Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 32
Nauðsynlegt er að hreyfa sig reglulega ef maður situr allan daginn.
Vörubílstjórar og aðrir aðvinnubílstjórar sitja oft löngum stundum undir
stýri þegar vinnudagurinn er
langur. Nauðsynlegt er að brjóta
upp daginn og hreyfa sig reglu-
lega. Gott viðmið er að standa upp
á um 40-60 mínútna fresti sé það
mögulegt, teygja úr sér og ganga
helst um í stutta stund.
Með því að ganga hraðar, í meiri
halla eða lyfta hnjánum má reyna
meira á sig. Lengri hlé er síðan
hægt að nýta í lengri göngu og
frekari æfingar. Einnig er tilvalið
að sveif la örmunum til að örva
blóðf læði um axlirnar og efri
útlimi. Aðstæður til hreyfingar á
vinnutíma eru auðvitað mis-
munandi og oft er jafnvel lítið sem
ekkert hægt að hreyfa sig.
Þá er mjög mikilvægt að huga að
hreyfingu utan vinnutíma, hvort
sem það eru lengri göngur, hjól-
reiðar, sund eða að stunda frekari
þjálfun í samræmi við getu og
áhuga hverju sinni. Aðalatriðið er
að forðast að sitja kyrr tímunum
saman og taka ákvörðun um að
hreyfa sig.
Mikilvægt er að
huga að hreyfingu utan
vinnutíma. Öll hreyfing
er til bóta fyrir bílstjóra.
Bílstjórar þurfa hreyfingu
16 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
Fyrsti vélknúni vörubíllinn var
smíðaður 1896. NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrsti vélknúni vörubíllinn var smíðaður árið 1896 af þýska frumkvöðlinum Gott-
lieb Daimler. Vörubíllinn var
með fjögurra hestafla vél og tvo
gíra auk bakkgírs. Þetta var fyrsti
sendibíllinn. Daimler framleiddi
líka fyrsta mótorhjólið árið 1895
og fyrsta leigubílinn árið 1897.
Vörubíllinn átti erfitt uppdráttar
í fyrstu og Daimler seldi ekki eitt
einasta eintak af fyrsta vöru-
bílnum í Þýskalandi. Honum tókst
að lokum að finna kaupanda á
Englandi. Það var þó ekki fyrr en
árið 1901 sem vélknúinn vörubíll
reyndist betri en gufuknúinn. Það
kom í ljós í samanburðarpróf-
unum sem gerðar voru í Liverpool
á þeim tíma.
Saga vörubílsins
Á langri keyrslu er hressandi að fá
sér svaladrykk fullan af fjörefnum.
Á langri keyrslu um ískalt Ísland er gott að láta sig dreyma um svalandi drykk
á sólarströnd og ekki er verra
ef hann var útbúinn í nesti að
heiman. Þessi uppskrift er holl og
hressandi á þjóðveginum. Ananas
lækkar blóðþrýsting og bætir
meltingu og bananar eru fullir af
vítamínum og trefjum ásamt því
að lækka blóðsykur. Appelsínur
eru svo góðar í baráttunni við kvef
enda fullar af C-vítamíni.
Svona er uppskriftin:
1 stór og þroskaður banani
100 ml appelsínusafi
½ þroskaður ananas
50 ml mjólk að eigin smekk
Setjið ísmola í blandara og hellið
safanum út á. Afhýðið ananas,
skerið í bita og setjið í blandarann
ásamt appelsínusafanum. Bætið
banana út í ásamt mjólk. Blandið
saman þar til kremað og mjúkt.
Piña Colada
í vetrartíð
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
5
-B
D
4
C
2
4
1
5
-B
C
1
0
2
4
1
5
-B
A
D
4
2
4
1
5
-B
9
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K