Fréttablaðið - 11.10.2019, Síða 49

Fréttablaðið - 11.10.2019, Síða 49
Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur hvar@frettabladid.is 11. OKTÓBER 2019 Viðburðir Hvað? Vísindaskáldskapur í fortíð og nútíð Hvenær? 12.00-15.00 Hvar? Þjóðminjasafnið Málþing á vegum Vísindafé- lags Íslands. Erna Magnúsdóttir, dósent í líffræði, Björn Þór Vil- hjálmsson, lektor í almennri bók- menntafræði og kvikmyndafræði, og Sigurður Ingi Erlingsson, pró- fessor í eðlisfræði, hafa framsögu. Á eftir verða pallborðsumræður þar sem Hildur Knútsdóttir rithöf- undur slæst í hópinn. Fundarstjóri er Brynhildur Björnsdóttir bók- menntafræðingur. Hvað? Þolmörk – Opin fyrirlestra- röð Listaháskóla Íslands. Hvenær? 12.15-13.00 Hvar? Fyrirlestrasalur A & B í húsi hönnunar- og arkitektúrdeildar að Þverholti 11. Fyrsti fyrirlestur vetrarins er í höndum sviðlistadeildar. Þar fjalla listamennirnir Krõõt Juurak & Alex Bailey um verk sín, meðal annars Performances for Pets. Hvað? Tangó praktika og milonga Hvenær? 21.00-24.00 Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin Gestgafar eru Gunna Beta og Heiðar og dj Heiðar heldur uppi stuðinu. Ekki þarf að mæta með dansfélaga. Aðgangseyrir er 1.000 krónur en frítt fyrir 30 ára og yngri á milongu. Hvað? Skyn – sýningaropnun Hvenær? 18.00 Hvar? Núllið, Bankastræti Vera Hilmarsdóttir og Ásgerður Arnardóttir opna samsýningu sem verður opin frá 12.00-20.00 laugar- dag og sunnudag. Hvað? Stórtónleikar Hvenær? 20.00 Hvar? Salurinn Tónleikarnir eru tileinkaðir stór- söngvurunum Kristni Hallssyni, Svölu Nielsen og Guðmundi Guðjónssyni. Þeir sem koma eru; Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran, Oddur Arnþór Jónsson baritón, Egill Árni Pálsson tenór, Hrönn Þráinsdóttir píanó, Signý Sæmundsdóttir sópran og kynnir, og Ólafur B. Ólafsson harmóníku- leikari. Sérstakir gestir eru Karla- kór Kópavogs ásamt Garðari Cortes, stjórnanda hans, og Helgi Jónsson slagverksleikari. Kristinn Hallsson er einn þeirra stórsöngvara sem minnst verður í Salnum. stod2.is 1817 Tryggðu þér áskrift Í KVÖLD Sparaðu allt að 50-70%! info@fedaszdental.huHafðu samband: + 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is Fyrir Eftir Tannlækningar í Ungverjalandi Peter Hand ke hlýtur loks Nóbelinn. NORDIC PHOTOS/GETTY Pétur skrifaði bók undir áhhrifum frá Handke. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Flóttinn frá klisjunni Hinn austurríski Peter Hand ke, sem er fæddur árið 1942, hefur hlotið öll helstu bókmenntaverðlaun Þýska- lands og Austurríkis og hefur áður verið orðaður við Nóbelinn. Hann hlýtur verð launin fyrir árið í ár. Skáld saga hans Kinder geschichte, eða Barna saga, kom út í ís lenskri þýðingu Péturs Gunnars sonar árið 1987. „Handke er á stöðugum f lótta undan klisjunni. Skáldsögur hans eru án söguþráðar, honum finnst skáldsöguformið vera orðið allt of uppáþrengjandi og klisjukennt,“ segir Pétur Gunnarsson. „Hann hefur einnig skrifað leikrit og kvik- myndahandrit, þar á meðal hand- ritið að Himinninn yfir Berlín sem Wim Wenders leikstýrði. Hann hefur skrifað bækur sem höfðu mikil áhrif á mig og eru nánast dagbækur en þar er hann að fanga augnablikið hverju sinni. Honum finnst alltof uppáþrengjandi að ýta því inn í einhverja skáldsögu og vill að augnablikið fái að lifa á sínum eigin forsendum. Ég skrifaði eina bók sem er dálítið undir þessum áhrifum og heitir Vasabók og kom út árið 1989. Ég er mjög hrifinn af skáldsögu eftir hann, Barnasögu, sem ég þýddi og er mjög einkennandi fyrir Handke. Hún fjallar um mann og barnið hans. Greinilegt er að sögu- sviðið er París, en hann nefnir hana aldrei á nafn, segir bara „í erlendu borginni“ og nefnir aldrei franska tungu heldur segir „erlenda tungan“. Hann nefnir barnið heldur aldrei á nafn, segir bara „barnið“. Orð eins og París og Frakkland hafa alltof uppá- þrengjandi merkingu til að hann treysti sér til að nota þau í þessu samhengi. Þessi flótti frá klisjunni er afar einkennandi fyrir hann.“ M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25F Ö S T U D A G U R 1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 1 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 0 -6 C 2 0 2 4 0 0 -6 A E 4 2 4 0 0 -6 9 A 8 2 4 0 0 -6 8 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.