Fréttablaðið - 11.10.2019, Side 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna H. Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jon
ivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653
Framhald af forsíðu ➛
Kristín segIst „lost“ án Sverris. Hann kunni vel á hana, hafi fengið hana til að hlæja við fyrstu kynni og að hún sé enn síhlæjandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
lagið „Án þín“ til sigurs í Söngva-
keppni framhaldsskólanna árið
2000 og séð um tölvuleikjaþáttinn
Game Tíví í sjónvarpinu.
„Ég held það hafi verið fínt fyrir
Sverri að finna einhverja sem
var ekki eldheitur aðdáandi eða
inni í öllu sem hann hafði gert,“
segir Kristín sem varð bálskotin
í honum með því einu að tala við
hann.
„Sverrir er algjör dúlli og frábær
að öllu leyti. Hann er ómótstæði-
lega heillandi, skemmtilegur og
góður, lét mig hlæja frá fyrstu
sekúndu og ég er enn síhlæjandi.
Hann kann svo vel á mig, er með
gott jafnaðargeð og núna er ég
alveg „lost“ án hans,“ segir Kristín
og hlær af hamingju.
„Þessi ást kviknaði svo hratt og
fallega. Ég gisti hjá Sverri kvöldið
sem hann bjargaði mér úr bíla-
þvottastöðinni og svo gisti ég
aldrei annars staðar. Ég bara flutti
strax inn til hans og seinna um
sumarið fluttum við saman til
Njarðvíkur. Við fundum svo sterkt
að tilfinningin væri rétt og ég vissi
um leið að Sverrir væri mín eina
sanna ást. Fljótlega barst svo talið
að barneignum og við vildum bæði
eignast börn, ákváðum að prófa
og eigum nú von á okkar fyrsta
barni,“ segir Kristín en settur
fæðingardagur stúlkubarns þeirra
Sverris er 1. febrúar á nýárinu.
„Barnið verður það fyrsta okkar
beggja og fyrsta stelpan í fjöl-
skyldu Sverris. Við erum meira
en tilbúin í foreldrahlutverkið og
hlökkum mikið til. Okkur langar
að eignast f leiri börn og fundum í
hjarta okkar að við vildum það eitt
að vera saman og eignast stóra og
góða fjölskyldu.“
Réttnefndur draumaprins
Kristín segir ekki hægt að lýsa til-
finningunni sem fylgir því að vera
viðfangsefni ástfangins tónlistar-
manns frammi fyrir fyrir alþjóð
en Sverrir naut aðstoðar Magnúsar
Þórs Sigmundssonar við texta-
gerðina og Halldórs Gunnars Páls-
sonar Fjallabróður við útsetningu
lagsins.
„Mitt uppáhaldslag með Sverri
er auðvitað „Þig ég elska“ en lagið
„Ég fer ekki neitt“ er líka í dálæti.
Mér líður auðvitað eins innan-
brjósts en held að ég sé ekki jafn
ljóðræn og hann að koma tilfinn-
ingum mínum í orð eða listsköp-
un,“ segir Kristín sem er rómantísk
eins og Sverrir.
„Fyrir mér felst rómantík í
litlu, hversdagslegu hlutunum;
að kveikja á kertum, liggja saman
og knúsast, en líka þessu óvænta
sem Sverrir gerir, eins og þegar
ég varð 29 og hálfs árs fannst
honum tilefni til að vekja mig með
afmælistertu og þegar ég sofnaði
í sófanum, áður en ég varð ólétt,
þá bar hann mig á örmum sér inn
í rúm, en það getur hann alls ekki
núna,“ segir Kristín og skellir upp
úr. „Rómantík þarf því ekki að vera
eitthvað stórt eða yfirþyrmandi,
bara hvernig hann kemur til mín,
nándin og snertingin. Með honum
finn ég alla daga að ég er elskuð
meira en allt í heiminum og nú er
hann farinn að elda handa mér,
maðurinn sem hefur aldrei eldað
neitt, og maturinn er gómsætur
en það er hugurinn að baki sem
skiptir mestu máli.“
Margir ráku upp stór augu þegar
turtildúfurnar birtu af sér mynd
um síðustu áramót, tekna í Las
Vegas, eins og nýgift hjón.
„Nei, við giftum okkur ekki þá;
það eigum við eftir,“ segir Kristín.
„Þegar ég varð þrítug í fyrrahaust
gaf Sverrir mér fyrstu samskiptin
okkar á Facebook í ramma sem
hangir nú fyrir ofan kamínuna
okkar heima. Í rammanum
leyndist líka mynd af söngkonunni
Celine Dion sem er uppáhldið
mitt. Það reyndust vera miðar á
lokatónleika hennar í Las Vegas
og ég var sem lömuð því mig hafði
alltaf dreymt um að fara á tónleika
með henni og auðvitað lét drauma-
prinsinn þann draum rætast.“
Ástfangnari með degi hverjum
Þau Kristín og Sverrir hafa komið
sér fyrir í fallegu húsi í Njarðvík.
„Sverrir vildi að við flyttum
suður með sjó til að eiga fleiri tíma
í sólarhringnum saman þegar ég
vann á flugvellinum en nú viljum
við ekki f lytja aftur í borgina.
Útlendingastofnun er í Hafnar-
firði og ég er enga stund að skjótast
þangað úr Njarðvík. Ég mæli
heilshugar með búsetu í Reykja-
nesbæ og þar er fasteignaverð
töluvert lægra en í Reykjavík. Það
hefur komið okkur á óvart hversu
yndislegt samfélagið er, hér ríkir
hlýr náungakærleikur og allir taka
vel á móti okkur,“ segir Kristín sem
var ekki í barneignarhugleiðingum
fyrr en hún kynntist Sverri en sá
aldrei annað fyrir sér en að ala upp
börn sín upp á Íslandi.
„Suðurnesin eru yndislegur
staður fyrir börn, nóg rými og stutt
í fagra náttúru. Okkur þykir gott
að komast aðeins úr ys og stressi
borgarinnar og finnum hvað
okkur langar alltaf heim í kyrrðina
þegar við erum í bænum,“ segir
Kristín en bæði eru afar heimakær.
„Við erum bæði róleg og Sverrir
er svo nægjusamur. Honum finnst
best að vera heima og hafa það kósí
og mér finnst þægilegt að finna
að hann sé ekki með stöðuga þrá
til að komast út. Hann syngur
reyndar rosalega mikið um helgar
sem getur verið þreytandi því þá
á ég frí en þetta hefur sína kosti og
galla. Maður viðheldur vináttu og
tengslum við fjölskyldu og vini og
vinkonur mínar koma stundum í
„sleep-over“ ef Sverrir þarf að fara
út á land um helgar. Mér finnst líka
gott að vera ein og horfa á góða
þætti á meðan hann er að spila en
ef við eigum helgina saman, sem
gerist nánast aldrei, finnst okkur
best að vera ein og gera ekki neitt.
Hann fær að vera í tölvunni og þarf
sinn tíma þar, en heima er hann
með heilt tölvuvirki og í síðustu
viku komu til hans tveir vinir í
„sleep-over“ og spiluðu tölvuleiki í
sólarhring,“ segir Kristín og hlær.
Hún segir helgina vera tíma til
að kúpla sig út.
„Það má alveg njóta þess að
gera ekki neitt og það þarf ekki
stöðuga dagskrá. Við Sverrir getum
verið saman heilu dagana ein. Við
fáum ekki leiða hvort á öðru og ég
verð ástfangnari af honum með
hverjum deginum sem líður. Það
er mögnuð tilfinning; ég var ekki
undirbúin fyrir þetta en trúði
alltaf að rétti maðurinn kæmi til
mín fyrr eða síðar,“ segir Kristín,
hamingjan og fegurðin uppmáluð.
„Ég er heppin með gen. Mamma
og pabbi eru um sjötugt en líta út
eins og fertug og eru enn orkumeiri
en ég. Við systkinin hrósum happi
að hafa öll fengið fallegu tenn-
urnar hans pabba en annars hef ég
alltaf hugsað vel um heilsu og útlit
með útivist, fjallgöngum, sundi
og jóga. Á meðgöngunni geri ég
hins vegar fátt annað en að vinna
og hvíla mig, er rosa góð við sjálfa
mig og kenni barninu um hvað ég
er mikill nammigrís,“ segir Kristín
og hlær.
Hún verður 31 árs á fimmtu-
daginn í næstu viku.
„Október er mikill afmælis-
mánuður í fjölskyldunni. Mamma
átti afmæli þann níunda, bróðir
minn á afmæli þann fimmtánda,
ég þann sautjánda og annar bróðir
minn þann nítjánda. Við sláum
því saman í notalegan bröns um
helgina,“ segir Kristín sem er farin
að hlakka til jóla og nýárs.
„Lífið er gott og dásamlegur
tími framundan með jólum og
litla barninu. Í fyrra upplifðum
við Sverrir bandarísk jól en þetta
verða fyrstu jólin okkar sem par
í eigin húsi. Ég hlakka til róman-
tískra kertaljósa og spila og við
ætlum að kaupa okkur nýtt jóladót
og skreyta húsið. Þetta verða
önnur eða þriðju jól Sverris fjarri
foreldrahúsum en ætli við förum
ekki í jólamat til foreldra minna
því þá verð ég komin svo langt á
leið. Svo skellum við í annað barn
sem fyrst, ef það gengur vel.“
Lengri útgáfa er á frettabladid.is
Ástarljóð til Sverris
Það tók Kristínu Evu ekki nema
örfáar mínútur að koma tilfinn-
ingum sínum í orð í eftirfarandi
ástarljóði til Sverris Bergmann.
Á heimshornaflakki í hamingju
sveif,
hella og tinda, já ég þá kleif.
Fann þó í hjarta mér holrúm
breitt,
í hringiðu flakksins var líf mitt
leitt.
Var aldrei þess vitandi hvers ég
leitaði að,
vinarbeiðni á fésbók hversu
óvænt var það?
Fyllti mig gleði, fyllti mig ást,
furðulegt hvernig ég hætti að
þjást.
Breytti minni skeifu í risastórt
bros,
brosandi enn, þetta er enda
laust gos.
Nú leit minni er lokið, ég legg
mín spil á borð,
læt ég því fylgja mín lokaorð.
Heima með þér ég í hamingju
svíf
og hefur okkur nú tekist að
skapa nýtt, lítið líf.
Ég ævinni hlakka til að eyða
með þér,
enda þú nú orðinn hluti af mér.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-4
E
8
0
2
4
0
0
-4
D
4
4
2
4
0
0
-4
C
0
8
2
4
0
0
-4
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K