Skessuhorn - 25.02.2015, Side 31
31MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Skagamenn unnu
sannfærandi sigur á
Íslandsmeisturum
Stjörnunnar þeg-
ar liðin áttust við í
Lengjubikarkeppn-
inni í fótbolta síðastliðinn
laugardag. Spilað var í Akraneshöll-
inni. Það var hinn ungi og efnilegi
Ásgeir Marteinsson sem kom Skaga-
mönnum yfir snemma leiks með
glæsilegu skoti efst í markhornið
frá vítateigi. Skagamenn voru mun
ákveðnari en gestirnir og spiluðu
vel bæði í vörn og sókn. Gestirn-
ir voru lítið að ógna marki Skaga-
manna, einungis í byrjun seinni
hálfleiks sem þeir virtust hafa hug á
því að gera eitthvað róttækt. Því var
fljótt hrundið af hálfu heimamanna
og það var síðan algjörlega í takt
við leikinn þegar Arnar Már Guð-
jónsson bætti við öðru marki upp
úr glæsilegri sendingu frá Arnari
Gunnlaugssyni á 74. mínútu. Eftir
það voru Skagamenn ekki langt frá
því að bæta við þriðja markinu enda
vildu þeir mun meira í þessum leik
en gestirnir.
ÍA er þar með komið með góða
stöðu í sínum riðli, sex stig að lokn-
um tveimur fyrstu umferðunum,
eins og reyndar Keflavík. Í næstu
umferð fara Skagamenn norður og
mæta Þór í Boganum fimmtudags-
kvöldið 26. febrúar. þá
Frjálsíþróttafólk úr Ung-
mennasambandi Borgarfjarð-
ar náði frábærum árangri á
Meistaramóti Íslands 15-22 ára
sem fram fór í Laugardalshöll-
inni um síðustu helgi. Um 250
keppendur voru á mótinu, þar
af fimm keppendur frá UMSB.
Árangur þeirra var einn Ís-
landsmeistaratitill, tvö silfur og
eitt brons ásamt tveimur hér-
aðsmetum og ellefu persónu-
legum metum. Arnar Smári
Bjarnason varð Íslandsmeistari
í hástökki þegar hann vippaði
sér yfir 1,74 m í flokki pilta 15
ára og bætti sig um sjö senti-
metra. Hann varð síðan í öðru
sæti í 60m hlaupinu á 7,77 sek
og þriðji í 60 m grindarhlaupi.
Grímur Bjarndal Einarsson
var hársbreidd frá sigri í þrístökk-
inu þegar hann stökk 12,66 og
varð í öðru sæti á nýju héraðsmeti.
Hann bætti einnig héraðs-
metið í grindarhlaupinu þeg-
ar hann hljóp á 8,96 sekúnd-
um og varð í fjórða sæti. Árni
Hrafn Hafsteinsson bætti sig
um fimm sekúndur í 800m
og varð í fimmta sæti. Tvær
stúlkur frá UMSB kepptu í
flokki 16-17 ára, í 60m hlaupi,
langstökki og hástökki. Ingi-
björg Brynjólfsdóttir bætti ár-
angur sinn í öllum greinunum
og stóð sig mjög vel. Sömu
sögu er að segja af nýliðanum
Hafrúnu Birtu Hafliðadóttur
sem tók þátt í sínu fyrsta stór-
móti. Um næstu helgi mun
svo sameiginlegt lið frá Vest-
urlandi keppa í Bikarkeppni
15 ára og yngri og keppa und-
ir merkjum Sam-Vest.
þá
Skagamenn öruggir í úrslitakeppnina
Skagamenn tryggðu sér á fimmtu-
daginn sæti í úrslitakeppni í 1. deild-
ar í körfubolta þegar þeir lögðu
Breiðablik 102:91 í íþróttahúsinu
við Vesturgötu. ÍA er eftir sigurinn
með 20 stig í 4. sæti deildarinnar
þegar fjórar umferðir eru eftir. Lið
í sætum tvö til fimm keppa um eitt
sæti í úrvalsdeildinni. Efsta liðið fer
beint upp og ljóst er að það verður
Höttur. Fjögur liðin sem keppa um
hitt sætið verða Hamar, FSu, ÍA og
líklega Valur.
Skagamenn voru betra liðið
lengst af gegn Breiðabliki og Jam-
arco Warren í miklum ham. Hann
skoraði tæpan helming stiga Skaga-
liðsins. ÍA var með sjö stiga forskot
eftir fyrsta leikhluta 29:22. Tólf
stigum munaði á liðinum í hálfleik
í stöðunni 51:39 fyrir ÍA og áfram
bættu Skagamenn við forustuna í
þriðja leikhluta. Staðan var 79:62
fyrir lokafjórðunginn og þrátt fyr-
ir að heimamenn slökuðu aðeins
á undir lokin var sigurinn örugg-
ur og aldrei í hættu. Jamarco War-
ren skoraði 48 stig fyrir ÍA, Magn-
ús Bjarki Guðmundsson 12, Birk-
ir Guðjónsson og Áskell Jónsson
9 stig hvor, bræðurnir Ómar Örn
og Fannar Freyr Helgasynir 7 stig
hvor, Þorleifur Baldvinsson 6 og
Erlendur Þór Ottesen 4 stig.
Í næstu umferð mæta Skagamenn
Valsmönnum á Hlíðarenda og fer
leikurinn fram föstudagskvöldið
27. febrúar. þá
Fannar Freyr Helgason sækir að körfu Breiðabliks.
Ljósmynd Jónas Hallgrímur Ottósson.
Grímur Bjarndal og Arnar Smári komust báðir á
verðlaunapall á mótinu.
Góður sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar
Guðmundur Hreiðarsson ráðinn
markmannaþjálfari ÍA
Guðmundur Hreiðarsson mark-
mannaþjálfari íslenska landsliðs-
ins í knattspyrnu hefur samið við
ÍA um að sjá um markmannaþjálf-
un í meistaraflokki karla. Samning-
urinn gildir til loka tímabils 2015.
Guðmundur hefur mikla reynslu af
markmannaþjálfun en auk þess að
vera hluti af þjálfarateymi íslenska
landsliðsins um árabil hann hef-
ur séð um markmannaþjálfaraskóla
KSÍ og einnig um þjálfun markvarða
hjá KR frá árinu 2008 til 2014. Jón
Þór Hauksson yfirþjálfari ÍA seg-
ir mjög ánægjulegt að hafa fengið
Guðmund til liðs við félagið. „Við
erum sannfærðir um að markmenn
okkar þeir Árni Snær og Páll Gísli
muni njóta góðs af reynslu hans. Við
lítum líka á þetta sem mikið tæki-
færi fyrir Pál Gísla að hefja sinn feril
í markmannaþjálfun. Eyþór Óli sem
hafið hefur störf sem markmanna-
þjálfari annars flokks karla og þriðja
og fjórða flokks kvenna mun einn-
ig koma að þessu samstarfi þannig
að við teljum að koma Guðmund-
ar muni hafa sterk áhrif á allt okkar
starf í kringum markmenn ÍA.” segir
Jón Þór. þá
Guðmundur í miðjunni ásamt tveimur
af markmönnum ÍA, þeim Árna Snæ
Ólafssyni og Guðmundi Sigurbjörns-
syni.
Baráttusigur grundfirsku blakkvennanna
Blaklið Ungmennafélags Grund-
arfjarðar tók á móti Fylki í fyrstu
deild kvenna fimmtudagskvöld-
ið 19. febrúar. Grundfirsku stúlk-
urnar voru dottnar niður í fjórða
sæti deildarinnar eftir að hafa tap-
að fyrir Ými og HK-b á dögun-
um. Nokkur skjálfti var í heima-
stúlkum því gestirnir í Fylki unnu
fyrstu hrinuna 25-22 og kom-
ust í 1-0. Eftir það bitu Grundar-
fjarðarstúlkur í skjaldarrendur og
mættu grimmar til leiks. Þær jöfn-
uðu metin í 1-1 með því að vinna
næstu hrinu 25-21 og þriðju hrin-
una 25-11 og komust í 2-1. Mik-
il spenna var í fjórðu hrinu er lið-
in skiptust á að ná forystunni en
með dyggum stuðningi áhorfenda í
stúkunni náðu heimamenn að landa
sigri í hrinunni 25-21 og unnu því
leikinn 3-1. Næsta fimmtudag fá
þær svo Stjörnuna-a í heimsókn í
Grundarfjörðinn. tfk
Nýr golfhermir tekinn í notkun hjá Leyni
Félagsmenn í Golfklúbbnum Leyni á
Akranesi fjölmenntu á opið hús laug-
ardaginn 14. febrúar þegar nýr golf-
hermir var kynntur. Þessi nýi búnað-
ur býður upp á ýmsa möguleika svo
sem að leika á golfvöllum um allan
heim. Bay Hill á Florida, The Belfry
í Bretlandi, Firestone í Bandaríkj-
unum og Gleneagles í Skotlandi eru
meðal margra spennandi golfvalla
sem hægt er að spila á í herminum.
Margir félagar í Leyni hafa nú þegar
prófað golfherminn og mörg glæsi-
leg högg verið slegin. Golfhermirinn
er í vélaskemmu GL og geta félags-
menn pantað tíma á leynir@leynir.
is. Nýi hermirinn mun bæta æfinga-
aðstöðuna til muna hjá kylfingum í
Leyni og um leið efla golfstarfið. þá
Frábær árangur UMSB fólks á MÍ í frjálsum íþróttum
Tíu keppendur frá Keilufélagi
Akraness tóku þátt í Íslandsmóti
unglinga undir 18 ára sem fram fór
í Egilshöll um helgina. Þeir stóðu
sig frábærlega og unnu til fjölda
verðlauna á mótinu. Unglingarnir
frá Akranesi unnu fimm gull af tíu
mögulegum, þar af bæði aðalverð-
laun mótsins. Jóhanna Ósk Guð-
jónsdóttir og Aron Freyr Benteins-
son sigruðu tvöfalt, bæði í opn-
um flokki og sínum aldursflokk-
um. Fimmta gullið vannst í þriðja
flokki pilta þar sem Ólafur Sveinn
Ólafsson sigraði í harðri keppni við
tvo félaga sínum af Skaganum. Jó-
hann Ársæll Atlason, sem reyndar
var efstur eftir forkeppnina, varð í
öðru sæti og Arnar Daði Sigurðs-
son í því þriðja. Úrslitaleikurinn í
kvennaflokki var líka hreinn Skaga-
leikur þar sem Jóhanna Ósk sigraði
Natalíu Guðrúnu Jónsdóttir.
Til viðbótar þessum góða árangri
má geta þess að Skúli Freyr Sig-
urðsson varð á dögunum í öðru sæti
í opnum flokki á Íslandsmóti full-
orðinna og fylgdi þar eftir góðum
árangri sínum á Reykjavíkurleikun-
um. Keilufélag Akranes á tvö lið í
undanúrslitum bikarkeppni Keilu-
sambandsins sem fram fer núna í
vikunni. Þá keppti Magnús Sigur-
jón Guðmundsson á sterku móti
í Póllandi um síðustu helgi. Það
mót var í Evrópumótaröðinni og
varð Magnús Sigurjón í 33. sæti á
mótinu þar sem keppendur voru á
annað hundrað.
þá
Frábær árangur unglinga í keilu
Lið Keilufélags Akraness sem náði frábærum árangri á Íslandsmóti unglinga.