Fréttablaðið - 25.10.2019, Qupperneq 14
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ísak J. Guðmann
Holtateigi 16, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 29. október kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Líknarsjóð Oddfellowa eða önnur líknarfélög.
Auður Þórhallsdóttir
Guðlaug Halla Ísaksdóttir Gunnlaugur Frímannsson
Kári Í. Guðmann Hrafnhildur Stefánsdóttir
Jón Í. Guðmann Arna Þöll Arnfinnsdóttir
Anna María Guðmann Adam Traustason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Jóhann Ásgeirsson
Miðvangi 31, Hafnarfirði,
lést 19. október á Sólvangi.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði, mánudaginn
28. október klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Alzheimersamtökin.
Anna Guðbjörg Erlendsdóttir
Anna Karen Kristjánsdóttir Björn H. Arnar
Kristína V. Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jónas Ásmundsson
fv. aðalbókari Háskóla Íslands,
lést í faðmi fjölskyldunnar
á dvalarheimilinu Grund
aðfaranótt 19. október.
Jarðsungið verður frá Digraneskirkju fimmtudaginn
31. október klukkan 13.
Guðrún Jóna Jónasdóttir Ingi Halldór Árnason
Ásmundur Jónasson Guðrún Vignisdóttir
Gylfi Jónasson Ásdís Kristmundsdóttir
Helgi Þór Jónasson Kristín Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, dóttur,
móður, tengdamóður, ömmu og
systur okkar,
Ölmu Jónsdóttur
ritara,
Arnarsmára 24, Kópavogi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Landspítalans.
Jón Friðhólm Friðriksson
Rósa Jónsdóttir
Jónas Guðbjörn Jónsson Helga Sigrún Þórsdóttir
Eiríkur Jónsson Kristjana Árnadóttir
Jón Grétar Jónasson María Sigrún Jónasdóttir
Eva Natalie Eiríksdóttir Nadia Liv Eiríksdóttir
systkini og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir
amma og langamma,
Anna Guðmundsdóttir
til heimilis að Blásölum 24, Kópavogi,
lést á deild 7a á Borgarspítalanum
14. október. Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 7a fyrir alúð, hlýhug
og góða umönnun í veikindum hennar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Matthías Daði Sigurðsson
Guðmundur Jón Friðriksson
Jóhann Magnús Friðriksson
Finnur Daði Matthíasson
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Önnu Guðrúnar
Bjarnardóttur
(Diddu í Holti)
Sérstakar þakkir til starfsfólks
lyflækningadeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
fyrir góða umönnun og hlýju.
Jóhanna Sigríður Harðardóttir Már Ólafsson
Sigurður Jónsson
Björn Harðarson
Anna Harðardóttir Sigurður Kristinsson
Sigurður Harðarson Manon Laméris
barnabörn og barnabarnabörn.
Við sendum innilegar þakkir öllum
þeim sem sýndu okkur samúð,
hlýju og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Guðna Sveins Jóhannssonar
Sunnubraut 6,
Þorlákshöfn.
Geirlaug Sveinsdóttir
Jóhann Sveinsson Hafdís Björk Guðmundsdóttir
Ólafur Helgi Ólafsson
Bjarni Ágúst Sveinsson Þóra Birna Gísladóttir
barnabörn og langafabörn.
Jú, það er að bresta á, ég get ekki spornað við því,“ segir Skúli Gauta-son þegar hann er spurður hvort
það sé ekki rétt sem í afmælisreg-
istri Fréttablaðsins stendur að hann sé
að fylla sjötta tug ára. Í því registri er
hann reyndar titlaður leikari, snigill
og tónlistarmaður en nú starfar hann
sem menningarfulltrúi Vestfjarða og
hefur gert í þrjú ár. Hann er skráður til
heimilis á Víðidalsá við Hólmavík en er
á Akureyri þegar samtal okkar fer fram.
„Fjölskylda mín er hér fyrir norðan og
ég þvælist svolítið á milli, á hús á báðum
stöðum en bý fyrir vestan og er mikið á
flandri um Vestfirði. Víðidalsá er gamall
bóndabær innst í Víðidal sem við hjónin
keyptum fyrir mörgum árum og ég hef
verið að dunda við að gera upp síðan.“
Ekki kveðst hann þó eiga rætur í
Strandasýslunni. „Ég bara var þar
dálítið við að leikstýra hjá leikfélagi
Hólmavíkur sem er öf lugt leikfélag og
varð ástfanginn bæði af mannlífinu og
náttúrunni svo við keyptum þar hús til
að hafa sem sumarhús og þar bý ég nú.
Inntur eftir því í hverju starf hans
felist svarar Skúli: „Ég sé um Uppbygg-
ingarsjóð Vestfjarða, úthlutunarnefnd
sér um að veita styrkina, ég er bara
starfsmaður sjóðsins. Það eru um 50-60
milljónir á ári sem deilt er út. Svo reyni
ég að hvetja fólk til dáða og aðstoða það
við að efla menninguna á Vestfjörðum,
eins og þeir leggja sig.“
Það gefur augaleið að starfinu fylgja
mikil ferðalög. „Já, þetta er mikill akst-
ur. Þegar ég tók við starfinu fór ég f ljót-
lega á bílasölu og sagði að nú vantaði
mig bíl og það eina sem skipti máli væri
að hann færi vel með mig, því ég ætlaði
nánast að búa í honum. Svo ég fékk mér
stóran Citroën sem er algert töfrateppi.
Fyrst var ég eitthvað að brölta þarna
á jeppa en þá var einn ágætur sveitar-
stjóri sem beinlínis skammaði mig og
spurði hvað ég væri að þvælast um í alls
konar veðrum og ófærð. „Annaðhvort
kemstu með góðu eða þú ert bara heima
hjá þér, þú átt ekkert að vera að brjótast
áfram uppi á heiðum þegar tvísýnt er
um færð,“ sagði hann.
Nú segir hann nýjustu fregnir herma
að minnka eigi moksturinn á svæðinu
og hætta að skafa klukkan sjö á kvöldin.
Það líst honum illa á.
En að afmælinu sem er aðaltilefni
viðtalsins. Hvernig eru plönin fyrir
daginn?
„Ég ætla að halda smá veislu fyrir
fjölskyldu og nánustu vini hér heima
í Litla-Garði sem er gamall bóndabær
skammt frá Akureyrarf lugvelli. Fjöl-
skyldan mín er þar. Hér er hlaða sem ég
breytti í hálfgert menningarhús. Ég tel
hana vera gott tónleikahús og margir
sem hafa komið þar fram styðja þá
kenningu. Hún verður örugglega stað-
fest í kvöld, ég reikna með að lagið verði
tekið í Litla-Garði!“
gun@frettabladid.is
Á tvo bóndabæi hvorn
í sínum landshlutanum
Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarða, er sextugur í dag og er kominn í Eyja-
fjörðinn til að fagna því með fjölskyldunni og nánustu vinum í eigin menningar-
húsi. Hann vílar ekki fyrir sér að keyra á milli enda vanur flandri úr vinnunni.
Hér er Skúli með konunni sinni Þórhildi Örvarsdóttur fyrir utan Hlöðuna, ásamt tíkinni Loppu. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN NÍELSSON
Fyrst var ég eitthvað að brölta
þarna á jeppa en þá var einn
ágætur sveitarstjóri sem bein-
línis skammaði mig og spurði
hvað ég væri að þvælast um í
alls konar veðrum og ófærð.
2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
5
-9
A
B
C
2
4
1
5
-9
9
8
0
2
4
1
5
-9
8
4
4
2
4
1
5
-9
7
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K