Fréttablaðið - 11.10.2019, Qupperneq 10
Hundruð þúsunda
óbreyttra borgara í
norðurhluta Sýrlands eru í
hættu.
Filippo Grandi, yfirmaður
flóttamannamála SÞ
1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Rafmagn, bensín
og hrein skemmtun.
*Búnaður á mynd getur verið frábrugðinn bílum á tilboðsverði. Sjá staðalbúnað á volkswagen.is.
www.hekla.is/volkswagensalur
Nýr Passat GTE
Nýr Passat GTE er jafnvígur á rafmagn og bensín. Hann sameinar kosti rafmagnsbíla og bíla
sem komast langar vegalengdir, sem gerir hann að einum skilvirkasta bíl sem völ er á í okki
millistórra bíla. Samkvæmt WLTP kemst hann 56 km á raforkunni einni saman og þú kemst
estra þinna ferða án útblásturs, en í langferðum tekur sparneytin bensínvélin við. Láttu
framtíðina rætast og skiptu yr í Passat GTE.
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum
Verð frá
5.390.000,-
SÝRLAND Tyrkir fylgdu eftir loft
árásum og árásum stórskotaliðs
með landhernaði á miðvikudags
kvöld. Sprengjuárásir halda þó
enn áfram, bæði dag og nótt. Að
minnsta kosti 60 þúsund Kúrdar,
búsettir nálægt landamærunum,
f lýja nú heimili sín og halda suður
á bóginn.
Meginþungi innrásarinnar er á
miðjum landamærunum, á milli
borganna Ras alAin og Tal Abyad.
Talsmenn tyrkneska hersins segjast
þegar hafa tekið yfir nokkra staði
sem þeir töldu hernaðarlega mikil
væga og nokkur þorp austan við Tal
Abyad. Við báðar borgirnar hafa
herir Tyrkja og Kúrda lent í beinum
átökum.
Sprengjum hefur einnig verið
beint að Qamishlifangelsinu í
austurhluta landsins, en það er eitt
af þremur stórum fangelsum þar
sem ISISliðar eru vistaðir. Yfirvöld
Kúrda segja að Tyrkir geri þetta til
þess að reyna að sleppa þeim út og
skapa glundroða á svæðinu. Racip
Erdogan, forseti Tyrklands, hefur
hins vegar heitið því að komist fang
elsin undir stjórn Tyrkja verði engin
breyting á stöðu ISISliðanna. Þeim
verði haldið þar til hægt er að fram
selja þá til viðkomandi heimalanda.
Erdogan hefur einnig sagt að til
gangurinn með innrásinni sé að
skapa frið og mynda 32 kílómetra
breitt öryggissvæði, laust við vopn
aða Kúrda, við landamærin og flytja
þangað eina milljón sýrlenskra
flóttamanna, sem nú dvelja í Tyrk
landi. Í gær hótaði Erdogan að senda
alla f lóttamennina, 3,6 milljónir
talsins, til Evrópu ef innrásin yrði
skilgreind sem hernám af Evrópu
sambandinu.
Enn er óljóst hversu margir
óbreyttir Kúrdar hafa látist en 100
kúrdískir hermenn hafa fallið. Þá
hafa að minnsta kosti 15 Tyrkir og
sýrlenskir málaliðar fallið í bar
dögum.
Til að svara innrásinni hafa Kúrd
ar skotið loftskeytum yfir landa
mærin á tyrkneskar borgir, þar á
meðal Akcakale þar sem búa tæp
lega 30 þúsund manns. Samkvæmt
tyrkneskum yfirvöldum hafa tvö
börn látist í Akcakale.
Íslensk stjórnvöld ítrekuðu í gær
þá gagnrýni sem Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra hafði
þegar sett fram og lýstu því yfir að
náið yrði fylgst með ástandinu í
Sýrlandi. „Íslensk stjórnvöld gagn
rýna harðlega hernaðaraðgerðir
Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi og
hafa komið þeirri afstöðu sinni
á framfæri við tyrknesk yfirvöld
með formlegum hætti. Hernaðar
aðgerðir nar samræmast ek k i
alþjóðalögum og er þess krafist að
Tyrkir hætti aðgerðunum þegar í
stað og fylgi alþjóðalögum í hví
vetna. Hernaður sem beinist að
almennum borgurum og veldur
manntjóni, eins og fregnir herma, er
fordæmdur,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá harma UNICEF á Íslandi einn
ig innrásina og lýsa yfir þungum
áhyggjum af henni. „Það verður
aldrei sagt nógu oft að börn í Sýr
landi bera enga ábyrgð á þessum
stríðsátökum en eins og við vitum
þá verða það fyrst og fremst þau
sem munu þjást af þeirra völdum.
Það er nóg komið af blóðbaði.
Íslendingar eiga að segja stopp og
saman getum við haft áhrif,“ segir
Bergsteinn Jónsson framkvæmda
stjóri.
Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa
fordæmt innrásina og lýst yfir
áhyggjum af mannfalli og hugsan
legri upprisu ISIS. Einnig hafa
Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusam
bandið, NATO og Arababanda
lagið harmað innrásina. „Hundruð
þúsunda óbreyttra borgara í
norðurhluta Sýrlands eru í hættu.
Almenningur og innviðir sem þjóna
honum mega ekki verða skotmark,“
sagði Filippo Grandi, yfirmaður
Sameinuðu þjóðanna í málefnum
flóttafólks.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Tyrkir miða
á fangelsi sem
vista ISIS-liða
Landhernaður hafinn í Kúrdahéröðum Sýrlands.
Tyrkir hafa þegar náð smábæjum við landamærin
og mannfall eykst með hverjum klukkutímanum.
Sprengjum beint að fangelsum sem vista ISIS-liða.
Sýrlenski stjórnarherinn berst með Tyrkjum gegn Kúrdum. NORDICPHOTOS/GETTY
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-6
7
3
0
2
4
0
0
-6
5
F
4
2
4
0
0
-6
4
B
8
2
4
0
0
-6
3
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K