Skessuhorn - 25.02.2015, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Æft af kappi fyrir frumsýningu á Barið í brestina
Leikdeild Umf. Skallagríms æfir nú
af kappi fyrir frumsýningu gaman-
leiksins Barið í brestina eftir Guð-
mund Ólafsson. Leikritið verður
frumsýnt í Lyngbrekku föstudaginn
6. mars næstkomandi. Leikstjóri
í uppfærslunni er Gunnar Björn
Guðmundsson. Að sögn Elísabetar
Hildar Haraldsdóttur leikara og rit-
ara hjá leikdeild Skallagríms standa
æfingarnar nú í algleymingi enda
frumsýning á næsta leiti. Leikritið
fjallar um líf og störf á sambyggðri
heilsugæslustöð og elliheimili úti á
landi. „Þetta gerist á einum degi og
segir frá lífi og starfi fólksins sem
býr og starfar þar. Heilbrigðisráð-
herrann kemur í heimsókn eftir að
hafa veitt heilsugæslustöðinni pen-
inga til kaupa á magaspeglunartæki.
Peningunum var aftur á móti var-
ið í færeyskan knattspyrnumann til
að styrkja fótboltaliðið í bænum. Þá
upphefst atburðarrás þar sem fólk-
ið reynir meðal annars að ljúga sig
út úr aðstæðunum,“ segir Elísa-
bet Hildur. Hún segir að margar
skemmtilegar persónur komi við
sögu, svo sem rússneskur flótta-
maður sem er læknir og sídrukk-
inn kokkur sem drýgir tekjur sínar
með því að leigja vistmönnum blá-
ar myndir. „Starfsemin er vægast
sagt mjög sérstök og ákvarðanatök-
ur óheppilegar á köflum. En allt er
gott sem endar vel.“
Stórafmæli á næsta ári
Leikdeild Umf. Skallagríms hefur
sett upp fjöldann allan af verkum,
við góðar undirtektir, á þeim fjöl-
mörgu árum sem hún hefur ver-
ið starfandi. „Leikdeildin verð-
ur hundrað ára á næsta ári og það
eru ekki mörg árin sem hafa dottið
út. Fyrir ári sýndi deildin leikritið
Stöngin inn eftir sama höfund við
stórkostlegar viðtökur. Settar voru
upp fjórtán sýningar fyrir fullu húsi
þá og við höfum kortlagt tíu sýn-
ingar núna til að byrja með,“ seg-
ir Elísabet Hildur. Hátt í 40 manns
koma að uppsetningu sýningarinn-
ar með einum eða öðrum hætti en
alls stíga 19 leikarar á svið. „Svo er
kór eldri borgara með okkur ásamt
kórfélögum úr Samkór Mýra-
manna. Það er því fólk á öllum aldri
sem kemur að sýningunni og það er
allt á fullu.“ Gamanleikurinn Bar-
ið í brestina hefur áður verið sett-
ur upp hjá Leikfélagi Ólafsfjarð-
ar og Leikdeild Ungmennafélags
Biskupstungna við góðar undir-
tektir. Það má því búast við góðri
skemmtun í litla leikhúsinu á Mýr-
unum í marsmánuði þegar sýningar
hefjast. grþ
Það gengur á ýmsu í gamanleiknum sem frumsýndur verður í Lyngbrekku í mars.
Ljósm. Olgeir Helgi Ragnarsson.
Umhverfisvaktin við Hvalfjörð
samþykkir ályktanir
Aðalfundur Umhverfisvaktarinn-
ar við Hvalfjörð var haldinn að Ás-
garði í Kjós föstudaginn 13. febrú-
ar síðastliðinn. Á fundinum voru
samþykktar nokkrar ályktanir.
Meðal annars er snertir gerð svæð-
isskipulags fyrir Reykjavík til árs-
ins 2040 en þar segir: „Hreint loft,
ómeðhöndlað drykkjarvatn, ná-
lægð við fjölbreytt útivistarsvæði
og náttúrulegt umhverfi eru undir-
staða að lífsgæðum á höfuðborgar-
svæðinu og marka sérstöðu svæð-
isins umfram önnur borgarsvæði.“
Aðalfundurinn ályktar að Reykja-
víkurborg standi fyrir gríðarlegri
uppbyggingu á mengandi iðnaði á
Grundartanga í Hvalfirði í gegnum
meirihluta eignarhald á sameign-
arfélaginu Faxaflóahöfnum. „Að-
alfundurinn hvetur forsvarsmenn
Reykjavíkurborgar til að stefna
fyrrnefndum lífsgæðum ekki í frek-
ari hættu með áframhaldandi upp-
byggingu mengandi iðnaðar, sem
nú þegar er farinn að hafa verulega
neikvæð áhrif á náttúru og lífríki.“
Þá skorar Umhverfisvaktin við
Hvalfjörð á umhverfisráðherra að
hefja nú þegar undirbúning þess
að flytja ábyrgð á umhverfisvöktun
vegna mengunar frá iðjuverunum
á Grundartanga frá forsvarsmönn-
um iðjuveranna til óháðrar, til þess
bærrar stofnunar.
Umhverfisvaktin vísaði til þess
að nú þegar eru þrjú stór álver
starfandi á Íslandi auk þess sem
vænta má eldgosa sem hafa í för
með sér verulega flúormengun.
„Fundurinn skorar á Matvæla-
stofnun að hefja þegar grunnrann-
sóknir á þoli íslensks búfjár gagn-
vart flúori í fóðri og áhrifum lang-
tíma flúorálags á heilsu íslensks bú-
fjár.“ Loks, „af gefnu tilefni,“ segir
í síðustu ályktun fundarins: „Skor-
ar aðalfundur Umhverfisvaktarinn-
ar við Hvalfjörð á Matvælastofnun
að fylgjast vel með útigangshross-
um við Hvalfjörð sem og annars
staðar á landinu.“ mm
Góður rekstur og talsverðar framkvæmdir á HVE
Frá Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands berast góðar fréttir um þessar
mundir. Það er ekki aðeins að tækja-
búnaður sé að batna, með tilkomu
nýs tölvusneiðmyndatækis og unnið
sé að endurbótum húsnæðis og að-
stöðu stofnunarinnar vítt og breitt
um starfssvæðið, heldur hefur tekist
að halda uppi fullri þjónustu sam-
hliða því að rekstrinum hefur ver-
ið haldið innan fjárheimilda. Þetta
kom fram í spjalli sem Skessuhorn
átti við Guðjón Brjánsson forstjóra
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í
liðinni viku. „Frá hruni hefur sam-
dráttur numið um 27% hjá stofn-
uninni, fjórða hver króna horfið út
úr rekstrinum. Með útsjónarsemi,
stöðugri hagræðingu á öllum svið-
um og elju starfsmanna hefur okk-
ur tekist að halda í horfinu. HVE
er líklega eina heilbrigðisstofnun-
in á landinu sem náð hefur að halda
fjárlög hin síðari ár. Styrkur okkar er
góð fagleg þjónusta og mjög ábyrg
fjárhagsleg og rekstrarleg umsýsla.“
Guðjón segir það líka sérstakt fagn-
aðarefni í allri umræðunni um flótta
lækna til útlanda að nú í vikunni
var að byrja hjá HVE nýútskrifað-
ur sérfræðingur í almennum skurð-
lækningum. Nýi liðsmaðurinn heit-
ir Árni Þór Arnarson og er frá Borg-
arnesi. Hann var að flytja heim frá
Svíþjóð og mun starfa við hlið Fritz
Berndsen núverandi yfirlæknis.
Sameiningin
reynst styrkur
Um starfsemi Heilbrigðisstofnun-
ar Vesturlands sagði Guðjón með-
al annars að á sjúkrahúsið á Akra-
nesi væru um 2000 innlagnir á ári.
„Þrátt fyrir niðurskurð höfum við
haldið sjó og ekki orðið þjónustufall
á lækningastarfseminni. Við höfum
bætt við á sumum sviðum sem öfl-
ugt sjúkrahús sem ekki aðeins þjón-
ar Vesturlandi heldur einnig öllu
suðvesturlandi í ríkum mæli. Sér-
staklega varðandi þær aðgerðir þar
sem þörfin hefur verið mest; í lið-
skiptum, aðgerðum tengdum kven-
sjúkdómum og kviðslits- og gall-
blöðruaðgerðum, svo eitthvað sé
nefnt. Í heilsugæslunni er starf-
semin í eðlilegu horfi, þó erfiðleik-
ar hafi verið við mönnun sérstaklega
er varðar lækningaþáttinn, einkum á
Snæfellsnesi. Þar hafa læknar komið
til skemmri viðveru og þannig tek-
ist að halda þjónustunni í nokkuð
föstum skorðum. Starfsemi háls- og
bakdeildar í Stykkishólmi hefur ver-
ið öflug. Þar hefur sjúklingum fjölg-
að þrátt fyrir að þrengt hafi að starf-
seminni almennt.“ Guðjón segir að
styrkur sameiningar heilbrigðistofn-
ana á Vesturlandi hafi meðal ann-
ars komið fram varðandi afleysing-
ar sem grípa þurfi til þegar starfsfólk
veikist eða forfallast af öðrum ástæð-
um. „Þá hefur fólk verið tilbúið að
færa sig milli starfsstöðva tímabund-
ið. Þetta hefur einkum verið á hjúkr-
unarsviði og í ljósmæðraþjónustu.“
Miklar framkvæmdir
á döfinni
Þessi misserin og árin eru á döf-
inni miklar endurbætur á húsnæði
og aðstöðu víða á svæði Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands, enda legu-
deildir og byggingar margar hverjar
komnar til ára sinna. Í aðalbyggingu
sjúkrahússins á Akranesi er nýbúið
að endurnýja loftræstikerfi, eins og
við greindum frá í frétt í Skessuhorni
í liðinni viku. Er sú framkvæmd um
leið fyrsta skrefið í endurbótum á
legudeildum. Þær hafa verið nán-
ast óbreyttar frá upphafi, handlækn-
ingadeildin frá 1968 og lyflækninga-
deildin frá 1978. Fyrir dyrum stend-
ur að bjóða út endurbætur á starfs-
mannabústaðnum við sjúkrahúsið
á Akranesi sem hýsir nema, vakt-
hafandi lækna og verðandi foreldra
sem koma víða að til að eignast börn
sín á Akranesi. Vinna er hafin við að
hanna endurbætur á legudeildum
sjúkrahússins og er stefnt að því að
endurnýja aðra þeirra næsta vetur. Í
Búðardal verður í vor endurnýjað í
heilsugæslustöðinni; afgreiðsla, bið-
stofu og tannlæknastofu. Á Hólma-
vík verður endurnýjuð starfsmanna-
íbúð á þessu ári. Í Stykkishólmi er
verið að ljúka við endurnýjun and-
dyris og nýrrar borðstofu fyrir
starfsfólk sjúkrahússins og sjúklinga
á háls- og bakdeild. Sú framkvæmd
eykur hagræðingu og bætir að-
stöðu starfsmanna. Guðjón segir að
stóra verkefnið í Stykkishólmi sé að
tryggja peninga til að unnt verði að
samþætta hjúkrunar- og öldrunar-
þjónustu undir eitt þak í sjúkrahúss-
byggingunni. Til þess þurfi að ráð-
ast í miklar breytingar á húsinu. Þá
segir hann að í Ólafsvík standi fyrir
dyrum utanhúss viðgerðir á heilsu-
gæslustöðinni. Í Borgarnesi séu ekki
stórar framkvæmdir á döfinni enda
hafi átt sér stað miklar endurbætur
á húsnæði heilsugæslustöðvarinnar
síðustu árin. Viðhald og endurbæt-
ur á húsnæði HVE eru unnar í góðri
samvinnu við stjórnendur Fasteigna
ríkissjóðs, segir Guðjón.
Vantar skýli vegna
sjúkraflutninga
Það er þó margt fleira sem þyrfti
að gera og er á endurbótalistanum
hjá stjórnendum HVE. Áralangt
baráttumál hefur að sögn Guðjóns
verið að fá skýli við sjúkrabílamót-
tökuna á Akranesi. Þar sem sjúkling-
ar eru færðir úr sjúkrabílunum und-
ir beru lofti í misjöfnum veðrum.
Sjúkraflutningar að og frá á sjúkra-
húsinu á Akranesi eru 1400-1500
á ári. Þá má í lokin nefna að núna
er unnið að sérstöku átaksverkefni
í Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Það er að allt starfsfólk beri sérstakt
auðkenniskort. Það er liður í aukn-
um öryggisráðstöfunum í ljósi atvika
sem komu upp á síðasta ári á þremur
stöðum á starfssvæðinu. Aðgangs-
kerfi hefur verið sett upp hjá HVE
á Akranesi til að takmarka umferð
fólks utan dagvinnutíma. Sömuleið-
is verða settar upp öryggismynda-
vélar og innbrotsvarnakerfi á öllum
starfsstöðvum HVE á þessu ári, til
viðbótar þeim öryggisbúnaði sem
þegar er fyrir hendi.
þá
Guðjón Brjánsson forstjóri HVE.