Fréttablaðið - 11.10.2019, Síða 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Sum fyrirtæki byrja að huga að jólagjöfum starfsmanna sinna strax á vorin og sumrin.
Flest þeirra byrja þó ekki að huga
að þeim fyrr en núna á haust-
mánuðum. En sum koma ekki til
okkar fyrr en rétt fyrir jól,“ segir,
Elísabet Kvaran, viðskiptastjóri
hjá ZO•ON.
Hjá ZO•ON er fjölbreytt úrval
af útivistarfatnaði og fylgihlutum.
Hvað ratar í jólapakkann er því
mjög mismunandi. „Við eigum yfir-
hafnir og peysur í miklu úrvali sem
fyrirtæki hafa keypt hjá okkur. En
mörgum finnst erfitt að áætla rétt-
ar stærðir fyrir starfsfólk sitt og þá
erum við með ýmsar lausnir. Það
er til dæmis hægt að kaupa sett af
húfu og vettlingum í fallegri lítilli
tösku. Gullfoss taskan okkar er líka
mjög vinsæl gjöf. Þetta er svokölluð
helgartaska sem er fullkomin
gjöf fyrir bæði dömur og herra og
hentar vel í helgarferðina, ræktina
eða sundið.“
Gjafakortin gleðja
Gjafakortin frá ZO•ON eru alltaf
mjög vinsæl. „Gjafakortin eru
tilvalin gjöf fyrir alla. Fólk getur
þá komið og valið sér það sem því
hentar. Úrvalið er það mikið að
allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi í ZO•ON. Fólk getur
bæði notað gjafakortið upp í
dýrari f lík eða keypt sér eitthvað
akkúrat fyrir upphæðina sem er á
kortinu. Að gefa gjafakort er líka
mjög lítil fyrirhöfn fyrir fyrirtækin
en þau koma í fallegri öskju.“
Gullfoss
weekend bag er
fullkomin fyrir
helgarferðina,
ræktina eða
sundið.
Gjafakort frá ZO•ON er tilvalin gjöf sem gleður. Þau koma í fallegri öskju.
ZO•ON er borgar- og útivistarmerki fyrir ævintýragjarna. Fyrirtækið hefur áratuga reynslu á útivistarmarkaði.
Úrvalið er mikið svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í ZO•ON.
Eitthvað fyrir alla
Algengt er að fyrirtæki láti merkja
fötin sem verið er að gefa og
ZO•ON býður upp á að sjá um
slíkt. „Þróunin hefur þó verið í
þá átt að hafa merkingarnar lítið
áberandi því mikið áberandi
merkingar verða til þess að fólk
forðast frekar að klæðast f líkun-
um. Það er vel hægt að koma fyrir
litlu fallegu lógói á f líkum sem
er jafnvel samlitt f líkinni,“ segir
Elísabet en hún segist finna fyrir
mikilli eftirspurn eftir ZO•ON
vörunum.
„Fólk er af mismunandi
stærðum og gerðum. Við höfum
verið að bjóða upp á stærri stærðir
í ákveðnum vöruflokkum og því
ættu flestir að geta fundið eitthvað
sem hentar þeim. Fólk er alltaf
ánægt með að fá fallega flík eða
fylgihlut. Svo má geta þess að ef
fyrirtækin merkja ekki gjöfina
með lógói fyrirtækis er ekkert mál
að koma og skipta í eitthvað sem
hentar betur.“
ARCTIC ECO umhverfisstefna
„Ein af nýjungum okkar þennan
veturinn er ARCTIC ECO verk-
efnið okkar, en það er hluti af
umhverfisstefnu ZO-ON,“ segir
Elísabet.
„ZO•ON hefur þróað efni og
einangrun sem framleidd eru
úr endurunnum hráefnum sem
minnka áhrif okkar á umhverfið.
Þetta var gert undir Arctic Eco
umhverfisstefnu fyrirtækisins.
Þannig hjálpar ZO•ON þér bæði
við að haldast í jafnvægi við nátt-
úruna og líða vel í borgarútivistar-
stíl að þínu skapi.“
Efnin og einangrunin í Arctic
Eco verkefninu er endurunnið úr
plastflöskum. Það þarf um það
bil 50 hálfslítra plastflöskur að
meðaltali til að búa til einangrun í
Jaka úlpu.
Bæði efnið sjálft, Artic Eco
Dimondium, og vatteinangrunin
Artic Eco Insulation eru unnin á
þennan máta. Við byrjum með
einangrun úr Artic Eco fyrir
þennan vetur. Svo bætist við Artic
Eco Diamondium við næsta sumar
í regnfatnaðinum okkar.
Fyrir borg og náttúru
ZO•ON er rótgróið fyrirtæki sem
á sér um þrjátíu ára sögu. „Hér
innanhúss er því mikil reynsla og
þekking bæði hvað varðar fram-
leiðslu, hönnun og útivist. Fyrir
fáum árum fórum við í gegnum
mikla endurmótun á stefnu,
tókum inn nýja hönnuði og mót-
uðum í hvaða átt við vildum fara. Í
dag má segja að ZO•ON sé borgar-
og útivistarmerki fyrir ævintýra-
gjarna. Við hönnum föt sem hvetja
fólk til að drífa sig út og ferðast
óhindrað milli borgar og náttúru,
hvernig sem viðrar.“
Nánari upplýsingar á www.zo-on.
is. Hjá Elísabetu Kvaran, netfang:
elisabet@zo-on.com sími: 781
2100 og Margréti Rós Einarsdóttur,
netfang: margret@zo-on.com
sími: 856 5858
Fólk getur bæði
notað gjafakortið
upp í dýrari flík eða
keypt sér eitthvað akk-
úrat fyrir upphæðina
sem er á kortinu.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-6
2
4
0
2
4
0
0
-6
1
0
4
2
4
0
0
-5
F
C
8
2
4
0
0
-5
E
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K