Skessuhorn


Skessuhorn - 08.04.2015, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 08.04.2015, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015 Næstkomandi föstudagskvöld, 10. apríl, verður söngleikurinn Grease frumsýndur í Bíóhöllinni á Akra- nesi á vegum leiklistarklúbbs nem- endafélags Fjölbrautaskóla Vest- urlands. Þetta er í fyrsta sinn sem Grease er settur upp á Skaganum. Uppsetningin er stór í sniðum, alls koma hátt í 70 manns að henni með einum eða öðrum hætti. Leikstjóri sýningarinnar er Hallgrímur Ólafsson, oftast kall- aður Halli Melló. Hann segir æf- ingar hafa gengið vonum framar en þó sé ýmislegt sem enn þurfi að huga að. „Leikhús gengur aldrei fyrr en rétt fyrir frumsýningu, þetta er bara endalaus vinna,“ seg- ir Halli og nefnir að æfingaferl- ið blekki með tímanum þá sem standa að uppsetningunni. „Það er æft í margar vikur, allir löngu hættir að hlæja að bröndurunum. Maður veit aldrei fyrr en áhorf- endur koma hvort þetta er gott eða ekki,“ bætir hann við og segir það gilda um allar uppsetningar, bæði í áhuga- og atvinnuleikhúsum. Ferl- ið sé í grunninn alltaf það sama, munurinn á atvinnu- og áhuga- leikhúsi birtist fyrst og fremst hjá þeim sem koma að uppsetningu verkanna. „Í atvinnuleikhúsi er þetta náttúrulega það sem maður starfar við. Maður mætir í vinnuna og veit nákvæmlega hvað maður gerir þann daginn. Svona áhuga- leikhús er að vissu leyti líflegra. Hér fylgist maður með krökkun- um bæta færni sína stórlega á ör- fáum vikum, það sér maður vitan- lega ekki hjá atvinnuleikurum. Það eru meiri læti á bak við, sérstaklega þegar maður vinnur með þessum aldurshópi,“ segir Halli og bros- ir. „Síðan er mjög skemmtilegt að sjá þessa ofboðslegu tilhlökkun til lokaniðurstöðunnar. Hér var ég til dæmis spurður þremur vikum fyr- ir frumsýningu hvenær við mynd- um æfa uppklappið og hvernig við hneigjum okkur. Það er það sem mér þykir leiðinlegast,“ bætir hann við og hlær. Hjördís Tinna Pálmadóttir og Heiðmar Eyjólfsson fara með hlutverk aðalpersónanna Sandy og Danny. Aðspurð hvernig mót- un persónanna hafi gengið segja þau hana langt komna en ljúki lík- lega ekki fyrr en á frumsýningar- degi. „Sandy er þessi ljúfa og góða stúlka sem veit samt alveg hvað hún syngur,“ segir Hjördís Tinna sem kveðst tengja aðeins við pers- ónu hennar. „Sú Sandy sem ég leik er kannski aðeins ákveðnari við Danny en sú sem birtist í bíó- myndinni,“ bætir hún við. Heið- mar tekur undir með Hjördísi Tinnu og nefnir að hann byggi sinn Danny mikið á bíómyndinni. „Ég get reyndar ekki dansað eins og hann,“ segir Heiðmar og hlær. Bæði Hjördís Tinna og Heiðmar hafa sungið opinberlega við hin ýmsu tilefni og segja sönginn ekki hafa vafist mikið fyrir þeim. „Við ætlum að syngja þetta í uppruna- legu tóntegundunum, það hefur ekki verið vandamál,“ segja þau. Lifandi tónlist og mikill söngur Tónlistin er fyrirferðamikill hluti sýningarinnar og það skiptir leik- stjórann miklu máli að flutning- ur hennar sé lifandi. „Hún gegn- ir mjög stóru hlutverki í sýning- unni. Þetta eru mikil söngatriði, tengd eru saman með leikþátt- um. Þess vegna var mikilvægt að velja sterka söngvara í aðalhlut- verkin, þannig verður sýning- in sem best. Svo myndi ég aldrei gera þetta án þess að vera með hljómsveit. Áhorfendur eiga að fá að njóta þess að allur flutningur sé lifandi,“ segir Halli. Undirleik- ur verður í höndum hljómsveit- ar sem sérstaklega var sett saman fyrir sýninguna. Hún verður stað- sett við hliðina á sjoppunni á móti aðalinngangi hússins, ekki á svið- inu. Þannig skilar hljómurinn sér sem best til áhorfendanna í saln- um. „Við verðum þarna frammi með skjá þar sem við sjáum sýn- inguna í beinni og heyrum allt sem fram fer,“ segir Birgir Þóris- son tónlistarstjóri. „Hljómsveitin verður íklædd búningum í stíl við leikarana og mun spila fyrir sýn- ingu meðan fólk gengur í salinn, í hléinu og svo auðvitað öll lögin í sýningunni,“ bætir hann við. „Þetta verður mikið fjör og við hvetjum alla til að koma og sjá þessa sýningu,“ segja þau Hjördís Tinna og Heiðmar og leikstjórinn tekur undir með þeim. „Það er al- veg frábært að koma heim og sjá kraftinn í sínum gamla heimabæ, að það séu miklu fleiri tækifæri, eins og þetta, sem voru ekki til staðar þegar ég var hér. Það er fleira í boði en bara fótbolti,“ seg- ir Halli að lokum. kgk Sungið af mikilli innlifun á æfingu. Ljósm. eo. Grease í Bíóhöllinni Heiðmar Eyjólfsson fer með hlutverk Danny. Ljósm. eo. Hjördís Tinna Pálmadóttir leikur Sandy í sýningunni. Ljósm. eo. Flutningaskipið Gitana kom til Ólafsvíkur annan páskadag með saltfar. Skipað var upp 900 tonnum af salti úr skipinu. Saltfiskvinnslu- fyrirtækið Valafell fékk 100 tonn og KG Fiskverkum í Rifi tók 300 tonn. Afganginum, það er um 500 tonn- um var skipað upp til geymslu við Ólafsvíkurhöfn. Fenginn var krani frá Borgarnesi sem hífir átta sekki í einu. Uppskipunin stóð fram eft- ir kvöldi. Skipið fór frá Ólafsvík um fimm morguninn eftir og sigldi Stykkishólms. þa Saltskip til Ólafsvíkur um páska

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.