Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Veiðifélag Ytri Rangár hefur auglýst
klak- og seiðaeldisstöðina á Laxeyri
í Borgarfirði til sölu. Félagið hefur
átt og rekið stöðina síðan 2002 og
alið í henni laxaseiði til sleppinga
í veiðiár í Borgarfirði, á Snæfells-
nesi, Vestfjörðum og allt norður í
Fljót í Skagafirði. Auk þessa hafa
verið ræktuð svokölluð gönguseiði
til sleppinga í Ytri Rangá á Suður-
landi. „Veiðifélag Ytri Rangár hef-
ur nú tekið þá stefnu að láta reyna
á að veiðifélagið einbeiti sér að sín-
um eigin málum en láti aðra um
annan rekstur sem er Ytri Rangá
óviðkomandi. Veiðifélagið vill lifa
einföldu lífi. Þess vegna er stöðin
til sölu,“ segir Þorgils Torfi Jóns-
son, framkvæmdastjóri fiskeldis-
stöðva veiðifélags Ytri Rangár, í
samtali við Skessuhorn.
Samdráttur hjá
veiðifélögum
Þorgils segir að rekstur stöðvarinn-
ar á Laxeyri hafi í sjálfu sér geng-
ið ágætlega. „Hinu ber þó ekki að
neita að veiðifélögin í laxveiðiánum
sem hafa keypt seiði frá stöðinni
hafa verið að minnka seiðakaup
undanfarin ár. Þetta er afleiðing
af þessari efnahagskreppu sem við
lentum í hér á Íslandi. Verð á veiði-
leyfum í ánum hafa fallið mikið, að
minnsta kosti 10-20% með tilheyr-
andi tekjusamdrætti. Í veiðifélögun-
um hafa menn í kjölfar þessa leitast
við að reyna að verja arðgreiðslurn-
ar en frekar sparað við sig í seiða-
kaupum.“ Veiðifélag Ytri Rangár á
einnig og rekur seiðaeldisstöðina
við Húsafell. „Félagið ætlar að eiga
Húsafellsstöðina áfram. Þar verður
stundað seiðaeldi fyrir Rangárnar,“
segir Þorgils.
Nokkrir sýnt áhuga
Laxveiðin olli víða vonbrigðum á
síðasta sumri. Það gæti því hallað
enn undan fæti hjá veiðifélögun-
um. „Í sjálfu sér var þó ágæt veiði
í sumar hjá okkur í Veiðifélagi Ytri
Rangár. Áin gaf rúmlega þrjú þús-
und laxa. Veiðin var þó almennt séð
mjög léleg síðasta sumar.“
Fiskeldisstöðin á Laxeyri á að
sögn Þorgils að eiga góða rekstr-
armöguleika. „Það má hæglega
breyta stöðinni til að stunda í henni
eldi á bleikju eða ala og selja seiði í
matfiskaeldi. Þetta er fín fiskeldis-
stöð. Nú um stundir er mikill vöxt-
ur og gróska í fiskeldi hér á landi.
Gengi krónunnar er hagstætt til út-
flutnings og ekki annað að sjá en at-
vinnugreinin gangi vel. Við viljum
fá á bilinu 50 – 60 milljónir króna
fyrir stöðina. Rekstur hennar ætti
að geta skapað atvinnu í héraðinu.
Seljist stöðin ekki þá gæti verið að
henni þyrfti að loka. Það eru þó-
nokkrir aðilar búnir að hafa sam-
band til að spyrjast fyrir um stöð-
ina. Þó ekki neinir stórir aðilar í
fiskeldi hér á landi, hvað svo sem
síðar kann að verða,“ segir Þorgils
Torfi Jónsson. mþh
Nýr veitingastaður var opnaður í
Borgarnesi síðastliðinn laugardag.
Það er fyrirtækið Grillhúsið sem
rekið hefur veitingastaði í Reykjavík
í 23 ár sem færir með þessu kvíarnar
út á land og setur á fót nýtt Grillhús
þar sem hingað til hefur verið rek-
inn sölu- og veitingaskálinn Stöðin.
„Fyrsti veitingastaðurinn okkar var
settur upp í Tryggvagötu í Reykja-
vík og er það enn. Síðan opnuðum
við árið 2010 stað í húsinu þar sem
áður var veitingastaðurinn Sprengi-
sandur við Bústaðaveg. Nú er röðin
komin að Borgarnesi,“ segir Þórður
Bachmann annar eigenda Grillhúss-
ins í samtali við Skessuhorn.
Sama „konsept“
og í bænum
Þórður segir að veitingareksturinn
í Borgarnesi verði með sama sniði
og fyrirtækið hefur haft í Reykja-
vík. „Hér er svo til sami matseðill
og við erum með á stöðunum fyr-
ir sunnan. Við verðum með forrétti,
smárétti og létta rétti. Síðan bjóðum
við upp á fisk, steikur, rif, kjúklinga-
spjót, lambaspjót og ágætt úrval af
hamborgurum og samlokum. Þetta
verður allt undir nafni og merkj-
um Grillhússins. Skeljungur sem var
áður með rekstur hér í húsinu hættir
því en verður áfram með eldsneytis-
sölu. Við tökum hins vegar við versl-
uninni hér og verðum svo með veit-
ingar í sal. Hann hefur verið innrétt-
aður alveg upp á nýtt. Þar verður
pláss fyrir 70 manns,“ segir Þórður.
Grillhúsið í Borgarnesi verð-
ur að sögn Þórðar opið meira og
minna alla daga ársins. „Húsið, það
er verslunin, verður opnuð um níu-
leytið en veitingasalan sjálf klukkan
11. Síðan verður lokað klukkan 22 á
kvöldin og 23 um helgar. Við byrj-
um að minnsta kosti svona og sjáum
svo til.“
Tuttugu manna
vinnustaður
Reiknað er með að um 20 manns
starfi á Grillhúsinu, bæði í heilum
störfum og hlutastörfum. Rekstr-
arstjóri verður Eva Karen Þórðar-
dóttir. „Við erum að tala um 12 – 14
stöðugildi hér í það heila. Alls erum
við með um 80 – 90 manns á launa-
skrá í fyrirtækinu. Við vonum bara að
heimamenn og ferðalangar taki vel í
þessa nýbreytni. Reynsla okkar úr
Reykjavík sýnir að umferðin er mest
á matmálstímum og svo um helgar.
Við verðum með ýmsa rétti í hádeg-
istilboðum og helgarbröns. Svo höf-
um við hefð fyrir því að gera alltaf
eitthvað sérstakt fyrir afmælisbörn á
öllum aldri sem hingað koma,“ segir
Þórður Bachmann.
Fullt út úr dyrum við
opnunina
Eva Karen Þórðardóttir veitinga-
stjóri segir að Grillhúsið verði góð
viðbót við veitingaflóruna í Borgar-
nesi. Lögð verði áhersla á afmælis-
hópa og þá muni afmælisbarnið fá
eftirrétt í boði hússins ásamt stjörnu-
ljósi og jafnvel söng. Sömuleiðis
mun staðurinn bjóða upp á „bröns“
um helgar sem sé eitthvað sem hafi
vantað í Borgarnes. Alla virka daga
verða réttir dagsins og alltaf hægt að
panta af matseðli. Í tilefni opnunar-
innar á laugardaginn fengu öll börn
frían mat af barnamatseðli og voru
leyst út með ís og blöðrum. Greini-
legt var að barnafólk tók þessu til-
boði fagnandi enda var fullt út úr
dyrum þegar blaðamaður Skessu-
horns leit við um kvöldmatarleytið.
mþh/eha
Síðasta sumar var farið í talsverð-
ar framkvæmdir við Kirkjufells-
foss í Grundarfirði. Var aðgengi að
fossinum lagað til að mæta auknum
straumi ferðamanna. Það hefur svo
komið á daginn að ekki var vanþörf
á þar sem nánast er sama á hvaða
tíma sólarhringsins er, óháð veðri,
þá eru ferðamenn við fossinn.
Hvort sem menn eru í dagsbirtu,
sólsetri, norðurljósum eða við sól-
arupprás; alltaf eru ljósmyndarar og
aðrir náttúruunnendur að spóka sig
þarna. Líklega á umferðin þó ein-
ungis eftir að aukast þarna þegar sól
hækkar á lofti og nær dregur vori.
tfk
Við sögðum frá því í frétt í síð-
asta Skessuhorni hversu nærri
mannabústöðum tófan er í seinni
tíð farin að láta sjá sig. Þannig
skaut Snorri Jóhannsson tólf tófur á
einni nóttu sem gengu í æti nokkra
metra frá fjárhúsunum á Sigmund-
arstöðum í Þverárhlíð. En dæmin
er fleiri. Síðastliðið föstudagskvöld
gaf húsfreyjan í Tröð í Kolbeins-
staðahreppi smáfuglunum matar-
afganga í garðinum við íbúðarhús-
ið, en það hefur hún gert í mörg ár.
Síðdegis sáu menn að tófa var far-
in að hnusa að matarleifunum og
gera sig líklega til að ná sér í bita
þarna uppi við húsvegginn. Guð-
mundur Símonarson tengdasonur
hjónanna í Tröð var staddur í heim-
sókn en hann er slyng tófuskytta.
Með því að liggja við opið náði
hann að skjóta tvo refi um kvöld-
ið og sá til fleirri. Aðspurður sagði
Guðmundur að tófan væri farin að
haga sér allt öðruvísi en hún gerði.
Áður hafi t.d. þurft að fara afar var-
lega að grenjum til að ná árangri,
en nú hafi hegðun hennar breyst.
Tófan sé spakari og sé því ekki með
varann á sér eins og áður. Tófurnar
sem skotnar voru við Tröð á föstu-
daginn voru vel haldnar. Það er
gagnstætt ástandi þeirra sem skotn-
ar voru í uppsveitum Borgarfjarð-
ar að undanförnu. Þær hafa flest-
ar verið magrar og greinilega ekki
haft úr miklu að moða.
mm
Fiskeldisstöðin á Laxeyri í Hálsasveit sett á sölu
Fiskeldisstöðin á Laxeyri hefur verið starfrækt þar í um þrjá áratugi.
Þessi mynd var tekin af nokkrum starfsmönnum stöðvarinnar haustið 2013. Yst til
vinstri á myndinni er Jón Guðjónsson stöðvarstjóri. Hann mun starfa áfram fyrir
Veiðifélag Ytri Rangár sem ætlar að eiga og reka seiðaeldisstöðina í Húsafelli.
Barnmargar fjölskyldur létu ekki tilboðið fram hjá sér fara á opnunardaginn.
Ljósm. eha
Grillhúsið opnað í Borgarnesi
Þórður Bachmann annar eigenda Grillhússins og Jón Friðrik Snorrason mat-
reiðslumeistari í veitingasal nýja staðarins í Borgarnesi. Ljósm. mþh. Tófan farin að sækja í
fuglamatinn upp við hús
Stöðug umferð ferðafólks
við Kirkjufellsfoss