Fréttablaðið - 16.10.2019, Síða 23
KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 1 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 ÞÚ GETUR HJÁLPAÐ
Einkenni hjartastopps eru fyrst og fremst skyndilegt með-vitundarleysi og að öndun
stöðvast eða verður mjög óeðlileg,“
segir dr. Felix Valsson, svæfinga-
og gjörgæslulæknir á Landspítala.
„Þegar hjartastopp verður eru
sérfræðingar sjaldnast á staðnum.
Fyrstu viðbrögð eru þó tiltölulega
einföld og hafi þeir, sem þar eru
staddir, réttar upplýsingar geta
þeir veitt dýrmæta fyrstu hjálp og
jafnvel bjargað mannslífi,“ segir
Felix.
Mikilvægt sé að kalla strax á
hjálp, hringja í 112 ef unnt er og
gefa skýr skilaboð um hjartastopp
og staðsetningu.
„Strax á eftir því er nauðsyn-
legt að byrja hjartahnoð því með
hnoðinu fer blóðið á hreyfingu um
líkamann, þar með talið til heila
og hjarta. Með hjartahnoði setur
maður báðar hendur á miðhluta
bringubeins og þrýstir mjög fast,
helst svo að bringubeinið gangi
inn, sirka fimm til sex sentimetra,
og hnoðar svo 100 til 120 sinnum á
mínútu,“ útskýrir Felix.
Eftir hver 30 hnoð eru gefnir
tveir blástrar munn við munn.
„Ef sá sem hnoðar treystir sér
ekki til að blása af einhverjum
ástæðum er samt mjög mikilvægt
að halda stöðugt áfram að hnoða,“
segir Felix.
Námskeið og hjartastuðtæki
Námskeið í endurlífgun eru víðs
vegar í boði, oft á vegum vinnu-
veitenda.
„Með því að sækja slík námskeið
getum við bjargað fleiri mannslíf-
um og það hefur margoft sýnt sig að
þeir sem hafa sótt námskeiðin vita
hvað gera skal, jafnvel þó nokkuð
langt sé um liðið,“ upplýsir Felix.
Sömuleiðis þurfi sem flestir að
kynna sér notkun sjálfvirkra og
hálfsjálfvirkra hjartastuðtækja
sem nú eru komin mjög víða.
„Mikilvægt er að fólk kynni sér
hvar hjartastuðtækin er að finna,
því það getur skipt sköpum um
björgun,“ segir Felix.
Tækin tala við okkur
Hjartastuðtæki eru ótrúlega auð-
veld í notkun.
„Þegar þau hafa verið opnuð
og sett í gang byrja þau yfirleitt
að tala og leiða fólk með öryggi í
gegnum ferlið,“ útskýrir Felix.
Venjulega eru tveir límpúðar
með tækinu sem settir eru á sjúkl-
inginn og alltaf á bera húð.
„Á límpúðunum sést með
myndum hvar á að setja þá og
tækið gefur fyrirmæli um þetta.
Jafnframt því sem farið er að leið-
beiningum þarf stöðugt að halda
áfram að hnoða. Ef tveir eru saman
er best að annar hnoði á meðan
hinn sinnir tækinu,“ útskýrir Felix.
Tækið ákveði hvort það telji að
sjúklingurinn sé í „stuðanlegum
takti“.
„Ef tækið metur að svo sé biður
það nærstadda að færa sig fjær og
snerta ekki sjúklinginn á meðan
rafstuð er gefið og gefur svo raf-
stuð. Sum tæki biðja um að ýtt sé
á takka til að virkja stuðið. Það
er þá rauður blikkandi takki og
tækið segir hátt og skýrt: „Ýtið
á takkann“. Flest stuðtæki hér
á landi tala íslensku nema þau
sem eru í f lugvélum eða á öðrum
stöðum sem telja má alþjóðlega;
þar er tungumálið yfirleitt enska,“
útskýrir Felix.
Hjartastuðtækin veita einnig
leiðbeiningar um hnoð og blástur
og leiða viðkomandi í gegnum
ferlið.
„Oft eru merki þar sem þessi
tæki eru til staðar, með grænu
hjarta og brotinni ör í gegnum
það,“ segir Felix.
Þekkjum staðsetningu
hjartastuðtækjanna
Það getur skipt miklu um endur-
lífgun að geta leiðbeint þeim sem
koma fyrstir á staðinn um hvar
næsta hjartastuðtæki sé staðsett.
„Það er aðallega tvennt sem
bjargar sjúklingum sem fara í
hjartastopp,“ segir Felix. „Það er
að fá hjartahnoð og að það sé gert
f ljótt og rétt. Alls ekki hika við
að byrja að hnoða og gera það af
þrótti og ekki vera hræddur því
það eru í raun engar líkur á að
maður geti gert skaða sem neinu
nemur. Mögulega geta rif bein
brotnað en það er bara minni
háttar mál í stóra samhenginu.
Hitt atriðið er að fá rafstuðtæki
sem allra fyrst.“
Fyrstu viðbrögð mikilvæg
Þetta eru fyrstu viðbrögð og þau
geta skipt sköpum. Síðan koma
yfirleitt sérhæfðir sjúkraflutninga-
menn eða heilbrigðisstarfsfólk á
staðinn.
„Ef sjúklingurinn hefur náðst í
gang er hann fluttur á sjúkrahús og
þá hefst næsta stig meðferðar, sem
getur verið hjartaþræðing ef grun-
ur leikur á að orsökin sé krans-
æðastífla. Oft er tekin sneiðmynd
af höfði til að ganga úr skugga um
að ekki sé blæðing í heilanum.
Síðan hefst gjörgæslumeðferð
sjúklingsins, sérstaklega ef um er
að ræða meðvitundarleysi. Það
er alltaf ótti við skemmdir á heila
því hann þolir bara mjög stuttan
tíma án blóðflæðis,“ segir Felix en
hlutverk hjartahnoðsins er ekki
síst að halda blóðflæði til heilans
því hnoðið heldur pumpunni
gangandi að verulegu leyti.
„Ef tekst að koma hjartanu í takt
með rafstuði tekur það sjálft við
dælingunni sem er auðvitað það
æskilegasta,“ segir Felix.
Kæling hjálpar
Við hjartastopp hefur oft orðið
einhver skerðing því sjúklingar
geta verið meðvitundarlausir í ein-
hvern tíma.
„Þá hafa verið reyndar ýmsar
aðferðir til að minnka skaða.
Ein aðferðin er kæling, að kæla
sjúklinginn allan. Það sést mjög
greinilega þegar heilinn er kældur
að þá minnkar orkunotkun
heilans sem getur numið allt að
10 prósentum fyrir hverja gráðu
sem kælt er. Þannig er maður að
hvíla heilann á meðan hann er að
jafna sig,“ segir Felix sem vill árétta
eftirfarandi atriði:
n Hringið strax í 112 ef hjálpar er
þörf
n Ekki hika við að beita hjarta-
hnoði af krafti og festu
n Sækið endurlífgunarnámskeið
ef þið hafið möguleika á því
n Kynnið ykkur hvar hjartastuð-
tæki eru staðsett nálægt ykkur
n Munið alltaf að fyrstu viðbrögð
geta bjargað mannslífi
Hringja, hnoða og stuða
Dr. Felix Valsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir, segir hjartastuðtæki vera ótrúlega auðveld í notkun.
RÉTT VIÐBRÖGÐ
RÁÐA ÚRSLITUM!
HJARTASTOPP
Dr. Felix Valsson,
svæfinga- og
gjörgæslulæknir
hjá Landspítala,
segir tvennt
bjarga sjúklingum
sem fara í hjarta-
stopp; hjarta-
hnoð og hjarta-
stuðtæki. Hér
gefur hann góð
ráð um endur-
lífgun, fyrstu
viðbrögð við
hjartastoppi og
auðvelda notkun
hjartastuðtækja.
Hlutverk Hjartaheilla er:
l að sameina hjartasjúklinga,
aðstandendur þeirra og áhuga-
fólk um heilbrigt hjarta
l að stuðla að betri heilsu
og bættum
lífsgæðum
í íslensku
sam-
félagi, með
áherslu á
framfarir í
forvörnum,
fræðslu og með-
ferð hjartasjúk-
dóma
l að standa vörð um hagsmuni og
réttindi hjartasjúklinga
l að starfa faglega
l að framfylgja markmiðum sam-
takanna
Framtíðarsýn Hjartaheilla:
l Hjartaheill verði öflug hags-
munasamtök á sviði heilbrigðis-
mála á Íslandi með stóran og
virkan hóp félagsmanna.
l Hjartaheill verði leiðandi við að
bæta lífsgæði landsmanna með
eflingu forvarna og fræðslu um
hjartasjúkdóma.
Hjartaheill
1
6
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
6
-D
4
9
C
2
4
0
6
-D
3
6
0
2
4
0
6
-D
2
2
4
2
4
0
6
-D
0
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K