Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.2015, Page 18

Skessuhorn - 11.03.2015, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015 Hver hefði trúað því að Strætó ætti eftir að frelsa hundruð ferðalanga frá því að vera veðurtepptir norðan heiða og leiða fólkið suður yfir fjöll- in þegar öll sund virtust lokuð? Gísli Jónsson strætóbílstjóri frá Skelja- brekku í Andakíl þekkir landið og þjóðvegina. Á sunnudagskvöld sýndi hann og sannaði að nútíma Strætó á landsbyggðinni er annað og meira en venjulegur strætisvagn. Staðarskáli var troðfullur af fólki á suðurleið sem taldi sig veðurteppt því Holtavörðu- heiði væri lokuð. Gísli vissi betur, tók frumkvæðið og leiddi tæplega 50 bíla lest út úr prísundinni alla leið suður. Harðákveðinn að skila sínum farþegum Við hittum Gísla á mánudagskvöld þar sem hann átti hvíldartíma í að- stöðu strætóbílstjóra í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Þennan dag ók hann leiðina Borgarnes-Akranes-Reykja- vík. Daginn áður hafði hann hins vegar verið með 50 farþega rútu á leiðinni milli Akureyrar og Borgar- ness. Við fengum Gísla til að segja söguna. „Þetta atvikaðist nú þannig að ég var á suðurleið frá Akureyri, kom- inn í Varmahlíð, og fékk þá að vita að Holtavörðuheiðin væri lokuð. Það væri vonlaust að fara með fólkið suð- ur. Þeir fyrir sunnan vildu að ég sneri bara aftur við til Akureyrar. Ég harð- neitaði. „Nei, kemur ekki til greina. Ég ætla að fara í Staðarskála,“ sagði ég. Ég var nefnilega með fullt af far- þegum sem voru að fara á Sauðár- krók, Blönduós og fleiri staði á leið- inni áður en kæmi að Staðarskála og Holtavörðuheiði. Ég hélt því áfram,“ sagði Gísli. Ekkert hugfall við Holta- vörðuheiði Hann ók áfram þar til komið var í Staðarskála sem var að fyllast af fólki. Holtavörðuheiðin var koló- fær. Gísli var hins vegar með farþega sem höfðu keypt sér far til Reykja- víkur. „Ég fékk nýtt símtal að sunnan og var spurður hvað ég ætlaði að gera nú? Vegurinn yfir heiðina væri enn lokaður. Ég svaraði að ég ætlaði til Reykjavíkur. Menn hváðu og þá svar- aði ég þeim að ég hygðist fara Lax- árdalsheiði frá Hrútafirði yfir í Dali. „Það þýðir ekkert, Brattabrekkan er líka lokuð,“ var svarað. „Já, ég veit það,“ sagði ég. „Ég ætla að fara út á Skógarströnd og svo um Heydalinn og Mýrarnar suður.“ „Nú?“ heyrði ég bara í símanum. Menn vissu greinilega lítið um þá leið.“ „Já, ég ætla bara að fara hér inn og fá mér að borða og svo er ég farinn,“ sagði ég við þá. Svo leið smá tími og þá hringdi síminn aftur og mér tjáð að sunnan að það væri búið að sam- þykkja þetta ef ég teldi sjálfur að það væri eitthvað vit í þessu. „Það verð- ur að koma í ljós eftirá en ég ætla að fara,“ sagði ég.“ Fjöldinn slæst í hópinn Gísli fór fram í salinn í Staðar- skála að reyna að ná farþegum sín- um saman. „Þar var alveg pakkað af fólki, setið í hverju einasta sæti og óhemju margt fólk sem stóð. Bara mannhaf. Klukkan var eitt- hvað um hálf níu þarna um kvöld- ið. Það fór að kvisast út þegar ég leitaði að mínu fólki að ég væri að fara. Þessi fregn fór um allan sal- inn því allir voru að spá í hvað væri hægt að gera. Það var ekkert aðlað- andi að sitja fastur í Staðarskála á sunnudagskvöldi. Þarna var margt fólk á suðurleið sem þurfti að mæta í vinnu morguninn eftir. Einn far- þegi úr annarri rútu kom til mín og bað mig að koma með sér að tala við bílstjórann hjá sér. Sá bílstjóri var þessi bráðmyndarlega kona. „Ekki datt mér í hug að bílstjórinn liti svona út, ég hélt ég væri að fara að hitta einhvern grindhoraðan gamlan karl sem þyrði ekki að fara hérna yfir. Þú þarft ekki að segja mér að þú þorir ekki að fara,“ sagði ég við hana. „Ég rata ekki neitt, má ég koma á eftir þér?“ spurði hún. Það hélt ég nú,“ segir Gísli og hlær við endurminninguna. „Og það var með ólíkindum að þessi hugmynd fór um allan sal- inn, allir skyldu leggja af stað og elta mig. Við fórum sennilega 40 til 50 bílar í einni lest frá Staðar- skála. Það var ansi blint uppi á Lax- árdalsheiðinni en ég var með ljós- kastara á rútunni og sat hátt svo ég sá vel. Og svona keyrði öll hersing- in. Hver og einn las ljósin á bíln- um fyrir framan og þannig ók fólk þetta. Við vorum tvo og hálfan tíma að keyra þetta frá Staðarskála hing- að suður í Borgarnes.“ Strætó en ekki snjó- ruðningstæki Í útvarpsfréttum á mánudag var sagt að það hefði verið snjóruðningstæki sem leiddi þessa bílalest suður yfir Laxárdalsheiði, um Skógarströnd og Heydal. „Það var ekki rétt. Það var Strætó sem gerði það,“ segir Gísli. Hann kallar eftir því að fólk sé upplýst um þessa samgönguleið milli norður- og suðurhluta lands- ins þegar ófærð ríkir á Holtavörðu- heiði og í Bröttubrekku. Þetta sé í annað sinn í vetur þar sem hálfgert neyðarástand ríki með tilheyrandi umstangi og fjöldahjálparstöðv- um fyrir veðurteppt fólk við Holta- vörðuheiði á meðan sú leið sem hann valdi á sunnudagskvöld sé greiðfær. „Það voru engar ráðlegg- ingar í Staðarskála til fólks. Ég hef rætt þetta við lögregluna og feng- ið þau svör að embættismenn geti ekki ráðlagt fólki að fara varaleiðir í ríkjandi ófærð því slíku fylgi eins konar ábyrgðarskylda. Það sé hins vegar annað mál þegar bílstjóri eins og ég taki af skarið. Mér finnst þetta undarlegt. En ég gerði þó allavega gagn þarna,“ sagði Gísli og hló. Djöfulleg færð í vetur Gísli er fyrrum bóndi á Mið-Foss- um í Andakíl en hefur stundað akst- ur undanfarin ár. Fyrst ók hann fyr- ir Sæmund Sigmundsson en síð- an hjá Strætó þegar fyrirtækið hóf áætlunarakstur út á land. „Fyrst keyrði ég Reykjavík-Akranes-Borg- arnes. Fljótlega guggnuðu þeir sem voru að keyra norður í land því það þótti svo erfitt. Þá var leitað að manni með reynslu og ég sett- ur í þetta. Það er auðvitað rosa- lega erfitt að keyra þessa leið norð- ur, yfir þrjá fjallvegi að fara og oft í brjáluðum veðrum. Það er búið að vera djöfulleg færð í vetur. Rokið er búið að vera svo mikið. Ég hef orð- ið að fara beint úr Borgarnesi norð- ur í land vegna þess að ég hef ekki komist suður til Reykjavíkur vegna þess að vegurinn er lokaður. Við erum bundnir út af tryggingunum. Við megum ekki keyra á rútunum ef vindurinn fer yfir 32 metra á sek- úndu. Þetta er bara regla og ekk- ert tillit tekið til þátta eins og það hvernig bílarnir eru, hvort vegur- inn sé blautur eða þurr eða neitt þannig. Það er bara ein tala sem ræður þessu,“ segir Gísli. mþh Nemendur í sjöunda bekk Grunda- skóla á Akranesi tókust á við ýmis samfélagsverkefni í síðustu viku. Norðurál styrkti bekkinn til rútu- ferðar norður að Reykjaskóla þar sem krakkarnir dvelja þessa vik- una við leik og störf. Í staðinn áttu þau að leysa af hendi þriggja tíma verkefni að eigin vali. Í því gat fal- ist að heimsækja íbúa á Höfða, fara í fjöruferð eða í þessu tilfelli, heim- sækja hóp Félags eldri borgara sem æfir og keppir í boccia. Fullorðna fólkið kenndi börnunum reglurn- ar og leiðbeindu þeim í íþróttinni. Síðan kepptu krakkarnir og full- orðnir tóku þátt. Hvað ungur nem- ur, gamall temur, á sjaldan betur við. mm Á Akranesi eru starfræktir veitinga- staðir þar sem fólk getur keypt mál- tíðir og veitingar. Meðal þeirra er Gamla kaupfélagið sem opnað var á Írskum dögum árið 2009. Gísli Þráinsson hefur starfað á Gamla kaupfélaginu nánast frá upphafi og á Írskum dögum árið 2011 tók hann við rekstrinum á sinni eigin kenni- tölu. Hann hefur frá þeim tíma leigt hús og búnað af eigendum Gamla Kaupfélagsins sem eru Ing- ólfur Árnason og fjölskylda. Í sam- tali við Skessuhorn sagðist Gísli svo sem hafa þekkt til rekstursins áður en hann tók við honum og vitað að ekki væri von á skjótum gróða þó hann gæti komið með tíð og tíma. „Það ætla sér náttúrlega allir að hagnast sem fara út í rekstur, það er ekki nema eðlilegt. Mitt markmið var að byggja þetta upp smám sam- an og auka veltuna. Það hefur tekist nokkuð vel. Ég held það sé allavega óþarfi að kvarta,“ sagði Gísli þegar blaðamaður Skessuhorns ræddi við hann á dögunum. Fimmtungs aukning frá því í fyrra Gísli sagði að þróunin síðustu fimm árin eða svo hafi verið þann- ig að sumrin séu orðin nokkuð ásættanleg en í heild sé reksturinn yfir vetrartímann erfiður. „Maður vill náttúrlega alltaf meira þannig að við getum alveg tekið við fleira fólki að sumrinu en því sem hef- ur verið að koma í bæinn. Kannski vantar að aðilar hér í ferðaþjón- ustunni í bænum séu nógu sam- taka, einhvern veginn finnst mér að ekki séu allir á sömu blaðsíðunni þar. Samt er mjög gott sem búið er að gera hérna við nýtt Akratorg og að betrumbæta gamla miðbæinn. Það koma þó góðir mánuðir yfir veturinn, desember var til dæmis mög fínn. Núna í febrúar var 20% aukning hjá mér frá sama mánuði í fyrra og ef sú þróun heldur áfram er full ástæða til bjartsýni. Ekki síst ef hafðar eru í huga fréttir um tölu ferðamanna til landsins í janúar síð- astliðnum, að þær hafi verið svip- aðar meðaltali sumarmánaða árið 2006. Ef fjölgun ferðamanna verð- ur álíka því sem spáð hefur ver- ið má ætla að við hérna á Akranesi fáum einhvern hluta kökunnar.“ Flytur inn borðbúnað frá þekktu fyrirtæki Samhliða því að byggja upp rekst- ur Gamla kaupfélagsins og leggja alla sína peninga og mest alla orku í það, er Gísli kominn út í lítinn hliðarrekstur. Það er innflutning- ur á borðbúnaði fyrir hótel og veit- ingastaði frá breska fyrirtækinu Ut- opia. „Hvatinn að þessu var að ég var að endurnýja borðbúnað hér og fannst dýrt það sem í boði var hér á landi. Þess vegna fór ég að leita að vöru til að flytja inn sjálfur og fann þá þetta vörumerki og uppgötv- aði öflugt atvinnutækifæri,“ seg- ir Gísli. Í gegnum Utopiu merkið býður hann upp á 4.000 vörunúm- er. „Þetta er fyrirtæki sem selur ein- göngu til heildsala og mitt fyriræki er „gs import“. Utopia er stærsta fyrirtækið í borðbúnaði í Bretlandi og hefur á sínum snærum framleið- anda fjölda þekktra gæðamerkja um allan heim. Í gegnum Utopia nýt ég lægstu verða og frá því ég fékk fyrstu sendinguna í lok októ- ber hefur salan verið töluverð. Ég hef fengið mánaðarlega sendingar síðan. Ég hef farið og kynnt vöruna en lítið auglýst. Ég er búinn að selja borðbúnað á nokkra stóra staði á höfuðborgarsvæðinu og núna eru í bígerð spennandi verkefni,“ sagði Gísli Þráinsson að lokum. þá Borgfirskur bílstjóri bjargvættur í brjáluðum byl Það var svona strætisvagn sem Gísli ók á sunnudagskvöld suður yfir heiðar án þess að þurfa að fara kólófæra Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Gísli Jónsson í snjómuggunni í Borgar- nesi á mánudagskvöld. Sólarhring fyrr bjargaði hann fjölda fólks frá því að verða veðurteppt næturlangt hið minnsta í Staðarskála í Hrútafirði. „Ef þróunin heldur áfram er full ástæða til bjartsýni“ Spjallað við Gísla Þráinsson í Gamla kaupfélaginu á Akranesi Gísli Þráinsson framkvæmdastjóri Gamla kaupfélagsins. Ljósmynd Emilía Ottesen. Fullorðnir kenndu unga fólkinu boccia

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.