Fréttablaðið - 11.10.2019, Page 30
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn@frettabladid.is
Á hverju ári eru einhver fyrir-tæki sem nýta sér þetta hjá okkur og það hefur farið
vaxandi síðastliðin ár,“ segir Stefán
Örn Gíslason, verkefnastjóri fyrir-
tækjasamstarfs hjá UNICEF.
UNICEF hefur í áraraðir boðið
bæði einstaklingum og fyrirtækj-
um upp á Sannar gjafir. Sem dæmi
um gjafirnar má nefna jarðhnetu-
mauk, bólusetningar, námsgögn
og moskítónet.
„Sannar gjafir eru gjafabréf fyrir
hjálpargögnum sem fyrirtæki og
einstaklingar geta gefið sem gjafir
og svo sendir UNICEF hjálpar-
gögnin á vettvang þar sem þörfin
fyrir þau er brýnust hverju sinni,“
segir Stefán.
„Vöxturinn í Sönnum gjöfum
hefur síðastliðin ár verið hraðari
hjá einstaklingum en fyrirtækjum
en það virðist þó vera að einhver
hugarfarsbreyting sé að eiga sér
stað í þessum efnum,“ segir Stefán.
„Þetta er ekki eitthvað sem ýtir
undir neysluhyggju og þetta er
ekki munaðarvara heldur eitthvað
sem er lífsnauðsynlegt fyrir börn á
svæðum þar sem mikil neyð ríkir,“
segir Stefán.
„Það er mikil umræða um
það í samfélaginu að minnka
þurfi neyslu á sama tíma og við
virðumst ekki ætla að hætta að
gefa hvert öðru gjafir. Þetta er
mögulega lausn á því, gjafir sem í
rauninni gefa áfram,“ segir hann.
„Við höfum sérstaklega séð
aukningu í því að fyrirtæki bæti
Sönnum gjöfum við gjafirnar sem
þau eru að gefa starfsmönnum
sínum. Einn valmöguleiki er að
gera merkimiðann merkilegan,“
segir hann og brosir. „Með því á ég
við að flest fyrirtæki eru að gefa
afar veglegar gjafir á jólunum og
við önnur tilefni og þeim fylgja
kort eða merkimiðar til starfs-
manna. Fyrir til dæmis 500 krónur
er hægt að gera merkimiðann að
Sannri gjöf sem inniheldur vatns-
hreinsitöflur sem hreinsa fimm
þúsund lítra af vatni,“ bætir Stefán
við.
„Okkar reynsla er sú að þetta
hafi vakið mjög mikla lukku hjá
starfsfólki,“ segir Stefán. „Svo
skemmir ekki fyrir að Sannar
gjafir UNICEF teljast stuðningur
til góðgerðarmála svo fyrirtæki
geta nýtt þær til skattaafsláttar,“
segir Stefán að lokum.
Færist í vöxt að
fyrirtæki gefi
Sannar gjafir
Stefán Arnar Gíslason segir aukast að fyrirtæki gleðji starfs-
fólk sitt með Sönnum gjöfum frá UNICEF. Hann segir hugar-
farsbreytingu gagnvart umhverfi og neysluhyggju líklega
ástæðu. Gjafirnar eru í formi gjafabréfs fyrir hjálpargögnum.
Stefán Örn Gíslason, verkefnastjóri hjá UNICEF, segir æ fleiri kaupa Sannar gjafir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Okkar reynsla er
sú að þetta hafi
vakið mikla lukku hjá
starfsfólki.
12 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
21. - 22. DESEMBER Í HÖRPU
Miðasala fer fram á harpa.is/jolagestir.
Nánar á senalive.is/jolagestir
SKRÁNING
er hafin!
JÓLA
STJARNAN
2019
AuÐur · Birgitta Haukdal
FriÐrik Ómar · GDRN · Gissur Páll
Jón Jónsson · Svala · Þóra Einarsdóttir
ÁSAMT SIGURVEGARA
JÓLASTJÖRNUNNAR 2019
JÓLASTJARNAN 2019 er Í SJÓNVARPI SÍMANS
TAKTU ÞÁTT Á MBL.IS/JOLASTJARNAN
STÓRSVEIT JÓLAGESTA SKIPUÐ LANDSLIÐI HLJÓÐFÆRALEIKARA
STRENGJASVEIT JÓLAGESTA · KARLAKÓR INN ÞRESTIR
REYKJAVÍK GOSPEL COMPANY · BARNAKÓR KÁRSNESSKÓLA
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
0
-4
E
8
0
2
4
0
0
-4
D
4
4
2
4
0
0
-4
C
0
8
2
4
0
0
-4
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K