Fréttablaðið - 25.10.2019, Side 39
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
25. OKTÓBER 2019
Orðsins list
Hvað? Morgunverðarfundur
Hvenær? 8.00-10.00
Hvar? Grand Hótel við Sigtún
Félag atvinnurekenda,
Landssamband eldri
borgara og Hús-
eigendafélagið
standa fyrir fundi
í salnum Hvammi
sem er á jarðhæð.
Hann hefur yfir-
skriftina Eru fast-
eignir féþúfa? Léttur
morgunverður er í
boði frá 8.00.
Hvað? Söknuðurinn eftir
Grænlandi
Hvenær? 12.00-13.00
Hvar? Þjóðarbókhlaðan
Sumarliði R. Ísleifs-
son fjallar um afstöðu
Íslands til Grænlands á 20. öld,
með sögulegum aðdraganda.
Tónlist
Hvað? Útgáfutónleikar
Hvenær? 20.00
Hvar? Hamrar, Hofi, Akureyri
Söngkonan Marína Ósk fagnar
útgáfu sinnar fyrstu sólóplötu,
Athvarf, og flytur plötuna í heild
sinni, með hljómsveit.
Hvað? Tríóið Hist
Hvenær? 20.30
Hvar? Mengi, Óðinsgötu
Tríóið skipa Eiríkur Orri Ólafsson
á trompet, tölvu og hljómborð,
Róbert Sturla Reynisson á gítar
og Magnús Trygvason Eliassen á
trommur. Miðaverð er 2.500 kr.
Hvað? Piazolla-kvintett
Hvenær? 21.00
Hvar? Björtuloft, Hörpu
Jón Þorsteinn Reynis-
son, Joaquin Páll
Palomares, Ásgeir
Ásgeirsson, Jón
Bjarnason og Alex-
andra Kjeld flytja
tónlist argentínska
tangómeistarans
Astors Piazzolla. Miða-
verð 2.500 kr.
Myndlist
Hvað? Í fótspor gömlu
meistaranna
Hvenær? 8.30-16.00
Hvar? Hlutverkasetur, Borgartúni 1.
Anna Henriksdóttir myndlistar-
kennari sýnir olíuverk unnin með
gömlum málunaraðferðum.
Gengið er inn sjávarmegin.
Hvað? Sögur úr sveitinni
Hvenær? 16.00-18.00
Hvar? Listasalur Mosfellsbæjar,
Þverholti
Pétur Magnússon opnar sýningu
þar sem bæði manneskjur og
dýr koma við sögu. Aðgangur er
ókeypis og öll velkomin.
Hvað? Listamannsspjall
Hvenær? 17.00
Hvar? Hallgrímskirkja
Páll Haukur verður í forkirkju
Hallgrímskirkju í tengslum við
sýningu sína Ósegjanleiki /An
Unspeakable. Léttar veitingar
verða í boði.
Aðrir viðburðir
Hvað? Lunch/Hádegisverður
Hvenær? 20.00
Hvar? Tjarnarbíó, Tjarnargötu
Northern Network for Perform-
ing Arts og Tjarnarbíó kynna
sviðsverk/gjörning. Aðeins ein
sýning!
Hvað? Tangó praktíka og milonga
Hvenær? 21.00-24.00
Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg
Argentínskur tangó dunar í
Kramhúsinu. Dj er Kristinn og
gestgjafi er Svanhildur Ó. Ókeypis
er á praktíkuna, en 1.000 króna
aðgangseyrir að milongunni fyrir
eldri en 30 ára.
Tryggðu þér áskrift
Í KVÖLD KL. 22:10
Söngkonan Marína
Ósk er með útgáfu-
tónleika í Hömrum,
Hofi í kvöld.
Piazzolla-kvintett kemur fram á Múlanum í kvöld.
BÆKUR
Leðurjakkaveður
Fríða Ísberg
Blaðsíður: 46
Útgefandi: Mál og menning/For-
lagið
Það er ekkert til
sem heitir berskjaldað skáld
þegar það klæðist ljóðmælandanum
eins og leðurjakka
segir í bókinni Leðurjakkaveður
eftir Fríðu Ísberg (f. 1992). Bókin
er þriðja skáldverkið eftir þennan
athyglisverða höfund sem kvaddi
sér eftirminnilega hljóðs með sinni
fyrstu ljóðabók, Slitförunum, sem
kom út fyrir tveimur árum. Með
grípandi og meitluðum ljóðmælum
tókst hún þar á við bernskuupplif-
anir og áhrifavalda uppeldisáranna
í leit að sínum innsta kjarna. Ári
síðar vakti hún enn eftirtekt þótt
róin væri á önnur mið með sposk-
um og dirfskufullum smásögum í
Kláða þar sem væntingar og kröfur
samtímans hafa margvísleg áhrif á
líf og hegðun sögupersóna.
Í þessari nýju bók er Fríða enn
á persónulegum nótum líkt og í
sinni fyrstu ljóðabók. Í forgrunni
eru varnir og varnarleysi mann-
eskjunnar – nektin undir fötunum,
kvikan undir skrápnum, fegurðin,
ástin, sorgin og tilfinningarnar
í skjóli varnarhjúpa og hýðis af
ýmsum toga. Leðurjakkinn er til-
valin brynja ef svo ber undir enda
kemur hann við sögu.
Und irlig g ja nd i er þó ek k i
aðeins varnarleysi því að innsti
kjarninn getur verið harður eins
og avókadó- eða mangókjarni. Og
stundum er hann einfaldlega eitt-
hvað sem sogar allt til sín eins og
svartholið …
óseðjandi svarthol
sem þráir aðeins eitt
viðurkenningu þeirra
sem veita hana ekki. (38)
Ljóðabók i n L eðu r-
jakkaveður fjallar þó
ek k i eingöng u u m
va r nir og br y nju r
heldur öðrum þræði
um mörk og ramma.
Gluggar húsanna „eru
samtímis inni og úti“.
Þessi mörk geta verið
okkar eigin spegil-
hjúpur …
eins og múr
utan um heimsveldi
eða gaddavír um
bithaga
því að manneskj-
unni hættir til að
spegla sig í skuggsjá
eig in ha r ma og
sjálfsefa eins og við
lesum til dæmis í
ljóðinu Skuggsjá.
Samspil hörku og
mýktar kemur víða fram í ljóðum
þessarar bókar og myndgerist til
dæmis snilldarlega í ljóðinu SIGG …
…
þegar manneskja þarf að herða sig
verður til sigg
mjúka G-ið verður tveggja G-a högg
og hörundið marglaga leður
fingurgómarnir eru sigggrónir
af því að án siggsins
gæti ég ekki spilað á gítarinn
…
Engum blöðum er um það að
f letta að Fríða Ísberg er þrátt fyrir
ungan aldur einn athyglisverðasti
höfundur sem komið hefur fram
á s íðu s t u
árum. Ljóð
hennar eru
í senn per-
s ó n u l e g ,
á leit i n og
g r í p a n d i .
Þau spegla
sig í sálarlífi
l e s a n d a n s
og tala beint
til hans, skýr
og skiljanleg
en um leið
myndræn og
rík af nýstár-
legu táknsæi.
Ólína Kjerúlf
Þorvarðardóttir
NIÐURSTAÐA:
Vekjandi ljóða-
bók eftir áhuga-
verðan höfund.
Berskjaldaður styrkur
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F Ö S T U D A G U R 2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
5
-9
F
A
C
2
4
1
5
-9
E
7
0
2
4
1
5
-9
D
3
4
2
4
1
5
-9
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K