Skessuhorn - 11.03.2015, Síða 7
7MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Skipulagsauglýsingar í Borgarbyggð
Sveitarstjórn hefur samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulög:
Seláshverfi – breytt deiliskipulag
Sveitarstjórn samþykkti 11. septemer 2014 að auglýsa breytingu á gildandi deiliskipu-
lagi frístundasvæðis skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010, skv. skipulagsupp-
drætti dags. 20.08.2014, sem felur m.a. í sér breytta aðkomu að hluta svæðisins.
Urðarfellsvirkjun í landi Húsafells 3 – nýtt deiliskipulag
Sveitarstjórn samþykkti 4. mars 2015 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Urðar-
fellsvirkjun í landi Húsafells III skv. 1.mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og um-
hverfisskýrslu, skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Skipulagssvæðið er vestast á jörðinni Húsafelli og felur deiliskipulagstillagan í sér
virkjun Deildargils sem rennur í Hvítá, inntak og stífla verður ofarlega i Deildargili í
norðarhluta Urðarfells. Fallpípa verður um 3.200 m löng og stöðvarhús verður við
Reyðarfellsskóg.
Bjarnhólar sorpförgunarsvæði – nýtt deiliskipulag
Sveitarstjórn samþykkti 15. desember 2015 deiliskipulag Bjarnhóla - sorpförgunar-
svæði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinagerð dags. 27.
nóvember 2014 og felur meðal annars í sér skilgreiningu á sorpförgunarsvæði. Með
tillögunni fylgir umhverfisskýrsla dags. 8. apríl 2014 og einnig áhættumat og við-
bragðsáætlun frá árinu 2013.
Samþykkt að tillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga
123/2010.
Nálgast má gögnin á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi
Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi frá 16. mars til og með 27. apríl 2015.
Athugasemdir eða ábendingum skal skila fyrir 27. apríl 2015 annað hvort í Ráðhús
Borgarbyggðar eða á netfangið: lulu@borgarbyggd.is og skulu þær vera skriflegar.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að
auglýsa eftirfarandi lýsingar:
Munaðarnes 1. áfangi
– lýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi
Sveitarstjórn samþykkti að láta auglýsa lýsingu fyrir breytingu á deiliskipulagi við
Munaðarnes, 1. áfanga. Í breytingunni felst meðal annars að tvö skipulagsvæði verði
sameinuð og bætt verði við fimm lóðum. Lýsingin er sett fram í greinargerð dags.
janúar 2015.
Munaðarnes 2. áfangi
– lýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi
Sveitarstjórn samþykkti að láta auglýsa lýsingu fyrir breytingu á deiliskipulagi við
Munaðarnes, 2. áfanga. Í breytingunni felst meðal annars að tvö skipulagsvæði verði
sameinuð og bætt verði við 10 lóðum við Jötnagarðsás, afmarkaðar fjórar stakar
lóðir, skilgreint útivistarsvæði og göngustígar. Lýsingin er sett fram í greinargerð dags.
janúar 2015.
Nálgast má gögnin á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi
Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi frá 16. mars til og með 30. mars 2015.
Athugasemdir eða ábendingum skal skila fyrir 30. mars 2015 annað hvort í Ráðhús
Borgarbyggðar eða á netfangið: lulu@borgarbyggd.is og skulu þær vera skriflegar.
Lulu Munk Andersen
Skipulags- og byggingarfulltrúi Borgarbyggðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Aðalfundur
Aðalfundur Íþróttafélagsins Þjóts verður haldinn
26. mars kl. 20.00 í sal Brekkubæjarskóla á Akranesi.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Stykkishólmsbær
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur - Sími: 433-8100
Tillaga að deiliskipulagi – Nýrækt
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti
26. feb.2015 að auglýsa tillögu að deiliskipu-
lagi Nýræktar skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga
nr.123/2010.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag. Svæðið er um 35ha og
liggur í jaðri þéttbýlis Stykkishólms, austan við Byrgis-
borg. Á svæðinu hefur verið stundað húsdýrahald frá því
um 1933-35. Stærsta holtið nefnist Grensás og þar er
skógrækt. Markmið deiliskipulags er að skilgreina lóðir
fyrir frístundabúskap, dýraspítala og skógrækt.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á vef Stykk-
ishólmsbæjar www.stykkisholmur.is og á skrifstofu
skipulags- og byggingarfulltrúa, Hafnargötu 3 á skrifstofu-
tíma frá 10-14 frá fimmtudeginum 12. mars til 24. apríl
2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna og koma ábendingum
eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og
byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, 340
Stykkishólmur, í síðasta lagi 24. apríl 2015.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Árni G Aðalsteinsson ljósmyndari
er búsettur í Ólafsvík. Hann sýn-
ir nú ljósmyndir í Guðnýjarstofu,
Safnasvæðinu í Görðum á Akra-
nesi. Árni stundar útiveru og hefur
mikinn áhuga á umhverfinu. Sýn-
ingin samanstendur af ljósmyndum
sem sýna árstíðirnar haust, vetur og
vor á utanverðu Snæfellsnesi. Við
allar myndirnar er stuttur texti sem
segir frá viðkomandi stað. Sýningin
stendur til 22. mars og er opin alla
daga kl. 13-17.
-fréttatilkynning
Hjá Norðuráli er í undirbúningi
að hefja framleiðslu á svokölluðum
boltum eða börrum. Sú framleiðsla
kallar á tíu milljarða króna fjárfest-
ingu og stækkun húsnæðis um sjö
þúsund fermetra. Aðalkostnaðurinn
í umræddri fjárfestingu felst í því að
breyta formi unnins ál úr hleifum í
bolta eða barra. Stækkun húsnæðis
myndi meðal annars þýða stækkun
steypuskála. Ragnar Guðmundsson
forstjóri Norðuráls segir að for-
svarsmenn fyrirtækisins telji þetta
tækifæri til að auka verðmæti fram-
leiðslunnar og bæta samkeppnis-
stöðuna til lengri tíma. Unnið væri
að verkfræðilegum undirbúningi,
að meta kostnað og hanna verk-
efnin en endanleg ákvörðun lægi
ekki fyrir. Ragnar sagði ennfremur
í samtali við Skessuhorn að á síð-
asta ári hafi verið tekin ákvörðun
um framleiðslu á melmi, sem er ál-
blanda. Hófst sala á því í ársbyrj-
un og er áætlað að selja 50 þúsund
tonn af melmi á ári. Ragnar seg-
ir að melmið sé meðal annars nýtt
mikið til framleiðslu á bílfelgum
og með framleiðslunni á melminu
geti nú framleiðendur fengið hrá-
efnið beint frá fyrirtækinu. Norð-
urál hafi verið að selja ál til bíla-
framleiðslu, meðal annars Merce-
des Benz í gegnum millilið. Áætl-
anir um stækkun ef af verða gera
ráð fyrir framkvæmdum á næstu
misserum og að auknum umsvifum
fylgi einhver fjölgun starfsmanna.
þá
Stefnt að stækkun
hjá Norðuráli
Norðurál á Grundartanga.
Ljósmyndasýningin Útnes –
Undir jökli er á Akranesi