Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.10.2019, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 11.10.2019, Qupperneq 36
Góða salatið sem þú kemur vanalega með í vinnuna er sæt gjöf í krukku fyrir vinnufé- laga sem saknar þín í jólafríinu. Labbrabbtæki minnkar fjarlægðir á milli vinnufélaga í stóru vinnurými. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Garðyrkja á skrifborðinu er róandi iðja og gott að munstra sand og steina. Veldu milli sex mismunandi karfa og bættu við annarri matvöru, víni eða g jafavöru. Við sjáum um pökkunina þér að kostnaðarlausu. Frábær jólag jöf til viðskiptavina eða starfsmanna. Kíktu á ms.is - einfalt og fljótlegt. J Ó L A G J Ö F S Æ L K E R A N S Gómsætar jólagjafir 18 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR Góðir vinnufélagar eru gulls ígildi og oft má láta ýmislegt yfir sig ganga í vinnunni ef starfsandinn er góður og samstarfsfólkið skemmtilegt. Á vinnustað myndast oft ævilöng vinabönd og sumir þjást hrein- lega af söknuði þegar þeir sjá fram á auka frídaga frá félögum sínum á vinnustað. Jólin eru hreint dásamlegur tími til gleði, frís og gjafa og sannarlega er sælla að gefa en þiggja. Það þarf heldur ekki að kosta handlegg eða fótlegg að koma færandi hendi og gauka eins og einum pakka að sessunautnum en þeim mun meiri verður gleðin við völd og svo er auðvitað bannað að opna gjafirnar fyrr en undan trénu á aðfangadagskvöld. Hér gef- ast nokkar hugmyndir að gjöfum handa góðum vinnufélaga. Í streitu og álagi vinnustaða getur verið heilsubætandi að dunda við garðyrkju á skrif- borðinu. Því eru litlir zen-garðar fullkomin gjöf fyrir önnum kafinn vinnufélaga sem getur rakað munstur í sandinn, fært til steina og plöntur og gert garðinn sinn huggulegan á meðan streitan fjarar út. Jól eru tími sætinda og smá- kaka. Komdu með smáköku eða sæta múffu í nesti og gefðu besta vinnufélaganum að smakka. Ef kakan fellur í kramið er málið að koma með lagskipt hráefni hennar í krukku og láta uppskriftina fylgja með. Þú getur verið viss um að hiksta ekki á meðan bakað er því hugsanir vinnufélagans verða hlýjar og fullar þakklætis. Það er líka góð hugmynd að koma með hráefni í uppáhalds hádegissalatið ykkar saman sem hægt er að mixa heima til að lina söknuðinn á milli stórmáltíða. Vinnurðu með hitapoka sem fær ekki nóg súrefni yfir vinnudaginn? Gefðu honum þá litla og hljóðláta borðviftu sem kælir hann í ann- ríkinu og sendir svalan vind- og vinagust til að lyfta upp líkama og sál. Góðir vinnufélagar setja velferð hvor annars í öndvegi og vilja að hvíld, náð og vellíðan sé höfð í hávegum í fríinu. Útbúðu heimatilbúið, frískandi appels- ínuskrúbb með sykri og kókos- olíu til að nota í heimadekur vinnufélagans í jólafríinu. Er stundum of langt á milli ykkar í vinnunni og þið þráið að slúðra, heyra röddina og hláturinn í vinnufélaganum? Þá eru gamaldags labbrabb- tæki bráðsniðug jólagjöf og hægt að spjalla endalaust saman eða í það minnsta slá á söknuðinn með orðum úr talstöðvunum. Kærkomnar kærleiksgjafir Því fylgir alltaf eftirvænting að fá jólagjöf frá vinnuveit- endum en stundum má auka enn á jólagleðina og koma færandi hendi með óvæntan pakka handa vinnufélögum. Ilmur af appelsínum og mandarínum er jólalegur og gefur ferska upplifun sem líkamsskrúbb. NORDICPHOTOS/GETTY 1 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 0 -7 1 1 0 2 4 0 0 -6 F D 4 2 4 0 0 -6 E 9 8 2 4 0 0 -6 D 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.