Fréttablaðið - 11.10.2019, Side 42

Fréttablaðið - 11.10.2019, Side 42
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Tómas Bergmann Vallargerði 4c, Akureyri, lést mánudaginn 30. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 15. október klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Andartak, Cystic Fibrosis samtökin á Íslandi. Reikningur 536-14-402289, kt. 650516-0360, cysticfibrosis.is. Halla Pálsdóttir Margrét Bergmann Tómasdóttir Ólafur Örn Torfason Kristján Bergmann Tómasson Sara Ómarsdóttir Tómas Ólafsson Magðalena Ólafsdóttir Marinó Snær Birgisson Móheiður Ólafsdóttir Jökull Bergmann Kristjánsson Heiða Bergmann Kristjánsdóttir Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elsku eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Gígju Sæbjargar Kristinsdóttur frá Hrísey, Ólafsvegi 5, Ólafsfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hornbrekku fyrir alúð og góða umönnun í veikindum hennar. Jón Steindór Ásgeirsson Hafdís E. Jónsdóttir Guðmundur Ólafsson Gunnlaugur K. Jónsson Guðrún Ólafsdóttir Guðlaug Jónsdóttir Sveinn Ingvason Kristinn Jónsson Sigrún B. Einarsdóttir Sigríður S. Jónsdóttir Ásbjörn M. Jónsson Katrín Jónsdóttir Vignir Þ. Siggeirsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Hrafnhildur Ágústsdóttir Hlíðarhúsum 7, Reykjavík, áður Eik, Mosfellssveit, lést 8. október. Útför hennar fer fram frá Lágafellskirkju miðvikudaginn 16. október kl. 15. Tómas Lárusson Ágúst Tómasson Elísabet V. Ingvarsdóttir Páll Kristjánsson Fannar Pálsson, Bylgja Pálsdóttir, Ingvi Ágústsson, Tómas Hrafn Ágústsson, Magnús Ingvar Ágústsson, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Tónleikarnir í Pétursborg voru yndislegir, þar var fullt hús af áhugasömum áheyrendum sem voru mjög þakklátir fyrir að fá að kynnast íslenskri, lif­ andi tónlist,“ segir Gerður Bolladóttir söngkona sem er nýlega komin úr mikilli Bjarmalandsför til Rússlands. Þangað fór hún ásamt stallsystur sinni Alexöndru Chernyshovu söngkonu og Kjartani Valdimarssyni píanóleikara. Gerður segir þekkt rússneskt tón­ listarfólk hafa verið meðal áheyrenda. „Það komu margir til okkar eftir tón­ leikana og lýstu yfir hrifningu sinni á ríkulegri menningu Íslands, tónlistinni sem við f luttum og ljóðum sem voru þýdd yfir á rússnesku og varpað á tjald meðan f lutningi stóð. Við bara heill­ uðum þá upp úr skónum!“ Báðar eru þær Gerður og Alexandra sópransöngkonur og líka tónskáld og meðal þess sem þær sungu fyrir Rússana voru eigin lög. „Við frumfluttum þrjú lög við ljóð sem Sigurður Ingólfsson orti handa mér. Svo sungum við rómantísk tónverk eftir mig við ljóð íslenskra skálda, meðal annars Kristján Hreinsson og líka langömmu mína og frændur. Einnig sungum við aríur, dúett og kór úr óperunni Skáldið og Biskupsdóttirin eftir Alexöndru við líbrettó Guðrúnar Ásmundsdóttur. Píanóleikur var í höndum Kjartans Valdemarssonar, eins af okkar bestu píanóleikurum, og hlutverk Hallgríms Péturssonar í óperunni söng bassa­ barítónsöngvari frá Moskvu. Hann heitir Sergei Telenkov og hann söng á íslensku.“ Gerður segir Alexöndru hafa átt hug­ myndina að þessum tónleikum eins og f leiri viðburðum af líkum toga. „Hún Alexandra er rússneskrar ættar en hefur búið hér á landi í mörg ár og verið virk í tónlistarsenunni, eins og f lestir vita. Henni datt í hug fyrir nokkrum árum að gaman væri að mynda tónlistarmenn­ ingarbrú milli Rússlands og Íslands. Það verkefni nefnist Russian Souvenir og hefur nú staðið í fjögur ár. Á þeim tíma hafa verið settir upp fimmtán viðburðir bæði í Rússlandi og hér og okkar ferð til­ heyrði því verkefni.“ Rússneskir fjölmiðlar voru áhuga­ samir um tónleikana. Gerður segir þær Alexöndru og Kjartan hafa farið í viðtöl í sjónvarpi og líka í elstu og rótgrónustu útvarpsstöð Pétursborgar og eiginmað­ ur Alexöndru, Jón R. Hilmarsson, skóla­ stjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, hafi sýnt ljósmyndir sem hrifu fólk. „Ég held ég geti fullyrt að áheyrendur bjugg­ ust ekki við svona flottum tónleikum og líka ljósmyndasýningu,“ segir Gerður og bætir við að Jón opni aðra sýningu í Pétursborg á sunnudaginn, 13. október, á opnunarhátíð Nordic Weeks. gun@frettabladid.is Rússar hrifnir af okkar ríkulegu menningu Söngkonurnar Gerður Bolladóttir og Alexandra Chernyshova sungu eigin tónlist í Pét- ursborg við píanóleik Kjartans Valdimarssonar og hlutu lof hlustenda. Viðburðurinn tilheyrði tónlistar-menningarbrúnni Russian Souvenir sem hefur verið til í fjögur ár. Þær Alexandra og Gerður alsælar í hinni stórkostlegu Pétursborg. Hlutverk Hallgríms Péturs- sonar í óperunni söng bassa- barítón söngvari frá Moskvu. Hann heitir Sergei Telenkov og hann söng á íslensku. Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Mik- haíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, hittust á fundi í Reykjavík dagana 11. og 12. október 1986. Fundurinn var í upphafi hugsaður sem undirbúningsfundur fyrir síðari samningalotur um takmörkun vígbúnaðar stórveldanna en eðli fundarins breyttist því þeir leiðtogarnir hófu óvænt að ræða saman um meiri afvopn- un en áður hafði verið á dagskrá hjá þeim. Á tímabili virtist stefna í sögulega niðurstöðu um stórkostlega fækkun kjarnorkuvopna en upp úr þeim viðræðum slitnaði þegar Reagan neitaði að hverfa frá áætlun um varnarkerfi í geimnum. Þegar frá leið þótti leiðtogafundurinn þó hafa rutt nýjar brautir í samskiptum stór- veldanna og markað upphaf að lokum kalda stríðsins. Íslenska þjóðin fylgdist grannt með framvindu mála og þótti heiður að vera stödd í hringiðu heimsviðburða. Þ E T TA G E R Ð I S T: 11. O K T Ó B E R 19 8 6 Leiðtogafundur var haldinn í Höfða Lögreglumenn standa vörð við Höfða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1977 Opinberir starfsmenn í BSRB fara í sitt fyrsta verk- fall. 1982 Skipinu Mary Rose sem sökk við Isle of Wight árið 1545 er lyft af hafsbotni. 1987 Spænsk þota verður eldsneytislaus og nauðlendir um 50 sjómílur vestur af Reykjanesi. Sex mönnum er bjargað úr gúmmíbjörgunarbát um borð í Þorlák ÁR. 1988 Fyrsta konan er kosin forseti sameinaðs Alþingis, það er Guðrún Helgadóttir alþingismaður og rithöfundur. 1991 Íslendingar vinna heimsmeistaratitil í bridds, þar sem tákn sigursins er hin fræga Bermúdaskál. 2007 Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn Reykjavíkur springur. 2008 Fyrstu mótmælin í búsáhaldabyltingunni fara fram á Austurvelli. Merkisatburðir 1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 0 -3 5 D 0 2 4 0 0 -3 4 9 4 2 4 0 0 -3 3 5 8 2 4 0 0 -3 2 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.