Fréttablaðið - 16.10.2019, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
STUNDUM VAR
ÚTKOMAN ÚR
MYNDUNUM BARA ALGJÖR
NEGLA, EITTHVERT LAG
SEM HÖFÐAÐI ROSALEGA
TIL MÍN.
Sími: 558 1100
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður Skeiði 1
* Taxfree tilboðið gildir á sófum, sófa borðum og púðum
og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Allir sófar á taxfree tilboði*
SÓFAR
TAXFREE
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
CLEVELAND
Hornsófi með tungu. Hægri eða
vinstri tunga. Dökk- eða ljósgrátt
slitsterkt áklæði.
Stærð: 308 × 140/203 × 81 cm
145.153 kr.
179.990 kr.
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga. Ljóst eða dökkgrátt
slitsterkt áklæði. Stærð: 231 x 140 x 81 cm
92.734 kr. 114.990 kr.
Aukahlutur á mynd:
Hnakkapúði, seldur sér.
Tó n l i s t a r m a ð u r i n n Halldór Eldjárn hefur ver ið heillaðu r a f geimnum og tunglinu síðan hann var lítill. Í vikunni gefur hann út
sína fyrstu sólóplötu þar sem hann
tvinnar saman sín helstu áhuga
mál; tónlist, forritun og tunglferðir.
Fréttablaðið settist niður með Hall
dóri og ræddi við hann um ferlið,
útgáfutónleika og hugmyndina
á bak við plötuna, sem er heldur
óvenjuleg.
„Þetta byrjar eiginlega allt á
því að NASA ákveður árið 2015
að opna fyrir aðgang að öllum
ljósmyndum sem voru teknar í
tunglferðunum. Þannig að á einu
bretti urðu aðgengilegar rúmlega
14 þúsund ljósmyndir frá tunglinu,“
segir Halldór. Myndirnar heilluðu
og fylltu hann löngun til að semja
út frá þeim tónverk. Og kannski er
það ekki skrýtið; Bandaríkjamenn
kenndu geimferðaáætlinar sínar við
gríska guðinn Appollon. Hann var
guð tónlistarinnar og má leiða líkur
að því að andagift hans hafi hellst
yfir Halldór þar sem hann skoðaði
myndirnar.
Rúmlega 14 þúsund lög
„Ég er náttúrulega algjört geim
ferðanörd,“ útsk ý r ir Halldór.
„Þannig að úr varð að ég skrifaði
lítið forrit sem getur greint innihald
myndar og samið lítið tónverk út frá
henni.“ Halldór er menntaður tölv
unarfræðingur og hefur í gegnum
tíðina prófað sig áfram með að
blanda saman forritun og tónlist.
„Upphaf lega er tónverkið Poco
Apollo vefsíða sem er aðgengileg á
netinu. Þar eru þér sýndar myndir
í handahófskenndri röð úr þessu
myndasafni NASA og svo er leikið
lag undir sem er sérstaklega tileink
að hverri mynd fyrir sig. Þannig að
lögin eru jafn mörg og myndirnar,
14.253 að mig minnir.“ Halldór
reynir síðan að útskýra hvernig
forritið virkar fyrir hálftækni
heftum blaðamanni, sem skilur þó
lykilatriðið: „Ef það er mikið inni
á myndinni, tunglgrjót og svona,
þá verður tónverkið rytmískt og
meira í dúr en ef það er lítið
á myndinni, kannski bara nánast
allt svart og einn lítill hnöttur í
miðjunni, verður það meira í moll,
mun dekkra og hægara.“
Platan er svo unnin út frá for
ritinu en Halldór f letti í gegnum
um hundrað myndir af vefsíðunni
og valdi fjórar til að semja stærri
verk út frá. „Stundum var útkoman
úr myndunum bara algjör negla,
eitthvert lag sem höfðaði rosalega
til mín. Annað fannst mér hrein
lega leiðinlegt, en getur vel verið
að einhverjum öðrum finnist það
kannski skemmtilegt,“ segir hann.
„En ég valdi þarna fjögur lög sem
mér fannst flottust og svo verða sex
lög á plötunni; tvö sem verða svona
aukaútsetningar á einu þeirra.“
Heltekinn af tunglinu
En hvað er það sem vakti áhuga
Halldórs á tunglinu? Eftir langa
umhugsun kemst hann að því að
líklega megi skrifa delluna á þá
félaga Tom Hanks og Kevin Bacon.
„Ég horfði ófáum sinnum á mynd
ina Apollo 13 og held að þar hefj
ist minn geimáhugi. Houston, we
have a problem og allt það. Svo er
ég orðinn alveg heltekinn af tungl
inu þegar ég er svona 14 ára og man
eftir mér þar sem ég var að labba í
skólann og starði bara á tunglið alla
leiðina.“
„Þá fór ég oft að upplifa mig öðru
vísi. Í staðinn fyrir að ég væri ein
hver eining hér á jörðinni leið mér
oft eins og ég væri hreinlega bara
á tunglinu og sæi jörðina að utan,“
heldur Halldór áfram. „Og það er
nú einmitt talað um að menn verði
brjálaðir af þessu, þess vegna er
það kallað lunatic á ensku. Það eru
þeir sem hafa týnt sér í að stara á
tunglið.“
Halldór heldur útgáfutónleika
á morgun í Iðnó þar sem platan
verður spiluð í heild sinni. Þeir
munu þá hefjast á skemmtilegri við
bót sem er ekki að finna á plötunni,
hans eigin persónulegu tengingu
við fyrstu tungllendinguna. Hann
hefur samið lítið verk í kringum
ávarp forseta Íslands frá því árið
1969 þar sem hann fjallaði um
þennan ótrúlega áfanga, en það
var afi Halldórs, Kristján Eldjárn,
sem gegndi þá embættinu. „Þetta
er of boðslega falleg ræða, hann var
náttúrulega snilldarræðumaður og
talaði mjög fallega og góða íslensku.
Mér fannst ég þurfa að semja eitt
hvað við hana þannig að ég tók
ræðuna og samdi lítið lag undir sem
verður intróið á tónleikunum.“´
Miða á tónleika Halldórs er hægt
að nálgast á tix.is. Plötuna Poco
Apollo verður hægt að nálgast á
öllum helstu streymisveitum frá
og með næsta föstudegi.
ottar@frettabladid.is
Tóngerir tunglferðir
Halldór Eldjárn gefur út sína fyrstu sólóplötu í vikunni þar sem
hann tvinnar saman sín helstu áhugamál; tónlist, forritun og
tunglferðir. Hann heldur útgáfutónleika í Iðnó annað kvöld.
Annað kvöld fara fram útgáfutónleikar Halldórs Eldjárn fyrir plötuna Poco Apollo í Iðnó. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Meira á frettabladid.is
1 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
6
-D
9
8
C
2
4
0
6
-D
8
5
0
2
4
0
6
-D
7
1
4
2
4
0
6
-D
5
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K