Fréttablaðið - 25.10.2019, Qupperneq 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
Ég var sautján ára þegar ég datt á milli hæða heima og skaddaðist illa frá mjöðm og
upp í efstu hryggjarliði. Á sama
tíma spilaði ég lykilhlutverk með
knattspyrnu- og handboltaliðum
ÍBV en var tilneydd til að hætta
vegna meiðslanna,“ segir Svava
Kristín Grétarsdóttir, f lugfreyja og
íþróttafréttamaður á Stöð 2.
„Á nýju heimili okkar í Eyjum
var brattur bráðabirgðastigi sem
ég stökk upp til að skamma litla
bróður minn en datt þá fram
fyrir mig og datt út. Ég fékk enga
meðhöndlun en læknir sem var
kallaður til sagði að það væri ekk-
ert að mér og að ég ætti að hætta
í þessum helvítis íþróttum, þótt
slysið hefði ekki gerst við íþrótta-
iðkun. Eftir að hafa verið rúmliggj-
andi í nokkrar vikur reyndi ég að
mæta aftur á æfingar en meiðslin
öftruðu mér og ég þurfti að kveðja
íþróttaferilinn,“ segir Svava sem á
enn í meiðslunum og fer reglulega
í meðferð hjá kírópraktor til að
halda sér gangandi.
„Ég hef brennandi áhuga á
íþróttum en fékk ekki tækifæri til
að fá leiða á þeim eins og gengur.
Því var ég lengi uppfull af öfund út
í alla sem gátu spilað en í kjölfarið
byggðist upp brjálaður áhugi á
íþróttafréttum og mér finnst gott
að geta tekið hann út á öðrum
sviðum.“
Neitaði að gefast upp
Svava Kristín fæddist í Vest-
mannaeyjum í marsmánuði 1990.
Þar sleit hún barnsskónum en
flutti upp á land þegar hún stóð á
tvítugu.
„Þá var annar yngri bræðra
minna á leið í skipstjórnarnám og
gat ekki hugsað sér að búa einn í
Reykjavík. Ég fór því með honum
sem var mjög jákvætt fyrir mig.
Ég var tilbúin að fara frá Eyjum og
breyta til. Ég setti mér strax mark-
mið um að komast í vinnu við fjöl-
miðla og sótti því strax um vinnu
hjá 365,“ segir Svava sem fékk
fljótlega vinnu í þjónustuveri 365
þar sem hún einsetti sér að komast
inn á íþróttadeild Stöðvar 2.
„Ég neitaði að gefast upp og fékk
fyrsta tækifærið í afleysingum
á fréttastofunni sumarið 2015.
Í millitíðinni hef ég svo sinnt
íþróttaumfjöllun á Vísi en er nú
aftur komin á fréttavaktina á
skjánum. Þar líður mér vel og í
framhaldinu hafa mér hlotnast
skemmtileg tækifæri eins og að
sjá um Seinni bylgjuna, kvenna-
þátt um handbolta,“ segir Svava en
handbolti er hennar líf og yndi.
„Ég æfði og lék fótbolta og
handbolta með ÍBV upp alla yngri
f lokkana. Ég var mjög góð, þótt ég
Svava Kristín segist hálfgerður strákur í sér eftir að vinkonur hennar lokuðu á hana á unglingsárunum en strákarnir tóku hana að sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
því ég talaði á móti henni,“ segir
Svava og heldur áfram:
„Við fórum sex stelpur úr Eyjum
til að taka þátt í Ungfrú Suðurland
og fannst frábær hugmynd að geta
verið saman á Selfossi allar helgar.
En svo komumst við tvær áfram og
báðumst undan því að fara í Ung-
frú Ísland. Það reyndist ekki í boði
svo við héldum áfram en árið 2010
var umræða um líkamsvirðingu og
sjálfsást ekki mikil og maður átti
bara að grenna sig um fimmtán
kíló og vera á horriminni. Ég reifst
við konuna sem kenndi okkur að
ganga um sviðið á bikiníi því hún
vildi að við gengjum um berfættar
af þeirri ástæðu að værum aldrei í
hælaskóm í bikiníi. Ég svaraði því
til að það meikaði engan sens því
ekki værum við heldur á bikíníi
á Broadway. Það varð allt vitlaust
en ég kláraði keppnina, skæl-
brosandi í síðkjól, og bar ekki sigur
úr býtum þegar Fanney Ingvars-
dóttir var valin Ungfrú Ísland,“
segir Svava sem hefur aldrei legið
á skoðunum sínum og lætur fólk
hiklaust vita ef hún er ósátt.
„Það eru stærri hlutir og erfiðari
sem kenna manni meira en
fegurðarsamkeppni. Ég hef gengið
í gegnum nokkur erfið tímabil en
það hvernig maður svarar mótlæti
og áföllum í lífinu er mesti skólinn.
Eins og þegar ég datt í stiganum
heima og missti besta vin minn
um síðustu jól. Það er lífsreynsla
sem hefur kennt mér mikið.
Þegar maður missir einhvern sér
nákominn skynjar maður svo vel
hversu mikilvægt er að njóta og að
lífið sé núna. Sú gríðarþunga sorg
sýndi mér fram á hversu heitt og
mikið ég elska fjölskyldu mína og
vini. Það er svo dýrmætt að halda
fast í góð tengsl og sorgin kenndi
mér að maður gengur ekki að ást-
vinum sínum vísum. Því þurfum
við að njóta hverrar mínútur sem
maður fær með sínum nánustu,“
segir Svava og minnist vinar síns,
Kolbeins Arons Arnarsonar, mark-
varðar ÍBV í handbolta, sem varð
bráðkvaddur á aðfangadag í fyrra.
„Það var óbærilega erfiður
tími og þótt allur tími sé virki-
lega slæmur til að deyja held ég að
aðfangadagur sé erfiðastur.“
Missti allan vinahópinn
Í vinahópnum er Svava hrókur alls
fagnaðar, með hresst viðhorf til
lífsins og ekki höll undir dramatík.
„Fólk veit alveg af því þegar ég
er mætt og ég slæ öllu upp í grín og
létta kaldhæðni enda tek ég sjálfa
mig ekki of hátíðlega. Ég er oftar
en ekki potturinn og pannan í því
að skipuleggja samfundi vina-
hópsins enda er svo óskaplega
gaman að vera saman. Ég lenti í
því sem unglingur að missa allan
vinahópinn þegar vinkonur mínar
lokuðu á mig og ég lenti í andlegu
einelti. Sökum þess er ég alltaf til
staðar fyrir vini mína, hvað sem
á gengur, og ég finn að þeir meta
það mikils. Ég er alltaf til staðar,
vil vera til staðar og þeir vita að
þeir geta leitað til mín hvenær sem
er,“ segir Svava um vinahóp sinn
sem er ekki sá sami og skildi hana
útundan í Vestmannaeyjum á
unglingsárunum.
„Ég flutti frá Eyjum strax eftir
10. bekk, um leið og ég komst
burtu, enda hafði ég þá verið án
vina í tvö ár. Ég þorði ekki lengra
frá Vestmannaeyjum en á Selfoss
og bjó á heimavist Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Það voru stelpurnar
sem höfðu lokað á mig en strák-
arnir í vinahópnum reyndust
mér enn góðir vinir. Einn daginn
spurði einn þeirra hvers vegna
ég væri farin á Selfoss og ég sagði
honum ástæðuna. Þá sagði hann:
„Svava, þú þarft ekki stelpurnar.
Þú átt okkur,“ og tók mig að sér
í strákahópnum. Því eru allir
mínir bestu vinir strákar en ég á
líka góðar vinkonur. Þetta gerir
að verkum að ég er ansi strákaleg
og finnst ég því aldrei vera stelpa
í þeim strákaheimi sem íþrótta-
fréttamennskan er.“
Svava segist ekki vita hvers
vegna vinkonur hennar í Eyjum
sneru við henni baki.
„Ég hef aldrei fengið útskýringar
á því; þær hættu bara að tala við
mig. Ég hætti meira að segja í fót-
boltanum á tímabili en svo tók
þjálfarinn mig á aukaæfingar og
ég mætti í leiki en ekki á æfingar
með stelpunum. Seinna fékk
þjálfarinn þær til að tala við mig
og biðjast afsökunar en við urðum
aldrei vinkonur aftur. Ég gerði
bara mitt og mætti á æfingar og
leiki en hafði engan félagsskap út
úr því. Þetta var erfið lífsreynsla
sem breikkaði bakið og ég lærði
að meta þá sönnu vini sem ég á.
Auðvitað er ég svolítið brennd
eftir þetta og get orðið dramatísk
ef vinir mínir svara mér ekki f ljótt
en ég á bestu vini í heimi og er á
virkilega góðum stað í dag.“
Draumaprinsinn ófundinn
Svava er einhleyp og nýtur þess að
búa í höfuðstaðnum með tíkinni
sinni, Arven, sem hún nefndi eftir
uppáhalds söguhetjunni sinni úr
Lord of the Rings.
„Mér finnst fátt skemmtilegra en
að hitta góða vini og njóta lífsins.
Ég mæti á alla boltaleiki sem ég
kemst á og kýs alltaf handbolta-
leik fram yfir bíóferð. Íþróttir eiga
hug minn allan en mér finnst líka
gaman að gera heimilið fallegt og
nýt þess að fara í búðir, breyta og
bæta með bestu vinkonu minni
sem er innanhússarkitekt og veitir
mér mikinn innblástur. Það kemur
líka fyrir að ég kíki á tónleika og
djammið en ég er komin á þann
aldur að allir vinirnir eru komnir
með börn og allt er að róast,“ segir
Svava sem á sér einnig draum um
að eignast fjölskyldu og barna-
skara þegar þar að kemur.
Hún er einhleyp í dag og segist
ekki enn hafa fundið drauma-
prinsinn.
„Það verður einhver sætur og
skemmtilegur en það er fyrir öllu
að hann passi vel inn í vinahópinn
minn.“
Lengri útgáfa af viðtalinu við
Svövu Kristínu er á frettabladid.is
segi sjálf frá, og leikmenn sem ég
tek viðtöl við í dag muna eftir mér.
Að þurfa að hætta í boltanum var
því rosalega mikill missir því ég
tók ekki bara þátt heldur elskaði
boltann og æfði upp fyrir mig
með eldri stúlkum. Hvort ég hefði
mögulega lent í landsliðinu er ekki
gott að segja en ég var algjörlega
í fremstu röð og eftir slysið var
ég svo dramatísk að labba fram
hjá fótboltavellinum með tárin
í augunum yfir því að geta ekki
sjálf tekið þátt en ég gat auðvitað
ekkert gert. Því var það algjör sigur
þegar það hafðist loks að komast í
íþróttafréttirnar,“ segir Svava.
Uppreisnargjörn fegurðardís
Svava tók þátt í fegurðarsam-
keppni Íslands árið 2010.
„Það er nú varla í frásögur
færandi en keppnin hentaði mér
illa og ég reyndist uppreisnargjarn
keppandi. Í dómaraviðtalinu varð
allt vitlaust þegar sett var út á það
að ég borðaði of mikið Nóa kropp
og gæti orðið feit á sviðinu. Ég
spurði hvort það væri grín enda
liti ég ekkert eðlilega vel út. Mér
hentaði ekki að vera í þessum
fullkomna bjútíheimi og allt í
kringum mig varð að katastrófu.
Ég veit að mikil óánægja var með
mig á meðal eigenda keppninnar
Ég hef gengið í
gegnum nokkur
erfið tímabil en það
hvernig maður svarar
mótlæti og áföllum í
lífinu er mesti skólinn.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
5
-A
E
7
C
2
4
1
5
-A
D
4
0
2
4
1
5
-A
C
0
4
2
4
1
5
-A
A
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K