Fréttablaðið - 16.10.2019, Qupperneq 4
Aðeins um sex prósent
karla styðja VG en um 21
prósent kvenna.
58%
sögðu Borgarlínu vera sér
akreinar fyrir almennings
samgöngur.
18,5%
mælist fylgi Samfylkingar
innar nú sem er tæplega
fimm prósentustigum meira
en í síðasta mánuði.
Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn
af einni rafhlöðu sem skilar ai
til þess að slípa, er léttari en
snúrurokkur í sinni stærð.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M18™ rafhlöðum.
Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu)
M18 FLAG
Alvöru slípirokkur
frá Milwaukee
vfs.is
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
1 Sækir kærastana til saka eftir að sonurinn lést Móðir í Wash-
ington sagði þá hafa neytt hann til
að sprauta silíkoni í getnaðarlim
sinn og eistu.
2 Lítið barn brennd ist í heimahúsi og var flutt á sjúkrahús
Barnið hafði teygt sig í bolla með
heitu vatni og hellti óvart yfir sig.
3 Maðurinn sem sóttur var á Skóga foss látinn Sam kvæmt
upp lýsingum frá lög reglunni er
um að ræða er lendan ferða mann
frá Suður-Kóreu.
25%
20%
15%
10%
5%
0%
n Kosningar 2017 n 26. júl n 9. sept n 14. okt
Sjálfstæðisflokkurinn 25,3% 20,5% 21,5% 19,6%
Samfylkingin 12,1% 14,4% 13,9% 18,5%
Vinstri græn 16,9% 12,9% 12,9% 12,7%
Miðflokkurinn 10,9% 13,4% 12,5% 11,6%
Viðreisn 6,7% 10,6% 12,3% 11,3%
Píratar 9,2% 12,3% 11,4% 10,9%
Framsóknarflokkurinn 10,7% 8,2% 6,2% 7,3%
Flokkur fólksins 6,9% 3,2% 4,0% 4,0%
Aðrir 1,5% 4,6% 5,2% 4,0%
ANNAÐ
✿ Hvaða flokk myndir þú kjósa ef kosið yrði nú?
STJÓRNMÁL Samfylkingin sækir
mjög í sig veðrið samkvæmt nýrri
könnun sem Zenter rannsóknir
gerðu fyrir Fréttablaðið og frétta-
blaðið.is. Mælist flokkurinn nú með
18,5 prósenta fylgi, aðeins rúmu
prósentustigi á eftir Sjálfstæðis-
f lokknum sem er áfram stærsti
f lokkurinn með 19,6 prósent.
Samfylkingin bætir við sig 4,6
prósentustigum frá síðustu könnun
Zenter sem gerð var í september.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar tæpum
tveimur prósentustigum milli
kannanna. Fylgi f lokksins hefur
verið á niðurleið frá kosningunum
2017 þegar hann fékk 25,3 prósent
atkvæða.
Sem fyrr er mjótt á munum milli
Vinstri grænna, Miðf lokksins,
Viðreisnar og Pírata. Vinstri græn
mælast nú með 12,7 prósent sem er
örlítið minna en í síðustu könnun.
Miðflokkurinn og Viðreisn tapa um
einu prósentustigi milli kannana.
Miðflokkurinn mælist nú með 11,6
prósent en Viðreisn 11,3 prósent.
Píratar eru með 10,9 prósent og tapa
hálfu prósentustigi.
Fylgi Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar nánast jafnt
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin eru stærstu flokkarnir samkvæmt nýrri könnun en mjög dreg-
ur saman með þeim. Fjórir flokkar koma í hnapp þar á eftir. Framsókn virðist ekki ætla að ná vopnum
sínum. Fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja mælist nú rúmum 13 prósentustigum undir kjörfylgi.
Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er komið undir 40 prósent samkvæmt könnuninni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Framsóknarf lokkurinn bætir
rúmu prósentustigi við sig og
mælist nú með 7,3 prósent. Fylgi
Flokks fólksins helst óbreytt, eða
fjögur prósent, og þá segjast 2,9 pró-
sent ætla að kjósa Sósíalistaflokk-
inn. Fimm prósent atkvæða þarf til
að flokkur fái uppbótarþingmenn.
Ríkisstjórnarf lokkarnir þrír
mælast nú samtals með 39,6 pró-
senta fylgi. Í kosningunum 2017
fengu flokkarnir samtals 52,9 pró-
sent atkvæða.
Athygli vekur að aðeins rúm 70
prósent aðspurðra svöruðu spurn-
ingunni um hvaða flokk fólk myndi
kjósa ef gengið yrði til þingkosninga
í dag.
Tveir f lokkar skera sig úr þegar
svör eru greind eftir kyni. Vinstri
græn njóta stuðnings 20,9 prósenta
kvenna en einungis 6,1 prósents
karla. Hjá Miðf lokknum snýst
dæmið við því 15,6 prósent karla
styðja f lokkinn en 6,7 prósent
kvenna. Ekki mælist marktækur
munur á stuðningi eftir kyni hjá
öðrum flokkum.
Könnunin var gerð á tímabilinu
10.-14. október síðastliðinn en hún
var send á könnunarhóp Zenter
rannsókna. Í úrtaki voru 2.300 ein-
staklingar 18 ára og eldri en svar-
hlutfall var 53 prósent. Gögnin voru
vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu.
sighvatur@frettabladid.is
GARÐABÆR Samþykkt var í bæjar-
ráði Garðabæjar í gær að af þakka
jólatré frá vinabænum Asker í Nor-
egi. Hefð var fyrir því síðastliðin 49
ár að Asker gæfi vinabæ sínum stórt
og íburðarmikið jólatré sem staðið
hefur á Garðatorgi.
„Við vorum búin að vera að velta
þessu fyrir okkur lengi og þegar við
vöktum máls á þessu við vini okkar í
Asker voru þau búin að vera að velta
þessu fyrir sér líka,“ segir Gunnar
Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar.
„Svo var tekin sameiginlega
ákvörðun um að ekki yrðu gefin
fleiri tré út frá meðal annars breytt-
um áherslum í loftslagsmálum,“
bætir Gunnar við. Enginn hafi mót-
mælt á bæjarráðsfundinum.
„Þarna sparast flutningskostnað-
ur og kolefnissporið minnkar, svo er
þetta auðvitað táknrænt í umhverf-
ismálum. Við höfum verið að leggja
aukna áherslu á umhverfis mál hér
Afþakka jólatré númer 50 frá Noregi
Tréð sem Garðabær fékk að gjöf í fyrra var fellt í garði íbúa í Asker.
í bænum og erum að stíga öll þau
skref sem hægt er að stíga í því
sambandi hægt og bítandi því við
viljum vera umhverfisvæn, það er
engin spurning,“ segir Gunnar.
Bæjarstjórinn segir að þrátt fyrir
að tréð hafi verið afþakkað verði að
sjálfsögðu jólatré í bænum.
„Nú förum við bara á stúfana og
finnum fallegt jólatré í Heiðmörk
eða jafnvel í görðum bæjarbúa,“
segir hann. „Stundum hafa íbúar
óskað eftir því að losna við greni-
tré úr garðinum sínum og það má
vel vera að það dúkki eitthvað slíkt
upp.“ – bdj
SAMGÖNGUMÁL Rétt rúmur helm-
ingur þeirra sem tóku afstöðu í
könnun Zenter rannsókna fyrir
Fréttablaðið og fréttablaðið.is er
hlynntur Borgarlínu. Um fjórð-
ungur er andvígur og álíka margir
eru hvorki hlynntir né andvígir.
„Ég fagna bara þessum afgerandi
stuðningi en hann kemur mér hins
vegar ekki á óvart,“ segir Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri.
Fólk ruglað á
Borgarlínunni
Einnig var spurt um hvað Borgar-
lína væri. Rúm 58 prósent voru með
á hreinu að Borgarlína væri sérak-
reinar fyrir almenningssamgöngur.
Um 19 prósent sögðu Borgarlínu
léttlestakerfi, tæp 11 prósent hrað-
lestakerfi og jafnmargir að um spor-
vagna væri að ræða. 19,5 prósent
sögust ekki vita hvað Borgarlína er.
„Ég skil mjög vel að fólk sé svolítið
ruglað í þessu. Þeir sem halda utan
um verkefnið hafa ekki verið nógu
samhentir í skýringunum,“ segir
Hilmar Þór Björnsson arkitekt.
Sjá nánar á fréttablaðið.is. – sar
1 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
6
-D
E
7
C
2
4
0
6
-D
D
4
0
2
4
0
6
-D
C
0
4
2
4
0
6
-D
A
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K