Skessuhorn - 25.02.2015, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Pennagrein
Stefna í atvinnumálum
einstaklinga með fötlun
Vinnuhópur um stefnumótun
þjónstu við einstaklinga með fötlun í
Borgarbyggð starfaði á haustmánuð-
um 2014. Hópurinn skilaði skýrslu
í janúar sl. Þar er farið yfir hvernig
þjónustan er og lagðar til breyting-
ar til batnaðar þar sem við á. Ýmsar
hugmyndir komu fram og unnið var
út frá, allt frá breytingum á vinnulagi
til betra húsnæðis fyrir Fjöliðjuna.
Innihald skýrslunnar í heild verður
kynnt á opnum fundi í mars. Dag-
setning verður nánar auglýst síðar.
Velferðarnefnd og starfsmenn
félagsþjónustunnar munu stuðla að
því að markvisst verði unnið að þeim
tillögum sem hópurinn setti fram.
Ein af þessum tillögum var að leggja
til að sveitarstjórn samþykki tillögu
að stefnu sveitarfélagsins um at-
vinnumál einstaklinga með fötlun.
Tillagan var samþykkt samhljóða á
fundi sveitarstjórnar 12. febrúar sl.
og er á þennan veg: „Sveitarstjórn
samþykkir að stefna Borgarbyggðar í
atvinnumálum einstaklinga með fötl-
un verði að þeim sé gefinn kostur á
vinnu og/eða starfsþjálfun hjá öllum
stofnunum sveitarfélagsins. Í hverju
tilviki skuli fyrst og fremst vera tek-
ið mið af þörfum, áhuga og getu við-
komandi einstaklings. Forstöðu-
menn stofnana Borgarbyggðar sýni
gott fordæmi og vinni ætíð að því í
samvinnu við starfsfólk félagsþjón-
ustunnar að útfæra verkefni þannig
að þau henti sem best.“ Samvinna
við stofnanir sveitarfélagsins hef-
ur að mestu gengið vel undanfarin
ár, auk þess sem í okkar ágæta sam-
félagi eru ýmiss fyrirmyndarfyrir-
tæki á þessum vettvangi. En okkur
fannst mikilvægt að hafa stefnu til að
fylgja, til að samvinnan við stofnanir
sveitarfélagsins gangi ekki að mestu
vel, heldur alltaf vel. Við í vinnu-
hópnum erum ánægð með viðbrögð
sveitarstjórnar og bindum vonir við
að þessi nýsamþykkta stefna verði
enn frekari hvatning fyrir atvinnulíf-
ið í heild, til að gefa einstaklingum
með skerta starfsgetu kost á að starfa
á almennum vinnumarkaði. Það er
okkur öllum mikilvægt að vera virk-
ir þátttakendur í samfélaginu, eiga
okkar vinnufélaga og njóta þess að
sinna áhugaverðu starfi.
Fyrir hönd vinnuhópsins,
Hulda Hrönn Sigurðardóttir.
Pennagrein
Bjart framundan í knattspyrnunni á Akranesi
K n a t t -
spyrnu-
félag ÍA á
Akranesi var stofnað árið 1946 og
er það sigursælasta knattspyrnu-
lið karla á Íslandi frá upphafi. Um
síðustu áramót voru iðkendur í
Knattspyrnufélagi ÍA um 530 tals-
ins á breiðu aldursbili og er félagið
stærst íþróttafélaga undir merkjum
Íþróttabandalags Akraness.
Árið 2014 var viðburðaríkt og
gjöfult fyrir Knattspyrnufélag ÍA.
Meistaraflokkur karla vann aftur
sæti í efstu deild þar sem sterk liðs-
heild og samheldni var einkenn-
andi fyrir hópinn. Meistaraflokk-
ur kvenna féll úr efstu deild en lið-
ið fékk mjög góða reynslu sem mun
nýtast í baráttunni um sæti meðal
þeirra bestu fljótt aftur. Mjög góð-
ur árangur náðist hjá yngri flokk-
unum hjá báðum kynjum og unnust
t.d Íslandsmeistaratitlar hjá þremur
flokkum og nokkrir flokkar voru
mjög nálægt verðlaunasætum.
Samtals voru leiknir 444 opin-
berir leikir á árinu 2014 í öllum
flokkum Knattspyrnufélags ÍA.
Slíkt umfang leikja er ekki mögu-
legt nema með góðri samvinnu
iðkenda, þjálfara, starfsmanna, að-
standenda, dómara og vallarstarfs-
manna og ber að þakka öllu þessu
góða fólki fyrir frábær störf. Ekki
má heldur gleyma að þakka fyr-
ir mikilvægan stuðning fyrirtækja
sem styrktu félagið og Akranes-
kaupstað sem er eigandi og rekstr-
araðili knattspyrnumannvirkja á
Akranesi.
Þann 19. febrúar síðastliðinn
hélt Knattspyrnufélag ÍA aðal-
fund. Fundurinn var vel sóttur og
á honum kynnti Haraldur Ing-
ólfsson framkvæmdastjóri félags-
ins góða fjárhagsstöðu, en hagn-
aður á árinu 2014 var um 400 þús-
und krónur og engar skuldir hvíla
á félaginu. Einnig voru kynntar
helstu niðurstöður stefnumótunar-
vinnu sem unnið hefur verið að síð-
astliðið ár hjá félaginu í samvinnu
við um 100 einstaklinga úr röðum
foreldra, leikmanna meistaraflokka
karla og kvenna, þjálfara, stjórnar-
fólks og styrktaraðila. Alls komu
fram um 400 umbótatillögur og
þau atriði sem hæst skoruðu tengj-
ast því að efla og styrkja aðkomu
Akraneskaupstaðar að starfinu, efla
tengsl við aðstandendur og stuðn-
ingsmenn og bæta enn frekar gæði
þjálfunar. Einnig kom fram krafa
um að nýta betur upplýsingatækni
og samfélagsmiðla til að miðla upp-
lýsingum um starfið.
Framundan er fótboltaárið 2015
og þá þarf Knattspyrnufélag ÍA að
ná fram þeim mikilvæga kjarna bar-
áttu og sigurgleði sem hefur ein-
kennt gula og glaða um langt ára-
bil. Til þess þurfa allir sem að fé-
laginu koma að ganga í takt með
það að markmiði að vera í fremstu
röð bæði varðandi uppeldis- og af-
reksstarfið og að hvetja leikmenn
til dáða á vellinum. Verum gul og
glöð, áfram ÍA !
Magnús Guðmundsson
Freisting vikunnar
Íslendingar eru margir hverjir hrifn-
ir af mat og sætabrauði frá hinum
Norðurlöndunum. Sænskar kjöt-
bollur og vanillusnúðar, danskt
smurbrauð og purusteik eru eitthvað
sem margir elska. En frændur okkar
Norðmenn eru líka liðtækir í eldhús-
inu. Þeir hafa úrval frábærra kokka
og standa oftar en ekki uppi sem sig-
urvegarar í alþjóðlegum matreiðslu-
keppnum. Við ætlum þó ekki að
fara í flóknar uppskriftir frá norsk-
um matreiðslumeistara í þetta skipt-
ið, heldur birtum við hér uppskrift
af norskum skólabollum, eða norsku
„skolebrød“ eins og það kallast á
móðurmálinu. Bollurnar eru pass-
lega sætar, með vanillukremi og kó-
kósmjöli. Oftast eru þær bornar fram
sem eftirréttur eða með kaffinu. Þær
eru með vinsælli sætabrauði þar ytra
og auðvelt er að baka þær. Það er því
ekki úr vegi að birta uppskriftina og
hvetja lesendur Skessuhorns til að
prófa.
Norskt „skolebrød“
50 gr ger
½ tsk lyftiduft
1 dl sykur
100 gr brætt smjör
4 dl. mjólk
1 tsk salt
1 tsk kardimommudropar
1,2 lítrar hveiti.
Aðferð:
Bræðið saman smjör og mjólk, þar til
blandan er volg. Setjið gerið út í og
hrærið varlega. Blandið sykri, lyfti-
dufti, salti, kardimommum og hveit-
inu út í og hnoðið vel. Látið deig-
ið hefast í um 30 mínútur, eða þar
til það hefur nánast tvöfaldast. Mót-
ið bollur úr deiginu og gerið holu
í bollurnar miðjar. Látið bollurn-
ar hefast aftur, í amk. 15 mínútur.
Setjið vanillukrem ofan í holuna og
bakið við 225 gráður í miðjum ofni
í um 10-12 mínútur. Kælið bollurn-
ar, skreytið með smá glassúr og dýfið
þeim í kókósmjöl.
Vanillukrem:
½ líter mjólk eða rjómi
100 gr. sykur
35. gr. maizenamjöl
½ vanillustöng eða svolítið af vanillu-
sykri
4 eggjarauður.
Hrærið vel saman eggjarauðum,
maizenamjöli og sykri í skál. Setj-
ið mjólk/rjóma í pott með vanillu-
fræjum úr stönginni ásamt stöng-
inni út í. Hitið vel og hrærið í allan
tímann. Þegar mjólkin sýður hellið
varlega saman við eggjablönduna.
Hellið blöndunni til baka í pottinn
og hitið í litla stund. Hrærið vel á
meðan, þar til blandan þykknar að-
eins. Mikilvægt er að kæla blönduna
hratt, færið í stóra skál og setjið í ís-
skáp. Takið vanillustöngina úr eftir
að blandan er kæld.
Girnilegar norskar skólabollur
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Skattframtöl / bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta og skattframtöl fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
Lilja Halldórsdóttir - Viðurkenndur bókari
LH bókhald ehf
LHbokhald@gmail.com Finndu okkur á facebook
Upplýsingar í síma 571-7787 / 897-5144
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3