Fréttablaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 28
Það varð mér til
happs að það var
lögreglubíll í næstu götu
við mig sem pikkaði upp
kallið.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RÞÚ GETUR HJÁLPAÐ
Oddur hefur að eigin sögn alltaf verið mjög aktívur, hann er í fínu formi og
hefur alltaf lagt áherslu á að hreyfa
sig mikið og borða þokkalega
hollan mat. Það átti því enginn von
á að hann fengi hjartaáfall.
„Þetta gerðist 22. september
2018. Ég er úti að skokka með
félögum mínum og finn allt í einu
fyrir svima. En ég hafði aldrei
fundið fyrir neinum einkennum
áður. Ég segi æfingafélögunum að
ég sé eitthvað illa upplagður og
ætli þessa vegna að snúa við og
ætli að hitta þá hjá sundlauginni í
Kópavogi.“
Oddur sneri svo við og það
næsta sem gerist er að hann dettur.
„Ég fékk aðsvif og það leið yfir mig,
ég man alveg hvar ég var þegar
ég datt. Næst man ég eftir mér í
sjúkrabílnum. Ég heyri að sjúkra-
flutningamaðurinn er að tala við
hjartagáttina og þá átta ég mig
á því að eitthvað alvarlegt hefur
gerst.“
Vegfarandi kom til bjargar
Oddur segir að röð atvika honum
í hag hafi orðið til þess að ekki fór
verr. Hann var á fjölförnum stað
á Kársnesinu, veðrið var gott og
það voru margir þar að hreyfa sig.
Vegfarandi sem var að hjóla með
konunni sinni í nágrenninu sá Odd
detta. Hann fór strax að athuga
með hann, áttaði sig á að Oddur
andaði ekki og fann engan púls svo
að hann byrjaði strax hjartahnoð.
„Þessi ágæti maður heitir Guðni.
Hann brást hárrétt við sem skiptir
öllu máli í þessari atburðarás.
Hann kallar á annan mann og
biður hann að hringja á 112. Það
varð mér til happs að það var lög-
reglubíll í næstu götu sem pikkaði
upp kallið og var kominn á staðinn
á innan við fimm mínútum.“
Lögreglan tók við af Guðna og
hélt áfram að hnoða og svo kom
sjúkrabíllinn með hjartastuðtæki
og kom hjartanu í gang aftur. Allt
gerist þetta á nokkrum mínútum.
Oddur segir að yfirlæknir hjarta-
deildar Landspítalans segi hann
hafa verið einstaklega heppinn
í þessum aðstæðum. „Ég kom
til baka mjög sterkur, það urðu
engar varanlegar skemmdir á mér,
hjartabilun eða heilaskemmdir.
Læknirinn sagði að til þess að
komast á þann stað eftir svona
áfall megi ekki líða meira en 4-6
mínútur þar til hjálpin berst. En
ég er næstum alveg eins og ég var
áður, ég tek reyndar hjartalyf og
finn aðeins fyrir því en ég get gert
nánast allt sem ég gerði áður, ég er
farinn að æfa á fullu. Það er alveg
ótrúlegt.“
Hljóp 10 kílómetra
Oddur er nýkominn heim frá
Frakklandi þar sem hann hljóp 10
kílómetra í Lyon-maraþoninu. Það
Hjálpin barst innan mínútna
Oddur Ingason var úti að skokka með æfingafélögum sínum fyrir rúmu ári þegar hann fann allt
í einu fyrir svima. Stuttu seinna dettur hann í götuna og veit næst af sér í sjúkrabíl. Röð atvika
Oddi í hag varð til þess að honum var bjargað tímanlega og hann getur því sagt sögu sína.
Oddur var úti að hlaupa þegar hann féll í götuna. Sem betur fer var hann á fjölförnum stað og snör viðbrögð vegfaranda björguðu honum FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Oddur hefur alltaf lagt áherslu á hreyfingu sem hjálpaði honum að ná bata.
er lengsta vegalengdin sem hann
hefur hlaupið frá því hann fékk
hjartaáfallið í fyrra. „Það var mik-
ill sigur. Ég fann alveg tilfinninga-
rótið í mér þegar ég lauk hlaupinu.
Maður er enn að stíga upp úr þessu
áfalli. Ég hef unnið mikið í mér
en maður fer alveg á botninn eftir
svona áfall. Ég fór til sálfræðings
því ég var lengi vel hræddur eftir
þetta. Ég þorði til dæmis ekki að
fara að sofa því ég var viss um að ég
myndi ekki vakna aftur. Svo fékk
ég alls kyns skrítinn kvíða, sem er
kannski ekki svo skrítið miðað við
aðstæður,“ segir Oddur.
Í tilviki Odds var það of hátt
kólesteról sem varð til þess að
hann fékk hjartaáfall. Það eru
margir í fjölskyldu Odds með of
hátt kólesteról svo að hann var
búinn að vera í reglulegu eftirliti
í tæp 10 ár. „Ég fór árlega í tékk og
lét mæla öll helstu gildi, blóðgildi,
góða og slæma kólesterólið og lét
líka einstöku sinnum ómskoða í
mér hjartað. Ég var líka á lyfjum
við kólesterólinu svo þetta kom
mér algjörlega í opna skjöldu.“
Þar sem Oddur var í góðu líkam-
legu formi var hann fljótari að ná
sér en margir aðrir. Hann hefur
verið virkur í hreyfisamfélagi í
Garðabæ og stofnaði hlaupahóp
Stjörnunnar á sínum tíma, auk
þess hefur hann hjólað mikið.
Margir voru því mjög hissa þegar
hann fékk hjartaáfall.
„Fólk hugsaði af hverju hann, get
ég þá ekki fengið hjartaáfall? Fólk
vildi þess vegna heyra sögu mína.
En hjartasjúkdómar eru algengasta
dánarorsök Íslendinga, 33% þeirra
deyja úr hjartasjúkdómum. Margir
eru með undirliggjandi ættgenga
hjartasjúkdóma líkt og ég. Þú getur
verið að æfa og verið í toppformi
og samt dáið,“ segir Oddur og bætir
við að það hafi komið sér á óvart
að engin sérstök meðferðarúrræði
væru í boði fyrir fólk eins og hann,
sem er í góðu formi en fær samt
hjartaáfall. „Það eru allir settir inn
í sama rammann. Ég var ósáttur
við það. Ég fór í einn tíma í Endur-
hæfingarstöð hjarta- og lungna-
sjúklinga í Hátúni og hugsaði bara,
ég get ekki verið hér.“
Oddur fór því að leita að ein-
hverjum sem hefði svipaða sögu
og hann og fann einn sem hefur
verið honum innan handar. „Ég
er alveg viss um að ég get hjálpað
fólki í framtíðinni, með mína sögu.
Þorbjörn hjartalæknir sagði við
mig að hann hefði aldrei verið með
svona hjartasjúkling eins og mig,
í svona fínu standi og tilbúinn að
keyra sig í gang aftur. En það er
líka partur af minni heppni, þökk
sé bjargvætti mínum, honum
Guðna,“ segir Oddur.
HJARTASTOPP
1) Hringdu í 112!
2) Hnoðaðu!
3) Fáðu hjartastuðtæki!
1
6
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
6
-E
8
5
C
2
4
0
6
-E
7
2
0
2
4
0
6
-E
5
E
4
2
4
0
6
-E
4
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K