Fréttablaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 4 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Svona eignast þú íbúð Fræðsla Íslandsbanka islandsbanki.is/vidburdir Norðurturn17:30-18:3017. október Skoppa og Skrítla snúa aftur á leiksviðið á sunnudag þegar sýning þeirra, Skoppa og Skrítla – brot af því besta, verður frumsýnd á Eldborgarsviðinu í Hörpu. Æfingar hafa staðið yfir síðan í ágúst og var generalprufa í gær þar sem kátínan var við völd. Nokkur fjöldi barna er í sýningunni og þurftu þau frí úr skóla til að sinna leikhúsinu. Með helstu hlutverk fara Linda Ásgeirsdóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Viktor Már Bjarnason og Vigdís Gunnarsdóttir. Þórhallur Sigurðsson er leikstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR +PLÚS STJÓRNMÁL „Þetta er náttúru- lega bara mjög gott veganesti inn í f lokksstjórnarfundinn sem við munum halda um helgina og vís- bending um að kannski vilji fólk fara að sjá djarfari og víðsýnni ríkis stjórn sem þorir að takast á við áskoranir framtíðar. Samfylkingin er tilbúin til þess að leiða saman umbótaöflin til að svo megi verða,“ segir Logi Einars- son, formaður Samfylkingarinnar, um niðurstöður nýrrar könnunar á fylgi f lokkanna. Samkvæmt könnuninni sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið og fréttablaðið.is munar aðeins um einu prósentu- stigi á fylgi Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn stærstur með 19,6 prósent en Sam- fylkingin er með 18,5 prósent. Samfylkingin bætir tæpum fimm prósentustigum við sig frá síðustu könnun sem gerð var í september en flokkurinn fékk rúm 12 prósent í kosningunum 2017. Fylgi annarra f lokka breytist minna en fjórir f lokkar koma í hnapp á eftir Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni. Samfylkingin stóreykur fylgið Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í nýrri skoðanakönnun Zenter rannsókna fyrir Fréttablaðið og Samfylkingin fylgir nú þar fast á eftir sem næst fylgismesti flokkurinn eftir fimm prósentustiga stökk. Vísbending um að kannski vilji fólk fara að sjá djarfari og víðsýnni ríkisstjórn sem þorir að takast á við áskor- anir framtíðar. Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar Vinstri græn, Miðf lokkurinn, Viðreisn og Píratar mælast með á bilinu 10,9 til 12,7 prósent. Fram- sóknarf lokkurinn fengi rúm sjö prósent samkvæmt könnuninni og Flokkur fólksins fjögur prósent. Ríkisstjórnarf lokkarnir þrír mælast nú samtals með innan við 40 prósenta fylgi. Tveir f lokkar skera sig úr er svör eru greind eftir kyni. Vinstri græn njóta stuðnings 20,9 prósenta kvenna en 6,1 prósents karla. Hjá Miðflokknum snýst dæmið við, 15,6 prósent karla styðja flokkinn en 6,7 prósent kvenna. – sar / sjá síðu 4 VIÐSKIPTI Íslenskir lífeyrissjóðir hyggjast ekki leggja kísilverinu PCC til nýtt fjármagn í bili en áætlanir hafa gert ráð fyrir að kísilverið þurfi mögulega að fá innspýtingu að fjár- hæð um 5 milljarðar svo tryggja megi rekstrargrundvöll þess. Boðað hefur verið til fundar hjá hluthöfum samlagshlutafélagsins Bakkastakks, sem er í eigu lífeyris- sjóða og Íslandsbanka og fer með 13,5 prósenta hlut í PCC, í næstu v ik u . Samk væmt heimildu m Markaðarins vilja sjóðirnir að verksmiðjan nái fyrst stöðugum og fullum afköstum samfellt í nokkra mánuði, auk þess að sjá hvort við- snúningur verði í kísilverði á næst- unni, áður en þeir skuldbinda sig til að leggja fyrirtækinu til aukið fjár- magn. – hae / sjá Markaðinn Leggja PCC ekki til aukið fé 1 6 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 6 -C 5 C C 2 4 0 6 -C 4 9 0 2 4 0 6 -C 3 5 4 2 4 0 6 -C 2 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.