Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 30
Komat’su hybrid
beltagrafan eyðir
um 20% minna eldsneyti
en Komat’su vél af sömu
þyngd sem gengur bara
fyrir eldsneyti.
Útvegum beint frá framleiðanda fjarstýrðar, stólpalyftur fyrir stóra bíla.
Lyftigeta: 30 tn. (7,5tn pr. stólpa), mesta hæð: 1820mm.
(Rafknúið vökvakerfi.)
Mjög öruggar og þægilegar í notkun.
Tveggja ára ábyrgð framleiðanda. Afgreiðslufrestur allt að 3 mánuðum.
Frekari upplýsingar hjá umboðsaðila:
Gott Á.R. ehf. véladeild
Laugavegi 178, 105 Reykjavík -Sími: 6983144
MAXIMA bílalyftur
Fyrst og fremst gæði og öryggi.
• Kapla laus. (Gert er ráð fyrir hleðslu þegar þær eru ekki í notkun.)
• Nothæf hvar og hvenær sem er
• Engin hætta á skriði.
• Upplýsingar af skjá:
- Lyftihæð á rauntíma.
- Fylgist stöðugt með ástandi rafgeyma.
- Leiðbeiningar til úrbóta ef eitthvað bjátar á.
• Stöðvast sjálfkrafa þegar fullri hæð er náð.
• Öryggis rofi og “mekanísk” læsing.
• Sjálfvirk stöðvun við 50mm hæðarmun.
• Lyfturnar virka eðlilega þó álag á þær sé misjafnt.
• Ný gerð loftnets.
• Neyðarrofi á hverjum stólpa ef nauðsyn krefur.
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
14 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
Rubix á Íslandi sérhæfir sig í sölu á varahlutum og iðn-aðarvörum til viðgerða og
rekstrar. Það hóf starfsemi sína á
Íslandi árið 2007, þá undir merkj-
um Brammer. Þremur árum síðar
var Brammer Ísland ehf. stofnað og
starfaði það sem sjálfstæð eining.
Eftir samruna Brammer Group og
fyrirtækisins IPH-Group árið 2017
var nafninu síðan breytt í Rubix.
„Orðið Rubix er tengt við lausnir
á vandamálum. Nafnið á að gefa
til kynna skapandi og mannlega
nálgun okkar í leit að lausnum
fyrir viðskiptavini,“ segir Jóhann
Benediktsson, forstjóri Rubix á
Íslandi.
Jóhann segir að Rubix á Íslandi
sé hluti af evrópsku keðjunni
Rubix-Group, sem velti rúmlega
2,3 milljörðum evra árið 2018.
Aðaleigandinn er bandaríski
fjárfestingarsjóðurinn Advent
International.
Að sögn Jóhanns eykst framboð
á þjónustu og vöru sem viðskipta-
vinir Brammer þekkja vel með
tengingunni við Rubix. „Við-
skiptavinir okkar hér á landi njóta
þess meðal annars að fá aðgang að
8.000 sérfræðingum hvaðanæva
úr Evrópu. Þeir búa yfir góðum
skilningi á þörfum viðskipta-
vinarins sem kemur að góðum
notum fyrir þá,“ segir Jóhann.
Rubix á Íslandi rekur tvær
starfsstöðvar; eina á Reyðarfirði
sem þjónustar starfsemi álversins
Alcoa Fjarðaáls, og aðra við Dalveg
í Kópavogi, þar sem verslun, vöru-
hús og verkstæði er að finna.
Starfsmenn fyrirtækisins eru
um 40 en auk sölu á varahlutum
og rekstrarvörum er einnig boðið
upp á þjónustu eins og smíði á
vökva- og loftslöngum og sam-
setningu á stýriskápum fyrir
vökvakerfi.
„Við hjá Rubix ætlum að vera
markaðsleiðandi fyrirtæki hér
á landi í sölu á varahlutum og
iðnaðarvörum og þjónusta fyrir-
tæki með sérsniðnum lausnum.
Hvort sem það er sala varahluta,
viðgerðarþjónusta, iðnaðarsjálf-
salar, starfsstöð innan fyrirtækis
eða annað,“ segir Jóhann.
Brammer Ísland
verður Rubix
Til eru tvær mismunandi gerðir af hybrid beltagröfum Komat’su, það er annars
vegar Komat’su HB215LC-3 sem
er 23 tonn að þyngd og Komat’su
HB365LC-3 sem er 37 tonn að
þyngd.
Halldór Ólafsson, sem þekkir
Komat’su hybrid beltagröfurnar
hér á Íslandi mjög vel, segir að
ein slík vél eyði um 20% minna
eldsneyti en Komat’su vél af sömu
þyngd sem gengur bara fyrir elds-
neyti, og hybrid vél getur sparað
allt að 40% meira eldsneyti. Fyrir
utan það eru vélarnar hljóðlátari
en venjulegar beltavélar.
„Komat’su hefur líka brjál-
æðislega trú á hybrid búnaðinum
í vélunum sínum, þrátt fyrir að
vera með 820 vélar í notkun bara
Ekkert vandamál komið upp
með hybrid vinnuvélar
Þörf á umhverfisvænum lausnum verður æ meiri og mörg fyrirtæki undirbúa sig fyrir að minnka
þörfina á jarðeldsneyti. Fyrirtækið Komat'su framleiðir vinnuvélar og hefur verið leiðandi í fram-
leiðslu á svokölluðum hybrid beltagröfum. Hér á Íslandi hafa átta slíkar vélar selst frá árinu 2017.
Halldór Ólafs-
son stendur hér
fyrir framan
Komat’su belta-
gröfu.
í Evrópu, þá eru þeir með fimm
ára ábyrgð á öllum varahlutum í
hybrid vélinni, eða 10.000 vinnu-
stunda ábyrgð, og það hefur enn
ekki komið upp eitt vandamál í
búnaðinum,“ en fyrstu vélarnar
voru seldar árið 2008, og alls eru
4.657 hybrid Komat’su vélar til.
„Það er mikil þörf á þessu. Bæði út
af sparnaði og umhverfissjónar-
miðum, og öllu. Það eru engin
rök fyrir því að velja ekki frekar
þennan kost.“
Starfsmenn eru um fjurtíu en auk sölu á varahlutum og rekstrarvörum er
einnig boðið upp á þjónustu eins og samstningu á stýriskápum.
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
5
-C
2
3
C
2
4
1
5
-C
1
0
0
2
4
1
5
-B
F
C
4
2
4
1
5
-B
E
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K