Skessuhorn


Skessuhorn - 25.02.2015, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 25.02.2015, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015 Íbúaþing um íþrótta­ og frístundamál HVALFJ.SV: Fræðslu- og skólanefnd Hvalfjarðarsveitar hefur boðað til íbúaþings vegna stefnumótunarvinnu í íþrótta- og frístundamálum. Þingið verð- ur haldið laugardaginn 7. mars í Heiðarskóla. Í tilkynningu seg- ir að tilgangurinn með því sé að kalla fram sjónarmið og hug- myndir íbúa varðandi íþrótta- og frístundamál í sveitarfélaginu en unnið er að stefnumótun í mála- flokknum. Á íbúaþinginu mun meðal annars verða leitast við að svara spurningum eins og hvern- ig íbúar vilja að starfsemi vinnu- skólans sé, hvernig sveitarfélagið eigi að reka frístundaheimili fyrir yngsta stig grunnskólans eftir að hefðbundnum skólatíma lýkur, hverjar áherslurnar eigi að vera í starfsemi félagsmiðstöðvar ung- linga, hvernig efla megi þátttöku barna og unglinga í íþróttastarfi og hvernig efla megi almenn- ingsíþróttir. –þá Flestum kærum vegna skipulags hafnað STYKKISH: Á fundi bæjar- ráðs Stykkisólms sl. fimmtudag var kynnt niðurstaða úr fjórum kærumálum sem skotið var til úr- skurðarnafnar um umhverfis- og auðlindamál. Kærurnar snerust um skipulagsmál, flestar vegna ákvörðun bæjarstjórnar frá 19. maí 2011. Mál er snerti deili- skipulag fyrir hesthúsasvæðið Fákaborg var úrskurðað Stykkis- hólmsbæ í vil og hafnað kröfu um ógildingu skipulagsins. Sömu- leiðis var hafnað kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun bæjar- stjórnar um að samþykkja deili- skipulag á Þinghúshöfða í Stykk- ishólmi vegna Bókhlöðustígar 9, en kærunefndin féllst á kröfu kær- enda að deiliskipulag á Þinghús- höfða er felld úr gildi er lýtur að stofnun nýrrar lóðar 4a við Skóla- stíg. Þá var hafnað kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun bæjar- stjórnar Stykkishólmsbæjar frá 30. janúar 2014 um stækkun á lóð Silfurgötu 15, en þá var gefið út nýtt lóðarblað. –þá Verulegar ofskynjanir af hass­íss VESTURLAND: Ungt par sem nýverið ætlaði að krydda tilveruna í sumarbústað í Borg- arbyggð, með því að útbúa sér kannabis-ís eftir uppskrift af internetinu, beit heldur betur úr nálinni þegar það byrjaði að gæða sér á ísnum. Kærastinn var fljótlega kominn úr öllum föt- unum og farinn að hlaupa um nakinn utandyra með slíkar of- skynjanir að hann vissi ekkert í sinn haus. Kærustunni var orð- ið mjög óglatt og var hún orð- in hrædd um geðheilsu þeirra beggja. Var því hringt eftir lög- reglu og læknisaðstoð. Lagði lögreglan hald á það sem eft- ir var af þessum hassís og sendi hann til frekari rannsóknar en þá þegar hafði komið fram að hann var ekki par góður né hollur til neyslu hvað þá ofneyslu, að því er fram kemur í dagbók lögregl- unnar á Vesturlandi. Eftir lækn- isskoðun var parinu komið til síns heima því ekki þótti ráðlegt að þau væru lengur ein í sumar- bústaðnum. –þá Þegar þér hentar á: www.skessuhorn.is Ólína á Arnarstapa. Háskólinn á Bifröst. Vélbáturinn Kári. Samfés á Vesturlandi. Landbúnaðarháskóli Íslands. Skipavík í Stykkishólmi. HINT háskólinn í kynningarferð Dagana 9.-13. mars næstkomandi munu fulltrúar frá HINT háskólan- um í Noregi vera á ferð og flugi um Ísland að kynna háskólanám í tölvu- leikjahönnun og margmiðlun. Þetta er þriðja árið í röð sem fulltrúar há- skólans koma til landsins að kynna námið en nú þegar eru yfir tuttugu íslenskir nemendur við háskólann. Ekkert sambærilegt nám er í boði á Íslandi og hafa Íslendingar sýnt náminu mikinn áhuga. Kynningar- fundir verða meðal annars haldn- ir á þessum stöðum: Þriðjudag- ur 10. mars kl. 10:30 í Fjölbrauta- skóla Snæfellinga og kl. 14:40 þann sama dag í Fjölbrautaskóla Vestur- lands Akranesi. Norskt háskólanám er ókeypis ef frá eru talin 12.000 króna annagjöld. Nám af þessu tagi hleypur víða annarsstaðar á milljón- um króna. HINT háskólinn er vel tækjum búinn og kennarahópurinn er alþjóðlegur og býr yfir margra áratuga reynslu af svo til öllu sem tengist bæði tölvuleikjahönnun og margmiðlunartækni. Nemendur fá að nokkru marki að velja sér áhuga- svið og því finna allir eitthvað við sitt hæfi. Meðal viðfangsefna nemenda er þrívíddarteikning, kvikmyndun, ljósmyndun, hljóðvinnsla, forritun, leikstjórn, framleiðsla og ritstjórn, svo nokkuð sé nefnt, segir í tilkynn- ingu vegna heimasóknar fólksins frá HINT háskólanum. þá Veitingasalan opnuð aftur á Hótel Rjúkanda við Vegamót á Snæfellsnesi Búið er að opna aftur veitingasöl- una á Hótel Rjúkanda við Vegamót á Snæfellsnesi. Hún var lokuð um jól, áramót og í janúar vegna end- urbóta. „Við opnuðum hér aftur 1. febrúar eftir verulegar endurbætur á eldhúsi, afgreiðslu og veitingasal. Það má segja að þetta sé nú komið í svona kaffihúsastíl. Hér erum við líka með móttöku fyrir hótelið sem við opnuðum í fyrra og rúmgóðan funda- og samkomusal hér rétt fyr- ir innan,“ sagði Hrefna Birgisdótt- ir einn af eigendum Hótel Rjúkanda við blaðamann Skessuhorns sem átti leið um Vegamót á fimmtudag í síð- ustu viku. Það var um hádegisleyt- ið og töluverður erill í nýuppgerðu húsinu. Fjöldi gesta var í mat, bæði erlendir og innlendir ferðalangar. Greinilegt er að vetrarferðamennska færist stöðugt í vöxt á Vesturlandi. „Við erum með heitan mat í há- deginu og verðum svo með stærri matseðil á kvöldin. Annars verð- ur hægt að fá hér bæði súpur, sam- lokur, hamborgara og þess háttar. Það verður opið alla daga vikunnar. Núna yfir veturinn ef það er rólegt höfum við þó lokað milli klukkan 14 og 17 ef það er rólegt. Það verð- ur svo lokað klukkan 20:00 á kvöld- in nema það sé eitthvað sérstakt um að vera svo sem hópar á ferð. Í gær- kvöldi var til að mynda opið til kl. 23 af því að hér var fundur,“ sagði Hrefna í stuttu hléi frá framreiðslu- störfum og afgreiðslu. Í fyrravor opnaði Hrefna og fjöl- skylda hennar nýtt Hótel Rjúkanda á Vegamótum með 13 vel búnum herbergjum. Hrefna segir rekstur þess hafa gengið vel. „Hótelið hjá okkur er búið að ganga alveg þokka- lega vel nú í febrúar og ágætar bók- anir út mánuðinn. Febrúar verð- ur betri hjá okkur en nóvember svo dæmi sé tekið. Hins vegar stefnir í aðeins minna nú í mars en þetta lof- ar allt góðu. Þetta eru mest útlend- ingar á ferð sem koma hingað núna á þessum árstíma. Það er allavega al- veg hægt að reka hér hótel yfir vet- urinn. Sumarið í fyrra var bara mjög fínt þó okkur hefði verið sagt að hafa ekki of miklar væntingar þar sem við værum að byrja.“ mþh Veitingasala og móttaka Hótel Rjúkanda við Vegamót hefur nú verið opnuð á nýjan leik sem veitingastaður við þjóðveginn. Þar er einnig sem fyrr gisting í 13 herbergjum í nýju húsnæði sem opnað var í fyrra. Hrefna Birgisdóttir ásamt Gabriel Franch tengdasyni sínum við afgreiðslu í nýju veitingasölunni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.