Skessuhorn - 11.03.2015, Page 17
17MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Óskum Golfklúbbnum Leyni til hamingju með 50 ára afmælið
í dag. Þar má nefna Íslandsmótið í
höggleik, Íslandsmót Öldunga, Ís-
landsmót unglinga, Landsmót 35
ára og eldri, sveitakeppni GSÍ í 1.
deild karla og kvenna auk stigamóta
karla, kvenna og unglinga. Má með
þessari upptalningu staðfesta að
Garðavöllur sé einn af betri keppn-
isvöllum landsins.“
seþ
Reitt til höggs í kvöldsólinni á Garðavelli. Ljósm. fh.
Gunnar Júlíusson og Þorsteinn Þorvaldsson á góðri stundu á gömlu 5. braut
vallarins. Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness.
Sjáumst í sumar!
Spennandi afmælisár framundan
- Formaður Leynis leyfir sér að dreyma um nýja félagsaðstöðu
„Þetta verður spennandi ár fyrir
okkur í Leyni og mörg skemmti-
legt verkefni á dagskrá,“ segir
Þórður Emil Ólafsson formaður
Golfklúbbsins Leynis þegar hann
er inntur eftir hápunktunum á af-
mælisárinu.
„Við hefjum afmælisdagskrána á
sjálfan afmælisdaginn 15. mars þar
sem við bjóðum félagsmönnum
Leynis í kaffiboð í golfskálanum. Í
maí ætlum við að gefa út veglegt
afmælisblað þar sem stiklað verð-
ur á stóru í sögu klúbbsins með ít-
arlegum viðtölum við frumherja
klúbbsins og þá sem hafa lagt lóð
sín á vogarskálarnar í starfi klúbbs-
ins. Við munum bjóða styrktar-
aðilum, fulltrúum samstarfsaðila
klúbbsins og GSÍ í sérstakt af-
mælismót sem fram fer í júní. Há-
punkturinn hjá okkur verður sjálft
Íslandsmótið í golfi sem fram fer
dagana 23.-26. júlí. Þetta er í ann-
að sinn sem við fáum þann heiður
að halda stærsta golfmót hvers tíma-
bils og það er mikill hugur í félags-
mönnum að gera mótið eftirminni-
legt fyrir keppendur og gesti,“ seg-
ir Þórður.
Framkvæmdir og endurbætur við
Garðavöll munu halda áfram sam-
kvæmt framkvæmdaáætlun vallar-
nefndar. „Í haust munum við hefja
framkvæmdir við endurnýjun á 18.
flötinni og verður það fyrsta skref-
ið í endurbyggingu á gömlu flöt-
um Garðavallar. Hvað framtíð-
ina varðar þá er draumurinn að
sjá nýja félagsaðstöðu byggða upp.
Þessi aðstaða sem við höfum í dag
hefur dugað okkur vel í gegnum
tíðina en miðað við áætlanir okkar
þá mun þessi aðstaða springa utan
af klúbbnum fljótlega.
Það er samt sem áður lykilat-
riði að passa upp á það að Garða-
völlur verði áfram á meðal fimm
bestu valla landsins. Þannig fáum
við aukna aðsókn á völlinn. Við
erum upp á það komnir að völlur-
inn standist gæðakröfur kylfings-
ins og það er verkefni sem tekur
aldrei enda,“ sagði Þórður. seþ
Þórður Emil Ólafsson.