Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.2015, Qupperneq 6

Skessuhorn - 11.03.2015, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015 Varavegi illa viðhaldið SKÓGARSTRÖND: Mik- il ófærð og erfiðleikar voru á Holtavörðuheiði á sunnudag, fjöldi björgunarsveitarmanna var að störfum allan daginn, og margir bílar fastir. Eftir að heiðinni var lokað um fimm- leytið á sunnudag var umferð- inni beint yfir Laxárdalsheiði og um Heydal. Engu að síður var fólki komið fyrir í Reykja- skóla og félagsheimlinu Ás- byrgi á Laugarbakka en um 300 gistu á þessum stöðum. Halldís Hallsdóttir á Bíld- hóli við Heydalsveg, þar sem gatnamótin eru inn á Skóg- arstrandarveg, segir að mikil umferð hafi verið um veginn. „Það er oft hér mikil umferð en samt eins og aldrei megi minnast á þessa vegi. Þeim er mjög illa við haldið en þykir sjálfsagt að nota þá þegar aðrir vegir eru lokaðir, en svo henda þeim þess á milli,“ segir Hall- dís. Hún er ósátt með hvað Heydalsvegi og Skógarstrand- arvegi er gefinn lítill gaumur og illa viðhaldið. -þá Skothvellir hjá meindýraeyði SNÆFELLSNES: Lögregl- unni var tilkynnt í liðinni viku um að það væru líklega nokkr- ar dínamítstúpur með kveiki- þræði í vegkantinum á Vatna- leiðinni. Lögregla fór strax á staðinn og ljósmyndaði túp- urnar. Þær reyndust við grein- ingu sérfræðinga að sunnan vera leifar frá skoteldatertu sem ekki hafði tekist að nota um áramótin og einhverra hluta vegna hafði endað þarna út í vegarkantinum. Lögregl- an bleytti vel í þessum sko- teldaleifum og fór með þær á förgunarstöð. Þá var lög- reglu tilkynnt um skothvelli á hafnarsvæðinu í Grundarfirði í vikunni. Í ljós kom að þar var meindýraeyðir að störfum sem hafði öll sín leyfi í lagi en gleymdi að láta lögregluna vita fyrirfram um hvað til stóð. –þá Athugun með forskóla GRUNDARFJ: Bæjar- ráð Grundarfjarðar hefur að beiðni bæjarstjórnar gert til- lögu að skipan starfshóps og skilgreint verkefni hans. Starfshópurinn skal fara yfir hvort heppilegt sé að setja á stofn forskóla fyrir leikskóla- börn. Hópurinn kanni hvernig staðið hefur verið að slíku fyr- irkomulagi hjá öðrum sveitar- félögum, gerð verði könnun meðal foreldra og húsnæðis- mál skoðuð. Starfshópurinn geri tillögur um aðgerðir á grundvelli vinnu sinnar. Nið- urstaða skal byggjast á faglegri vinnu og því hvað best sé fyrir börnin. Miðað er við að tillög- ur liggi fyrir í lok aprílmánaðar næstkomandi. Bæjarráð legg- ur til að starfshópurinn verði skipaður þeim Sveini Elin- bergssyni, sem verði formað- ur, Björgu Karlsdóttur, Gerði Ólínu Steinþórsdóttur, Sig- ríði G. Arnardóttur, Guðrúnu Jónu Jósepsdóttur og einum fulltrúa frá leikskólaráði. –þá Kylfan reyndist kústskaft VESTURLAND: Tilkynnt var til lögreglunnar á Vesturlandi að piltur væri hlaupandi á eftir öðrum með kylfu á lofti á Akranesi. Við athugun kom í ljós að tveimur vin- um hafði sinnast og náðist að tala þá til. Sögð kylfa reyndist svo vera kústskaft þegar til kom. Alls urðu tólf umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi í lið- inni viku. Þar af voru tvær rút- ur sem að fóru útaf, önnur í roki á Fiskilækjarmelum en hin í hálku við hótel Glym í Hvalfirði. Minni- háttar meiðsli urðu er rúturnar fóru útaf, en einn farþeginn, full- orðinn maður, viðbeinsbrotnaði er hann var á gangi á vettvangi eftir að óhappið varð. Einn ökumaður sem ók áberandi hratt á þjóðvegin- um í gegnum umdæmið var stöðv- aður af lögreglunni. Við athugun kom í ljós að hann hafði ekki ein- ungis gerst brotlegur með því að aka of hratt því hann var einnig án ökuréttinda og auk þess undir áhrifum fíkniefna. Hraðamynda- véla- og sektadeild lögreglunnar á Vesturlandi hefur afgreitt rúmlega 4000 sektir fyrir of hraðan akstur frá áramótum en embættið er með flestar hraðamyndavélar landsins á sinni könnu. –þá Illa útbúnir ferðamenn VESTURLAND: Illviðrasamt hefur verið á Vesturlandi að und- anförnu. Því fylgir aukið álag hjá lögreglunni sem og björgunar- sveitum. Auk landans sem lendir í vandræðum þá er þar að auki ótrú- legur fjöldi erlendra ferðamanna á ferðinni í óveðri og illfærð og það jafnvel á ólíklegustu stöðum. Eru margir þeirra án nægjanlegs skjól- fatnaðar illa útbúnir til vetrarferða. Sumir virðast ekki gera greinar- mun á vegum og slóðum og ana því oft út í ófærur og festa sig. Ein- um erlendum ökumanni var kom- ið undir læknishendur eftir að lög- reglan hafði komið honum til að- stoðar og var hann orðinn blaut- ur, kaldur og blár í framan, að sögn lögreglu. –þá SK ES SU H O R N 2 01 5 Bæjarstjórn Akraness samþykkti nýlega reglur vegna sjóðs sem veitir styrki til viðhalds fasteigna á Akranesi. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til endurgerðar eða viðgerða á ytra byrði húsnæðis eða öðrum mannvirkjum á Akranesi til að bæta ásýnd ákveðinna svæða í umdæmi Akraneskaupstaðar. Fasteignaeigendur við Skólabraut og Kirkjubraut að Merkigerði geta sótt um styrk á þessu ári. Opnað hefur verið fyrir umsóknir og skal sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði. Með umsókninni skal fylgja greinargóð verklýsing/teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum ásamt kostnaðaráætlun. Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl. Fyrirspurnir skulu berast til skipulags- og umhverfissviðs í síma 433 1000 eða í tölvupósti á akranes@akranes.is. Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér reglur sjóðsins á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Einnig er umsækjendum bent á hugmyndavinnu Kanon arkitekta um svæðið í kringum Akratorg en þær er að finna á vef Akraneskaupstaðar. Styrkir vegna viðhalds fasteigna á Akranesi Auglýst eftir umsóknum „Ég býst við að mikill tími á fund- unum fari í að kynna nýja upp- byggingars jóð- inn. Þessum sjóði er fyrst og fremst ætlað að ein- falda og samhæfa styrki til byggða- aðgerða í nýsköp- un og menning- armálum á Vest- urlandi eins og álíka sjóðum sem stofnaðir verða í öðrum landshlut- um við gerð nýrrar sóknaráætlunar 2015-2019,“ segir Páll S Brynjars- son framkvæmdastjóri SSV í sam- tali við Skessuhorn. Páll segir að í sjóðinn fari fjárveitingar sem runn- ið hafa til Vaxtarsamnings Vestur- lands og Menningarsamnings Vest- urlands, sem var um 50 milljónir á síðasta ári. „Ég á von að fjármagn í sjóðinn verði svipað fyrst í stað og runnið hefur til þessa málaflokka síðustu árin,“ segir Páll. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa á næstu dögum fyrir kynningarfund- um um nýja sóknaráætlun Vestur- lands. Fundirnir verða haldnir í bæjarþingsalnum á Akranesi mánu- daginn 16. mars kl. 17, Dalabúð þriðjudaginn 17. mars kl. 17:30, Fjölbrautaskóla Snæfellinga mið- vikudaginn 18. mars kl. 16:30 og í Stjórnsýsluhúsinu Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi sama dag klukkan 20. Í tilkynningu vegna fundanna segir meðal annars að móta þurfi fram- tíðarsýn fyrir Vesturland, skilgreina átaksverkefni og stofna Uppbygg- ingarsjóð Vesturlands. Úr sjóðn- um verður úthlutað styrkjum til nýsköpunar í atvinnulífi og menn- ingarmála og kemur hann í staðinn fyrir Vaxtarsamning Vesturlands og Menningarsamning Vesturlands. þá Páll S Brynj- arsson. Kynningarfundir um uppbyggingarsjóð og nýja sóknaráætlun

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.