Fréttablaðið - 25.10.2019, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 4 9 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
Hlaðinn fjölskyldubíll
Nýr Passat GTE
Rafmagn og bensín
Veldu þinn uppáhalds á
www.hekla.is/volkswagensalur
Tengiltvinnbíll
Haustið er komið í borgina og var mikill öldugangur við Sæbrautina síðdegis í gær. Vel búinn ferðamaður lét brimrótið lítið á sig fá enda hluti af upplifuninni af Íslandi. Veðrið er þó
talsvert verra annars staðar á landinu. Gul viðvörun var á öllu Norðurlandi í gær og er appelsínugul viðvörun á Suðausturlandi fram til hádegis í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SAMGÖNGUR Kínverska flugfélagið
Juneyao Air hyggst hefja f lug til
Íslands næsta vor. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins er áætlað að
félagið fljúgi frá borginni Shanghaí
til Íslands með viðkomu í Helsinki,
allt að þrisvar í viku.
Juneyao Air var stofnað árið
2006 og á 72 farþegaflugvélar sem
samanstanda af Airbus A320 vélum
og Boeing 787 Dreamliners vélum.
Í leiðakerfi f lugfélagsins eru 160
flugleiðir sem tengja stærstu borgir
Kína og nágrannaríkin. Farþegar
á árinu 2018 voru yfir 18 milljónir.
Félagið er þátttakandi í f lugbanda-
laginu Star Alliance.
Félagið hóf í lok júní í ár beint
daglegt f lug til Helsinki frá Shang-
hai Pudong f lugvellinum. Það er í
samstarfi við finnska f lugfélagið
Finnair um leiðakerfi.
Ef af yrði myndi flug Juneyao Air
teljast utan Schengen við komuna
til Keflavíkur þrátt fyrir viðkomuna
í Helsinki.
Loftferðasamningar milli ríkja
kveða á um að f lugfélög njóti til-
nefningar frá viðkomandi stjórn-
valdi. Ekki er ljóst hvort Juneyao
Air hefur slíkar tilnefningar frá kín-
verskum stjórnvöldum.
Fleiri kínversk f lugfélög hafa
áhuga á Íslandi.
Í sumar var greint frá því að
Tinajin Airlines hefði sótt um
þrjá afgreiðslutíma í hverri viku á
Keflavíkurflugvelli fyrir komandi
vetur. Þar var gert ráð fyrir f lugi
frá Wuhan til Helsinki og þaðan
til Íslands. Þeim áformum hefur
nú verið seinkað fram á næsta ár.
Félagið hefur einnig skoðað mögu-
leika á f lugi frá Wuhan til Íslands í
gegnum Brussel í Belgíu.
Að auki hafa tvö önnur flugfélög
verið að kanna flug til Íslands. Ann-
ars vegar ríkisflugfélagið Air China
sem er langstærsta f lugfélag Kína
og eitt stærsta flugfélag heims. Það
flutti yfir 100 milljónir farþega árið
2017. Það f lýgur nú til 232 áfanga-
staða í heiminum. Hins vegar Beij-
ing Capital Airlines sem er mun
minna flugfélag en í eigu kínverska
flugrisans Hainan Airlines.
Heimildarmenn Fréttablaðsins
telja líklegra að áform Air China
verði að veruleika en Beijing Capi-
tal Air lines. Kannar Air China nú
möguleika á flugi frá höfuðborginni
Peking til Íslands með viðkomu í
Kaupmannahöfn.
arib@frettabladid.is
Hyggjast fljúga til Íslands í vor
Kínverska flugfélagið Juneyao Air hyggst hefja flug frá Shanghaí til Íslands næsta vor. Ríkisflugfélagið
Air China er einnig að skoða möguleika á flugi á milli Peking og Keflavíkur í gegnum Kaupmannahöfn.
Juneyao Air er með daglegt flug mili Shanghai og Helsinki. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
VIÐSKIPTI Sérfræðingur í sam-
keppnisrétti segir fyrirhugaðar
breytingar á samkeppnislögum
ekki fela í sér neinn afslátt á fram-
fylgd samkeppnisreglna. Reglurnar
verði sambærilegar þeim sem gilda
í nágrannalöndum.
„Allt tal um að verið sé að veikja
Samkeppniseftirlitið finnst mér
vera ósannfærandi. Ef frumvarpið
nær fram að ganga verða sam-
keppnisreglur hér á landi mjög
sambærilegar þeim sem gilda í
nágrannaríkjum okkar og engin
ástæða er til að ætla annað en að
þær muni virka sem skyldi,“ segir
Heimir Örn Herbertsson, sér-
fræðingur í samkeppnisrétti og
lektor við Háskólann í Reykjavík.
– tfh / Sjá síðu 4
Fela ekki í sér
afslátt á reglum
Heimir Örn
Herbertsson
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
5
-8
B
E
C
2
4
1
5
-8
A
B
0
2
4
1
5
-8
9
7
4
2
4
1
5
-8
8
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K