt.“
Hann vísar því alfarið á bug að
stofnunin sé óstarf hæf án fram
kvæmdastjóra lækninga. „Land
læknir hefur gefið út yfirlýsingu
um að það eigi ekki að leggja niður
störf.“
Varðandi uppsögn Birgis segir
Sveinn hann hafa verið góðan
stjórnanda. „En það var ágreiningur
okkar á milli sem þurfti að leysa og
var leystur með þessum hætti.“
Í bréfi sem starfsmenn sendu á
Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðis
ráðherra segir að stjórnin hafi sýnt
„hranalega og ómanneskjulega
framkomu“ sem skapi óvissu, óör
yggi og vanlíðan sem geri stofnun
ina í raun óstarf hæfa. Þá sé það
fyrirséð að ástandið muni „bitna
harkalega á skjólstæðingum“. Nauð
synlegt sé að ráðherra grípi inn í
stöðuna til að ekki verði varanlegur
skaði. Heilbrigðisráðherra vildi
ekki veita viðbrögð að svo stöddu.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs
ins íhuga nokkrir læknar að segja
upp á næstunni.
Sveinn segir ekkert hæft í því að
SÍBS sé að horfa til þess að taka yfir
rekstur Reykjalundar. „Það er svo
fráleitt. Þetta er ekkert til að tala
um. SÍBS á staðinn, en við erum
ekki að reka staðinn. Við söfnum
fjármagni í stórum stíl. Allt tal um
að við séum að ásælast eitthvert fé
innan stofnunarinnar er fráleitt.
Við erum að leggja í þetta fjármuni.
Þetta er bull.“
Hann segir það ótækt að leggja
niður störf vegna skoðanaágrein
ings, það bitni eingöngu á sjúkling
um. „Ég skil ekki af hverju læknar
fara svona langt, ég bara skil það
ekki,“ segir Sveinn. Það sé ekki
hlutverk fagstétta, sem fá að stjórna
sínu faglega starfi, að fara inn á
svið rekstrar og fjármuna. „Lífið
heldur áfram og við verðum að
horfa til framtíðar með staðinn og
tryggja þetta góða starf sem hér er.“
arib@frettabladid.is
Segjast ekki ásælast fé Reykjalundar
Starfsmenn Reykjalundar lýsa yfir vantrausti á stjórn SÍBS og vilja að ráðherra grípi inn í stöðuna. Stjórnarformaður segir fjar-
stæðukennt að verið sé að ásælast fé Reykjalundar og skilur ekki hvers vegna verið sé að láta skoðanaágreining bitna á sjúklingum.
Ófremdarástand ríkir á Reykjalundi að mati starfsmanna sem vilja ráðherra í málið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Allt tal um að við
séum að ásælast
eitthvert fé innan stofnunar-
innar er fráleitt. Við erum
að leggja í þetta fjármuni.
Þetta er bull.
Sveinn Guðmunds-
son, stjórnarfor-
maður SÍBS
SVEITARSTJÓRNIR Borgar og bæjar
stjórar níu sveitarfélaga á norður
slóðum undirrituðu við hátíðlega
athöfn á Akureyri í gær stofnskjal
Arctic Mayors Forum og form
festu þar með samtal og samstarf
sveitarstjórnarstigsins á norður
slóðum.
Óformlegt samtal sveitarstjórn
armanna á norðurslóðum hefur
verið í gangi um nokkurt skeið og
talað hefur verið fyrir mikilvægi
þess að sveitarstjórnir, líkt og rík
isstjórnir á norðurslóðum, eigi sér
stað til skrafs og ráðagerða.
Hér á landi hefur Ásthildur
Sturlu dóttir, bæjarstjóri á Akur
eyri, unnið að því að formfesta
þetta samtal við kollega sína. Hún
segir afar mikilvægt að sveitar
stjórnir geti rætt sín á milli um
það sem skiptir íbúa á svæðinu
máli.
„Við höfum orðið þess áskynja
eftir samtal okkar að það er margt
sem sameinar okkur. Við teljum
mikilvægt að við getum rætt
saman þær sameiginlegu áskor
anir og tækifæri sem er að finna
á norðurslóðum. Því skiptir þessi
undirritun miklu máli og að til
verði þessi vettvangur,“ segir Ást
hildur.
Norðurskautsráðið hefur síðan
árið 1996 verið vettvangur stjórn
valda á norðurslóðum til að ræða
saman um sameiginleg málefni
sem snerta svæðið.
Til þessa hefur hins vegar ekki
verið til formfest samtal milli
ríkjanna innan sveitarstjórnar
stigsins.
Auk Ásthildar voru átta aðrir
bæjar og borgarstjórar saman
komnir á Akureyri í gær, frá Græn
landi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi, Kanada, Rússlandi og
Bandaríkjunum. – sa
Sveitarstjórum norðurslóða tryggður sameiginlegur vettvangur
1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-4
4
A
0
2
4
0
0
-4
3
6
4
2
4
0
0
-4
2
2
8
2
4
0
0
-4
0
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K