Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.2015, Side 28

Skessuhorn - 11.03.2015, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015 Vörur og þjónusta PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.iswww.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Skattframtöl / bókhald Öll almenn bókhaldsþjónusta og skattframtöl fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Lilja Halldórsdóttir - Viðurkenndur bókari LH bókhald ehf LHbokhald@gmail.com Finndu okkur á facebook Upplýsingar í síma 571-7787 / 897-5144 SK ES SU H O R N 2 01 5 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða viðgerðarþjónusta á bílum, dráttarvélum og vélum tengdum landbúnaði Smur og hjólbarðaþjónusta velabaer@vesturland.is S K E S S U H O R N 2 01 3 Veiðisafnið á Stokkseyri hefur sett upp til sýningar byssur og persónulega muni frá Sveini Einarssyni veiðistjóra og Sigmari B. Haukssyni, en báðir eru þeir látnir. Er sýningin unnin í sam- vinnu ættingja og barna þessara veiði- manna. „Að öðrum ólöstuðum veiði- mönnum á Íslandi er ekki nokkur vafi á að báðir þessir menn höfðu áræði og áhrif svo eftir verður tekið er kemur að skotveiðisögu Íslands. Sveinn Ein- arsson var fyrsti veiðistjóri á Íslandi og gengdi því embætti í 26 ár en hann lést árið 1984. Sigmar B. Hauksson var landsþekktur veiðimaður og formað- ur SKOTVÍS til margra ára en hann lést árið 2012,“ segir í tilkynningu frá Veiðisafninu. mm HönnunarMars hefst í dag, mið- vikudaginn 11. mars. Meðal þeirra sem taka þátt í viðburðinum er Dýr- finna Torfadóttir gullsmiður. Hún verður ásamt fleirum með sýningu á tveimur stöðum í Reykjavík, í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg og í Þjóðminjasafni Íslands. Á báð- um sýningum gefur að líta nælur úr silfri í bland við íslenskt birki, litað og meðhöndlað með ýmsum hætti. -fréttatilkynning Hljómsveitin Eldberg sem á rætur að rekja í Borgafjörðinn, boð- ar til útgáfutónleika í tilefni útkomu breið- skífunar „Þar er heim- ur hugans.“ Tónleik- arnir verða í Tjarnar- bíói föstudaginn 20. mars. Á tónleikunum mun sveitin flytja tón- list af nýja diskinum í heild sinni „og að- eins í þetta eina skipti,“ eins og segir í tilkynningu en auk þess spilar hún eldra efni. Hljómsveitin Eldberg var stofnuð síðla árs árið 2008. Hana skipa Ás- mundur Svavar Sigurðsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Heimir Klem- enzson, Jakob Grétar Sigurðsson og Reynir Hauksson. Fyrsta plata sveit- arinnar, sem er sam- nefnd hljómsveitinni, kom út árið 2011. Platan fékk góðar við- tökur og hljómuðu lög eins og Sunnan við sól, austan við mána, Ég er lífsins brauð og Enginn friður oft á öldum ljós- vakans. Í kjölfar plöt- unnar spilaði sveitin víða um land við góð- ar undirtektir. Nokkru síðar var lagt af stað í annað metnað- arfullt verkefni sem nú lítur dagsins ljós. Hljómsveitin hefur ekki leikið opinberlega frá árinu 2012 og verð- ur því öllu tjaldað til á tónleikun- um, segir í tilkynningu frá Eldberg. Tónleikarnir í Tjarnarbíói hefjast klukkan 21 en húsið verður opnað kl. 20:00. Sala miða er á midi.is mm Þriðjudaginn 17. mars næstkom- andi gefa þeir Bjarni Árnason frá Brennistöðum og Snorri Jóhannes- son á Augastöðum gaum að slóðum og örnefnum Arnarvatnsheiðar með fyrirlestri í Bókhlöðu Snorrastofu, sem hefur fengið heitið „Smalað og veitt á Arnarvatnsheiði.“ Þeir félagar fjalla um göngur á heiðinni fyrir tíma mæðiveikigirð- inga, en þá smöluðu Húnvetning- ar og Borgfirðingar sameigninlega og réttuðu í Réttarvatnstanga. Þeir lýsa mannvirkjum og tóftum sem tilheyra þessum tíma og segja sögur af ferðum sem Borgfirðingar hafa átt fram til matarkistu sinnar og af- réttar. Arnarvatnsheiði hefur fyrir margra hluta sakir nokkra sérstöðu í hópi Íslandsheiða. Nægir þar að minna á vötnin óteljandi, sem hún geymir með nágranna sínum Tví- dægru, Hvannamóa Jónasar Hall- grímssonar, helli Surts í Hallmund- arhrauni, holu Falla-Eyvindar og sambýli við Eiríksjökul og Lang- jökul. Þessa upptalningu gætu flest- ir Íslendingar líklegast farið með, en heiðin býr yfir mörgu fleiru sem vert er að gaumgæfa. Það vita Borgfirðingar, sem marg- ir hverjir eiga erindi fram á heiði til veiða og smölunar ásamt þeim fjöl- mörgu sem finna þar hvíld og frið- sæld í faðmi draumalandsins. Í aug- um þeirra, sem notið hafa vistar á heiðinni sést gjarnan glampi þegar hana ber á góma og Snorrastofu er sérstakt ánægjuefni að geta boðið til kvöldstundar með þeim sem þekkja hana manna best, Bjarna Árnasyni og Snorra Jóhannessyni. Bjarni hefur þar um árabil safnað og skráð hnit og örnefni ásamt því að halda utan um sögur og fróðleik sem stöðunum tengjast. Snorra þarf vart að kynna við smölun, refaveið- ar og eftirlit á sömu slóðum. Bjarni bregður meðal annars upp korti af heiðinni með skráningu sinni á ör- nefnum og saman leiða þeir félagar gesti kvöldsins um lendur þessa rómaða fjársjóðs Borgfirðinga með fróðleik og sögum. Fyrirlesturinn er í samvinnu við SÖGU jarðvang og hefst kl. 20:30. Boðið verður til kaffiveitinga og aðgangur er kr. 500. -fréttatilkynning Djassinn mun duna á næstu tónleik- um Tónlistarfélags Borgarfjarðar í Landnámssetri fimmtudaginn 19. mars. Gítardúettinn DUO NOR, sem skipaður er þeim Ómari Ein- arssyni og Jakobi Hagedorn-Olsen hefur starfað um tíu ára skeið og haldið tónleika víða, meðal annars á Jazzhátíð Reykjavíkur. Nýverið bættist dúettinum liðsauki, bassa- leikarinn Jón Rafnsson, og koma þeir nú fram undir nafninu TRIO NOR. Tríóið flytur fjölbreytta og líflega tónlist. Stíllinn er á suðræn- um nótum en einnig heyrast áhrif frá klassískri tónlist og hefðbundn- ari djassi. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við Félag íslenskra tón- listarmanna - klassíska deild FÍH og FÍH með styrk frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Félagsmenn fá að venju frítt inn og aðrir greiða kr. 2000. Eldri borg- arar greiða kr. 1000. Tónleikarnir hefjast kl. 20. 30. Verið velkomin. –fréttatilk. Byssur og persónulegir munir veiðimanna Sveinn Einarsson. Sigmar B. Hauksson. Smalað og veitt á Arnarvatnsheiði – fræðsluerindi í Snorrastofu Bjarni Árnason með einn hníflóttan á hnakknefinu í leitum á heiðinni. Snorri Jóhannesson fjallkóngur í seinni leit. TRIO NOR í Landnámssetri Umslag nýju plötunnar; Það er heimur hugans. Eldberg með útgáfutónleika í Tjarnarbíói Dýrfinna tekur þátt í Hönnunar-Mars

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.