Skessuhorn - 25.02.2015, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Samþykkt að
ráðast í úttektir
HVALFJ.SV: Á fundi sveit-
arstjórnar Hvalfjarðarsveit-
ar þriðjudaginn 10. febrúar
síðastliðinn var samþykkt að
láta framkvæma á næstunni
úttekt og könnun á vegum
sveitarfélagsins. Annars vegar
er það fagleg- og fjárhagsleg
úttekt á starfsemi Leik- og
grunnskóla Hvalfjarðarsveit-
ar. Samþykkt var að ganga
til samninga við R3-Ráðgjöf
ehf og miðstöð skólaþróunar
Háskólans á Akureyri um út-
tektina og verður 1,2 milljón
króna varið til hennar. Einn-
ig samþykkti sveitarstjórn
að ganga til samninga við
Pro-Active um framkvæmd
fræðslu- og líðan könnun-
ar meðal starfsfólks Hval-
fjarðarsveitar. Verður varið
til þeirrar könnunar fimm
hundruð þúsundum króna.
–þá
Aflatölur fyrir
Vesturland
14. 20. febrúar.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 4 bátar.
Heildarlöndun:
1.918.278 kg.
Mestur afli: Ingunn AK:
1.905.057 kg í einni löndun.
Arnarstapi 4 bátar.
Heildarlöndun: 24.078 kg.
Mestur afli: Kvika SH:
11.505 kg í einni löndun.
Grundarfjörður 10 bátar.
Heildarlöndun:
508.178 kg.
Mestur afli: Geir ÞH:
89.842 kg í sjö löndunum.
Ólafsvík 16 bátar.
Heildarlöndun:
359.315 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
86.514 kg í fjórum löndun-
um.
Rif 15 bátar.
Heildarlöndun:
681.827 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
89.762 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 6 bátar.
Heildarlöndun:
225.022 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
120.775 kg í þremur lönd-
unum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Ingunn AK – AKR:
1.905.057 kg. 15. febrúar
2. Tjaldur SH – RIF:
89.762 kg. 15. febrúar
3. Hringur SH – GRU:
66.163 kg. 17. febrúar
4. Þórsnes SH – STY:
65.790 kg. 15. febrúar
5. Steinunn SH – ÓLV:
61.359 kg. 18. febrúar
mþh
Skipavík fær tvö
útboðsverk
STYKKISH: Tvö verk sem
boðin voru út í Stykkishólmi
nýlega féllu í skut Skipavíkur.
Annars vegar er um að ræða
breytingu á ekjubrú, ferju-
brúnni út í Súgandisey. Skipavík
var þar með frávikstilboð upp á
sex og hálfa milljón króna, sem
var 89% af kostnaðaráætlun og
lægsta tilboð í verkið. Frávik-
stilboðið gengur út á að nýta
núverandi stálbita undir brúnni,
skera af honum og sjóða svo við
hann styrkingar. Það þýðir að
endastykki verður ógalvaniser-
að en að mati Vegagerðarinn-
ar er þetta viðunandi lausn. Þá
var Skipavík með eina tilboð-
ið í sáluhlið fyrir kirkjugarðinn
í Stykkishólmi. Tilboðinu var
tekið en það var upp á 657 þús-
und krónur. –þá
Í óveðursútkall
KJALARNES: Björgunarsveit-
arbíll frá Kili í Reykjavík valt í
roki á Hvalfjarðarvegi skammt
austan við Tíðaskarð á Kjalar-
nesi á þriðjudagskvöld í liðinni
viku. Þrír menn voru í bílnum
og sakaði þá ekki, en var vissu-
lega brugðið. Hvassviðri var
mikið á þessum fræga svipti-
vindastað og voru björgunar-
sveitarmenn að kanna aðstæð-
ur fyrir lögreglu þegar óhapp-
ið varð. Félagar úr Björgunar-
félagi Akraness fóru til aðstoðar
á Talibananum, sérbúnum ofsa-
veðursbíl sveitarinnar. Héldu
þeir áfram með verkefnið sem
kjalarmenn voru í þegar óhapp-
ið var, könnuðu færð og lok-
uðu veginum. Gilti sú lokun til
klukkan tvö um nóttina, en þá
gekk vindur niður og hálkan var
að mestu farin. –mm
Fundað um
sameiningu og
ljósleiðara
DALIR: Sveitarstjórn Dala-
byggðar hefur samþykkt tillögu
byggðarráð um að boðað verði
til sameiginlegs fundar sveit-
arstjórna Dalabyggðar, Reyk-
hólahrepps og Strandabyggð-
ar. Á fundinum verði fylgt eftir
niðurstöðum skoðanakönnun-
ar um sameiningu sveitarfélaga
sem fram fór samhliða sveit-
arstjórnarkosningunum 2014.
Lagt er til að fundurinn verði
haldinn fyrir lok febrúarmán-
aðar og að ráðgjafarfyrirtæk-
ið Alta verði fengið til aðstoð-
ar við framkvæmd og úrvinnslu
fundarins. Þá hefur sveitarstjórn
einnig samþykkt tillögu byggð-
arráðs að boðað verði til íbúa-
fundar um ljósleiðaramál í ann-
arri viku marsmánaðar. –þá
Breiðfirðingur
endurvakinn
BREIÐAFJ: Tímaritið og árs-
ritið Breiðfirðingur kom út á
árunum 1942-2009 en lagðist
þá í dvala. Ákveðið var á liðnu
hausti að koma ritinu á stjá að
nýju og var Svavar Gestsson
fyrrverandi alþingismaður og
ráðherra fenginn til ritstjórnar.
Vefur Reykhólahrepps greinir
frá. Svavar átti æsku sína og
uppvöxt við Breiðafjörðinn
og hefur nú um nokkurt ára-
bil verið með annan fótinn í
Reykhólahreppi og búsetu að
hluta. Fyrsta hefti Breiðfirð-
ings undir hans stjórn kemur
út á vormánuðum. –þá
Forvarnaráðstefna trygg-
ingafélagsins VÍS og Vinnu-
eftirlitsins var nýverið hald-
in. Þar voru meðal annars
veittar viðurkenningar fyr-
ir góðan árangur í forvörn-
um og öryggismálum. Faxa-
flóahafnir voru meðal þeirra
sem hlutu slíka viðurkenn-
ingu frá VÍS. Rík áhersla er
lögð á það hjá Faxaflóahöfn-
um að uppfylla bæði innlend-
ar og erlendar öryggiskröfur
og staðla sem lúta að hafna-
vernd. Gert er áhættumat starfa
á öllum starfsstöðvum ásamt því
að haldin eru regluleg námskeið í
skyndihjálp og ýmiskonar vinnu-
vernd. Þá eru öll slys, óhöpp og
tjón skráð í atvikaskráningu. Auk
þess er fyrirtækið í góðu sam-
starfi við Slysavarnaskóla sjó-
manna um kennslu í eldvörn-
um, öryggi og björgunaræf-
ingar á sjó. Verkís hf. fékk
samskonar viðurkenningu og
Faxaflóahafnir og HS Orka
hreppti Forvarnaverðlaun
VÍS. Á meðfylgjandi mynd
eru Hallur Árnason öryggis-
fulltrúi Faxaflóahafna, Sig-
rún Ragna Ólafsdóttir for-
stjóri VÍS, Jón Guðmunds-
son yfirverkstjóri hjá Faxa-
flóahöfnum og Auður Björk Guð-
mundsdóttir framkvæmdastjóri fyr-
irtækjasviðs VÍS. grþ
Bæjarstjórn Grundarfjarðar-
bæjar hefur ákveðið að fram
fari heildarendurskoðun á
aðalskipulagi Grundarfjarð-
ar sem rennur út í lok árs.
Óskar bæjarstjórn á heima-
síðu bæjarins eftir hugmynd-
um íbúa um hvernig þeir
vilji sjá bæinn vaxa og dafna.
„Kjarni málsins er sá að við
erum búin að taka ákvörð-
un um að endurskoða aðal-
skipulagið og viljum kalla
eftir hugmyndum íbúa, fyrir-
tækja og félagasamtaka í sam-
félaginu. Hafi þeir einhverjar
hugmyndir um hvernig þeir
vilja sjá bæinn þróast að þá
er rétti tíminn til að koma þeim á
framfæri, því nú erum við að fara í
þessa vinnu. Svona viljum við byrja
og leggja af stað í þessa vinnu,“ seg-
ir Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri í
Grundarfirði.
Þorsteinn segir að vinnan sé rétt
að hefjast. Gildandi aðalskipulag
sé í góðu lagi en ákveðið hafi ver-
ið að endurskoða það fyrir framtíð-
ina. Hann líkir vinnunni við bakst-
ur á góðri köku. „Við erum með
deig í góða köku og erum nú
að láta það hefast. Svo þurf-
um við að móta það og laga
það til. Það kemur til greina
að gera nokkrar breyting-
ar á gildandi aðalskipulagi.
Við erum sjálf með nokkrar
hugmyndir og það gæti verið
gaman að fá fleiri hugmynd-
ir sem við sjáum ef til vill ekki
sjálf,“ segir Þorsteinn. Hann
segir að í framhaldi verði þær
hugmyndir sem fram komi
nýttar eins og kostur er. „Við
munum svo spila þetta saman
við það sem við viljum hafa í
skipulaginu. Svo verða jafnvel
haldnir íbúafundir og fleira
til að fara yfir málin og tillögur út-
færðar nánar.“ Hægt er að senda
hugmyndir á netfang byggingar-
fulltrúa Grundarfjarðar: bygg@
grundarfjordur.is fyrir 11. mars
næstkomandi. grþ
Bæjarráð Akraneskaupstaðar hef-
ur samþykkt að óska eftir form-
legu samstarfi kaupstaðarins, Þjóð-
minjasafnsins, forsætisráðuneytis
og mennta- og menningarmála-
ráðuneytis varðandi framtíð kútt-
ers Sigurfara í Görðum. Regína Ás-
valdsdóttir bæjarstjóri segist hafa
átt fund með Margréti Hallgríms-
dóttur þjóðminjaverði varðandi
málefni kúttersins og hefur einnig
óskað eftir skyndiúttekt frá Þjóð-
minjasafninu til að meta ástand
hans. „Það hafa verið hugmyndir í
gangi um að byggja yfir kútterinn
en það er ekki vilji bæjaryfirvalda
að fara þá leið enda mjög kostn-
aðarsöm. Við erum að skoða allar
mögulegar leiðir til að halda í sög-
una um kútterinn í samvinnu við
Þjóðminjasafnið og erum opin fyrir
nýjum leiðum í því sambandi. Það
mikilvægasta fyrir okkur á Akranesi
núna er að tryggja öryggi í kring-
um skipið þannig að það valdi ekki
slysahættu,“ segir Regína. mm
Sjúkraflutningamenn í Búðar-
dal með aðstoð Lionsklúbbsins
í Búðardal og Búðardalsdeildar
RKÍ hyggjast safna fyrir staf-
rænum lesara fyrir röntgentæki
á heilsugæslustöðina í Búðar-
dal. Tækið kostar um 2,4 millj-
ónir króna fyrir utan virðis-
aukaskatt. Í sjóði frá fyrri söfn-
un eru rúmar 700.000 krónur
og Lionsklúbburinn hefur lagt
300.000 í söfnunina þannig að
lagt er upp með að safna á aðra
milljón króna. Nú er leitað til
fyrirtækja, stofnana, félaga og
einstaklinga með ósk um styrki
til kaupa á tækinu.
Sjúkraflutningamenn í Búðardal
stóðu fyrir fjársöfnun fyrir hjarta-
hnoðtækinu Lucas í sjúkrabifreið í
Búðardal á síðasta ári. Með góðri
aðkomu félagasamtaka og einka-
aðila tókst að safna fyrir tækinu
sem nú þegar hefur sannað gagn-
semi sína. Nú hafa sjúkraflutninga-
mennirnir haft frumkvæði að ann-
arri söfnun. Á heilsugæslustöðinni í
Búðardal er röntgentæki síðan 1997
sem hefur reynst vel og er í góðu
lagi. Með því að fá við það stafræn-
an lesara fást stafrænar myndir í
stað mynda á röntgenfilmur. Staf-
rænn búnaður er nú þegar
kominn á flesta staði þar sem
teknar eru röntgenmyndir
enda hefur hann umtalsverða
kosti. Myndrannsóknin er
tilbúin á skömmum tíma og
auðvelt að senda rafrænt til
röntgenlæknis eða sérfræð-
ings. Í Búðardal eru röntgen-
myndir fyrst og fremst tekn-
ar í bráðatilfellum eins og til
að útiloka eða staðfesta bein-
brot þegar slys verða. Til
þess að tryggja að slíkt verði
áfram hægt og ekki þurfi að
senda öll slík tilfelli um lang-
an veg er mikilvægt að koma
upp þeim búnaði sem hér um ræð-
ir, segir í tilkynningu vegna söfnun-
arinnar.
Söfnunarreikningur fyr-
ir tækinu er: 312-13-110023. Kt:
530586-2359.
þá
Faxaflóahöfnum veitt viðurkenning fyrir öryggismál
Unnið er að endurskoðun aðalskipulags í Grundarfirði
og er óskað eftir hugmyndum íbúa um framtíð bæjarins.
Óska eftir hugmyndum bæjarbúa
við endurskoðun aðalskipulags
Sjúkraflutningamenn í Búðardal. Myndin var tekin
þegar söfnun fyrir Lúkasi var upphaflega ýtt úr vör.
Ljósm. Steinunn Matthíasdóttir.
Safnað fyrir stafrænum lesara
í röntgentæki í Búðardal
Óska samstarfs við ríkið
vegna kútters Sigurfara