Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 6
Hvað er
í matinn?
Þú finnur allt á einum stað
í öllum okkar verslunum!
www.kronan.is
SAMGÖNGUMÁL Hestamenn á Akur-
eyri eru ósáttir við að reiðleiðinni
frá Akureyri yfir Eyjafjarðará hafi
verið lokað vegna uppbyggingar
á Akureyrarf lugvelli. Uppsetning
ILS-aðflugsbúnaðar við völlinn olli
því að leiðinni yfir gömlu brýrnar
sunnan við f lugvöllinn var lokað
nú í byrjun september. Hestamenn
vilja fá nýja leið yfir ána til að kom-
ast leiðar sinnar um Eyjafjörð og
yfir í Þingeyjarsýslur.
„Við erum að vinna í þessu máli
með Léttismönnum og höfum verið
að leita leiða til að leysa málið. Við
höfum í því sambandi rætt við
Vegagerðina, Landsnet og Isavia
til að skoða leiðir, hvort hægt sé að
gera þetta í sameiningu. Akureyr-
arbær hefur ekki verið til í að gera
þetta einn og sér,“ segir Guðmundur
Baldvin Guðmundsson, formaður
bæjarráðs Akureyrarbæjar.
Gamla leiðin yfir Eyjafjarðará
lendir inni á öryggissvæði flugvall-
arins eftir að aðf lugsbúnaðurinn
hefur verið settur upp. Búnaðurinn
er liður í því að auka millilandaflug
um Akureyrarflugvöll. Hestamenn
eru ósáttir við að reiðleið þeirra
hverfi með þessari ráðstöfun.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins vill Akureyrarbær setja um
50 milljónir króna í verkið en ljóst
er að kostnaðurinn hljóðar upp á
rúmar 150 milljónir. Isavia neitar
hins vegar að taka þátt í kostnað-
inum.
„Akureyrarf lugvöllur er í eigu
ríkisins. Hann er rekinn af Isavia á
grundvelli þjónustusamnings við
hið opinbera og þar eru engar fjár-
veitingar til brúarsmíði til staðar,“
Segja lokunina hneisu
og svik við hestamenn
Reiðleiðinni milli Akureyrar og Þingeyjarsýslu hefur verið lokað og ekki er
hægt að komast leiðar sinnar ríðandi nema um þjóðveg 1. Telja hestamenn
þetta hina mestu hneisu og segja bæjaryfirvöld á Akureyri hafa svikið sig.
Brúin yfir Eyjafjarðará sem sést vinstra megin á myndinni hefur verið af-
lögð þar sem hún er á öryggissvæði flugvallarins. MYND/VÖLUNDUR JÓNSSON
Við viljum ekki
vera þeir einu sem
höldum á þessu verkefni.
Guðmundur
Baldvin Guð-
mundsson, for-
maður bæjarráðs
Akureyrarbæjar
AUSTURLAND „Fjarðarheiðargöng
skipta gífurlegu máli fyrir íbúana á
svæðinu, en þau skipta einnig miklu
máli fyrir farþega- og vöruflutninga
til og frá landinu um Seyðisfjörð. Það
er mjög ánægjulegt að nú sé komin
niðurstaða varðandi hvaða leið
verður farin og hvernig hún verður
áfangaskipt,“ segir Björn Ingimars-
son, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og
formaður samstarfsnefndar sveitar-
félaga á Austurlandi.
Bæjarstjóri vill
göng eftir sjö ár
Björn
Ingimarsson.
Norðurslóðamenning í Hörpu
Alþjóðlega norðurslóðaráðstefnan Artic Circle var sett í Hörpu í gær. Um tvö þúsund stjórnmálamenn, vísindamenn, forystumenn
í náttúruvernd og atvinnulífi á norðurslóðum frá yfir sextíu löndum sækja ráðstefnuna. Þetta er í sjöunda sinn sem ráðstefnan er
haldin hér á landi. Tilgangur hennar er að skapa þverfaglegan samræðuvettvang um málefni norðurslóða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
segir Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia
„Þetta er nokkuð dýr framkvæmd
að byggja nýja brú yfir ána. Sú brú
sem var áður notuð var í eigu Vega-
gerðarinnar og hefur verið nýtt sem
reiðleið. Nú liggur hins vegar fyrir
að það þurfi að bregðast við stöð-
unni og við viljum ekki vera þeir
einu sem höldum á þessu verkefni,“
segir Guðmundur Baldvin.
Ljóst hefur verið um langan tíma
að þessi reiðleið yrði að fara vegna
uppbyggingar á f lug vellinum.
Hestamenn hafa ekki náð að nýta
tímann til þess að tryggja reiðleið
milli Akureyrar og Þingeyjarsýslna
á þessum tíma. Strax eftir áramót
mun þetta því hafa mikil áhrif á
hestamennsku á Akureyri.
sveinn@frettabladid.is
Göngin, sem verða á milli Egils-
staða og Seyðisfjarðar, verða lengstu
göng á landinu, 13,5 kílómetrar. Í
svari Sigurðar Inga Jóhannssonar
samgönguráðherra við fyrirspurn
Fréttablaðsins segir að í drögum að
samgönguáætlun sé gert ráð fyrir
fjármagni til að klára undirbúning
ganganna.
Hönnunarferli tekur rúm tvö ár og
bindur Björn vonir við að þau verði
tilbúin eftir sjö ár. Í skýrslu starfs-
hóps um gangakosti á Austurlandi er
verðmiðinn sagður um 34 milljarðar.
„Það er mikilvægt að halda áfram
og skapa hringtengingu milli fjarða,
þá erum við ekki bara að tala um
göng undir Fjarðarheiði heldur
einnig tengingu yfir í Mjóafjörð og
þaðan yfir í Norðfjörð,“ segir Björn.
Alls myndu öll þrenn göngin kosta
samtals 64 milljarða króna. – ab +PLÚS
1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-5
8
6
0
2
4
0
0
-5
7
2
4
2
4
0
0
-5
5
E
8
2
4
0
0
-5
4
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K