Fréttablaðið - 11.10.2019, Síða 10

Fréttablaðið - 11.10.2019, Síða 10
Hundruð þúsunda óbreyttra borgara í norðurhluta Sýrlands eru í hættu. Filippo Grandi, yfirmaður flóttamannamála SÞ 1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Rafmagn, bensín og hrein skemmtun. *Búnaður á mynd getur verið frábrugðinn bílum á tilboðsverði. Sjá staðalbúnað á volkswagen.is. www.hekla.is/volkswagensalur Nýr Passat GTE Nýr Passat GTE er jafnvígur á rafmagn og bensín. Hann sameinar kosti rafmagnsbíla og bíla sem komast langar vegalengdir, sem gerir hann að einum skilvirkasta bíl sem völ er á í okki millistórra bíla. Samkvæmt WLTP kemst hann 56 km á raforkunni einni saman og þú kemst estra þinna ferða án útblásturs, en í langferðum tekur sparneytin bensínvélin við. Láttu framtíðina rætast og skiptu yr í Passat GTE. www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum Verð frá 5.390.000,- SÝRLAND Tyrkir fylgdu eftir loft­ árásum og árásum stórskotaliðs með landhernaði á miðvikudags­ kvöld. Sprengjuárásir halda þó enn áfram, bæði dag og nótt. Að minnsta kosti 60 þúsund Kúrdar, búsettir nálægt landamærunum, f lýja nú heimili sín og halda suður á bóginn. Meginþungi innrásarinnar er á miðjum landamærunum, á milli borganna Ras al­Ain og Tal Abyad. Talsmenn tyrkneska hersins segjast þegar hafa tekið yfir nokkra staði sem þeir töldu hernaðarlega mikil­ væga og nokkur þorp austan við Tal Abyad. Við báðar borgirnar hafa herir Tyrkja og Kúrda lent í beinum átökum. Sprengjum hefur einnig verið beint að Qamishli­fangelsinu í austurhluta landsins, en það er eitt af þremur stórum fangelsum þar sem ISIS­liðar eru vistaðir. Yfirvöld Kúrda segja að Tyrkir geri þetta til þess að reyna að sleppa þeim út og skapa glundroða á svæðinu. Racip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur hins vegar heitið því að komist fang­ elsin undir stjórn Tyrkja verði engin breyting á stöðu ISIS­liðanna. Þeim verði haldið þar til hægt er að fram­ selja þá til viðkomandi heimalanda. Erdogan hefur einnig sagt að til­ gangurinn með innrásinni sé að skapa frið og mynda 32 kílómetra breitt öryggissvæði, laust við vopn­ aða Kúrda, við landamærin og flytja þangað eina milljón sýrlenskra flóttamanna, sem nú dvelja í Tyrk­ landi. Í gær hótaði Erdogan að senda alla f lóttamennina, 3,6 milljónir talsins, til Evrópu ef innrásin yrði skilgreind sem hernám af Evrópu­ sambandinu. Enn er óljóst hversu margir óbreyttir Kúrdar hafa látist en 100 kúrdískir hermenn hafa fallið. Þá hafa að minnsta kosti 15 Tyrkir og sýrlenskir málaliðar fallið í bar­ dögum. Til að svara innrásinni hafa Kúrd­ ar skotið loftskeytum yfir landa­ mærin á tyrkneskar borgir, þar á meðal Akcakale þar sem búa tæp­ lega 30 þúsund manns. Samkvæmt tyrkneskum yfirvöldum hafa tvö börn látist í Akcakale. Íslensk stjórnvöld ítrekuðu í gær þá gagnrýni sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hafði þegar sett fram og lýstu því yfir að náið yrði fylgst með ástandinu í Sýrlandi. „Íslensk stjórnvöld gagn­ rýna harðlega hernaðaraðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi og hafa komið þeirri afstöðu sinni á framfæri við tyrknesk yfirvöld með formlegum hætti. Hernaðar­ aðgerðir nar samræmast ek k i alþjóðalögum og er þess krafist að Tyrkir hætti aðgerðunum þegar í stað og fylgi alþjóðalögum í hví­ vetna. Hernaður sem beinist að almennum borgurum og veldur manntjóni, eins og fregnir herma, er fordæmdur,“ segir í yfirlýsingunni. Þá harma UNICEF á Íslandi einn­ ig innrásina og lýsa yfir þungum áhyggjum af henni. „Það verður aldrei sagt nógu oft að börn í Sýr­ landi bera enga ábyrgð á þessum stríðsátökum en eins og við vitum þá verða það fyrst og fremst þau sem munu þjást af þeirra völdum. Það er nóg komið af blóðbaði. Íslendingar eiga að segja stopp og saman getum við haft áhrif,“ segir Bergsteinn Jónsson framkvæmda­ stjóri. Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa fordæmt innrásina og lýst yfir áhyggjum af mannfalli og hugsan­ legri upprisu ISIS. Einnig hafa Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusam­ bandið, NATO og Arababanda­ lagið harmað innrásina. „Hundruð þúsunda óbreyttra borgara í norðurhluta Sýrlands eru í hættu. Almenningur og innviðir sem þjóna honum mega ekki verða skotmark,“ sagði Filippo Grandi, yfirmaður Sameinuðu þjóðanna í málefnum flóttafólks. kristinnhaukur@frettabladid.is Tyrkir miða á fangelsi sem vista ISIS-liða Landhernaður hafinn í Kúrdahéröðum Sýrlands. Tyrkir hafa þegar náð smábæjum við landamærin og mannfall eykst með hverjum klukkutímanum. Sprengjum beint að fangelsum sem vista ISIS-liða. Sýrlenski stjórnarherinn berst með Tyrkjum gegn Kúrdum. NORDICPHOTOS/GETTY 1 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 0 -6 7 3 0 2 4 0 0 -6 5 F 4 2 4 0 0 -6 4 B 8 2 4 0 0 -6 3 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.