Fréttablaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 14
10 milljarðar króna er heildar- fjárfesting lífeyrissjóða og Íslandsbanka í PCC. MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Alltaf til taks Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki Algjörlega hnökralaust Vodafone hentar mínum rekstri best. Þau hafa þjónustað okkur með allt sem þarf, algjörlega hnökralaust. Arion banki hyggst hætta f já rst uðning i v ið St a r-tup Reykjavík viðskipta- hraðalinn, samkvæmt heimildum Markaðarins. Bankinn hefur stutt við verkefnið frá árinu 2012 í sam- starfi við Icelandic Startups sem er rekið án hagnaðarsjónarmiða og aðstoðar frumkvöðla við að koma sprotafyrirtækjum á koppinn. Startup Reykjavík er tíu vikna viðskiptahraðall og þátttakendur fá 2,4 milljónir króna frá Arion banka í skiptum fyrir sex prósenta hlut í sprotafyrirtækinu. Einar Gunn- ar Guðmundsson, forsvarsmaður frumkvöðlamála Arion banka, mun í kjölfarið láta af störfum. Haraldur Guðni Eiðsson, for- stöðumaður samskiptasviðs, sagði í samtali við Markaðinn að málið væri í skoðun innan bankans. Frá árinu 2012 til ársbyrjunar 2019 nam heildarfjárfesting Arion banka í Startup Reykjavík 176 millj- ónum króna. Í sumar höfðu 78 fyrir- tæki farið í gegnum hraðalinn. Eignir Startup Reykjavík Invest, sem samanstóðu af 48 sprotum, námu 313 milljónum króna við árslok 2018. Bókfært virði byggir á viðskiptum annarra með hlutafé fyrirtækjanna. Að öðrum kosti eru fyrirtækin metin út frá líkum á árangri. Mest munar um rúmlega fjög- urra prósenta hlut í Authenteq, sem skapar rafræn skilríki, sem metinn er á 110 milljónir króna. Þá er tæplega fjögurra prósenta hlutur í Activ ity Stream, sem framleiðir næstu kynslóðar viðskiptahug- búnað, metinn á 41 milljón króna og rúmlega þriggja prósenta hlutur í Florealis, sem framleiðir jurta- lyf og lækningavörur, metinn á 32 milljónir króna. Á meðal annarra fyrirtækja í eignasafninu eru Klappir Grænar lausnir, sem skráð er á First North- hliðarmarkað Kauphallarinnar, Travelade og Wasabi Iceland. – hvj Arion banki hættir að styðja Startup Reykjavík Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður frumkvöðlamála. Unnið er að því að opna veit-ingastaðinn Dill, sem er sá eini á Íslandi sem skartað hefur Mich- elin-stjörnu, á ann- arri hæð í Kjörgarði á Laugavegi 59. Veit- ingastaðurinn Nostra var þar áður til húsa en honum var lokað í maí. Á meðal hluthafa er Gunnar Karl Gíslason kokkur sem opnaði Dill árið 2009, sam- kvæmt heimildum Markaðarins. Veitingahúsinu var lokað tíma- bundið í ágúst. Á sama tíma v a r t ve i m u r stöðum, sem reknir voru í sama húsi við H v e r f i s g ö t u 12 og lutu sama eignarhaldi, lokað fyrir fullt og allt. Gunnar Karl sagði við fjölmiðla við það tilefni að þungur rekstur Mikkeller & Friends og Systur hefði sligað Dill. Staðirnir hefðu allir verið reknir á sömu kenni- tölu og á sama veitingaleyfi. Gatnaframkvæmdir á Hverfis- götu hefðu ekki bætt stöðuna. Hann sagði að Dill hefði ekki farið í þrot, reksturinn hefði g e ng ið mjö g vel og aðsókn verið mikil frá upphafi. Ekki náð- ist í Gunn- ar Karl við vinnslu frétt- arinnar. – hvj Dill opnað í Kjörgarði Íslenskir lífeyrissjóðir, sem eru á meðal hluthafa kísilversins PCC á Bakka við Húsavík, hyggjast ekki leggja fyrir-tækinu til nýtt fjármagn í bili en áætlanir hafa gert ráð fyrir að kísilverið þurfi mögulega að fá innspýtingu að fjárhæð 40 millj- ónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 5 milljarða króna, svo að tryggja megi rekstrargrundvöll þess. PCC SE, sem á 86,5 prósent alls hlutafjár í kísilverinu, hafði leitað til sjóðanna um að koma að þeirri fjármögnun í samræmi við hlutfalls- legan eignarhlut lífeyrissjóðanna ásamt þýska fyrirtækinu, en lagt hefur verið upp með að hún yrði þá annaðhvort í formi nýs hlutafjár eða hluthafaláns. Boðað hefur verið til fundar hjá hluthöfum samlagshlutafélagsins Bakkastakks, sem er í eigu lífeyris- sjóða og Íslandsbanka og fer með 13,5 prósenta hlut í PCC, í næstu viku en samkvæmt heimildum Markaðarins áforma lífeyrissjóð- irnir að koma ekki með frekara fjármagn inn í rekstur kísilversins á þessari stundu. Vilja sjóðirnir að verksmiðjan nái fyrst stöðugum og fullum afköstum samfellt í nokkra mánuði, auk þess að sjá hvort við- snúningur verði í kísilverði á næst- unni, áður en þeir skuldbinda sig til að leggja fyrirtækinu til aukið fjár- magn. Miklar tafir og erfiðar aðstæður Leggja kísilveri PCC ekki til aukið fé í bili Lífeyrissjóðirnir hyggjast ekki leggja PCC til nýtt fjármagn á þessari stundu. Verksmiðjan þurfi fyrst að ná stöðugum og fullum afköstum í lengri tíma. Kísilverið þarf 40 milljóna dala innspýtingu. Viðræður í gangi um tafabætur. Gunnar Karl Gíslason. Árleg framleiðsla kísilversins PCC á Bakka við Húsavík á að nema 32 þúsund tonnum. á hrávörumörkuðum, þar sem kísil- verð hefur farið lækkandi samhliða tollastríði Bandaríkjanna og Kína, hafa einkennt starfsemi kísilversins en það var formlega gangsett í maí í fyrra. Þá hafa vandræði í hreinsi- virki verksmiðjunnar valdið því að slökkva hefur þurft á ljósbogaofnum en vonir standa til að hægt verði að byrja að starfrækja þá á fullum afköstum áður en árið er liðið. Íslenskir lífeyrissjóðir, meðal annars Gildi, Stapi og Birta, hafa auk þess í gegnum félagið Bakka- stakk fjárfest í breytanlegu skulda- bréfi útgefnu af kísilverinu PCC að fjárhæð 62 milljónir dala. Samtals nemur fjárfesting félagsins í kísil- verinu, bæði í forgangshlutafé og breytanlegu skuldabréfi, jafnvirði um tíu milljarða króna. Samkvæmt heimildum Markað- arins er áætlað að samkomulag til skamms tíma náist hjá hluthöfum sem feli þá í sér að PCC SE komi með aukið fjármagn í reksturinn auk þess sem rætt hefur verið um að lífeyris- sjóðirnir samþykki, í því skyni að bæta sjóðsstreymi kísilversins, að fresta tímabundið vaxtagreiðslum af breytanlega skuldabréfinu. Skulda- bréfið, sem var bókfært á nærri 9,5 milljarða króna í árslok 2018 í reikningum Bakkastakks, er með breytirétti og ber 8,5 prósenta vexti. Miðað við það nema árlegar vaxta- greiðslur af bréfinu því um 800 millj- ónum króna. Þá hafa einnig staðið yfir viðræður við þýska fyrirtækið SMS group GmbH, alverktaka byggingarfram- kvæmda PCC á Bakka, um tafa- bætur. Engar niðurstöður hafa enn fengist í þær viðræður en fallist SMS group á greiðslu slíkra bóta gæti það minnkað verulega það fjármagn sem hluthafar kísilversins þyrftu að öðrum kosti að leggja því til. Það er Summa rekstrarfélag sem hefur á síðustu vikum og mánuðum unnið að því að leita leiða sem séu færar til að bæta fjárhagsstöðu kísil- versins. Þá var í síðasta mánuði einn- ig leitað til Íslandsbanka til að kanna f leiri valkosti í tengslum við fjár- mögnun og eins mögulegar breyt- ingar á fjármagnsskipan félagsins. Framkvæmdir við verksmiðjuna hófust fyrst í júní árið 2015 og á árleg framleiðsla að nema um 32 þúsund tonnum. Eignir PCC BakkaSilicon námu um 360 milljónum dala í lok síðasta árs og var eigið fé félagsins um 40 milljónir dala. hordur@frettabladid.is 1 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN 1 6 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 6 -D 4 9 C 2 4 0 6 -D 3 6 0 2 4 0 6 -D 2 2 4 2 4 0 6 -D 0 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.