Skessuhorn


Skessuhorn - 08.04.2015, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 08.04.2015, Blaðsíða 7
7MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015 Félag sauðfjárbænda í Borgarfirði hefur sent frá sér fréttaritið „Smal- ann“ fyrir þetta ár 2015. Það hef- ur komið óslitið út frá árinu 2001. Blaðið í ár er alls 40 síður að stærð. Þar er fjallað um mál tengd sauð- fjárræktinni í heild, ræktunarstarf á félagssvæðinu, starf félagsins og fleira. Smalanum er dreift á öll lög- býli í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Honum hefur einnig verið dreift á aðalfundi LS og víðar. Blaðið er í ár einnig lagt út á vefsetri Landssam- taka sauðfjárbænda, saudfe.is. Þar má nú líka finna öll tölublöð frá og með árinu 2002. Davíð Sigurðsson í Miðgarði, formaður Félags sauðfjárbænda í Borgarfirði, skrifar leiðara blaðs- ins. Þar segir meðal annars: „Það er því miður tilfinning mín að við séum að gefa of mikið eftir í því að halda lambakjötinu okkar að neyt- endum, það er kannski ekki okkur að kenna að verslanir senda bara út auglýsingar með tilboðum á svína og kjúklingakjöti, eða hvað? Þurf- um við ekki að fara að ýta betur við afurðastöðvunum í vöruþró- un, framsetningu og meðhöndlun? Það er ekki skemmtilegt að labba í gegnum verslanir og sjá fína lamba- kjötið okkar sem við höfum lagt okkur fram við að framleiða nán- ast eingöngu boðið frosið og gróf- sagað í þykkum plastpokum og á lægra verði en þekkist úti í hin- um stóra heimi. Þarna eru sóknar- tækifæri að mínu mati, ekki það að helstu sóknartækifæri greinarinn- ar eru í útflutningi, en við þurfum að geta verið stolt af lambakjötinu hér heima líka. Nú þegar styttist í næstu búvörusamninga þá þurfum við að taka höndum saman og kom- ast að sameiginlegri niðurstöðu um það hvernig við sjáum sauðfjár- rækt fyrir okkur sem atvinnugrein í framtíðinni. Núverandi kerfi er ekki gallalaust og við þurfum að vera ófeimin við að kynna okkur aðrar leiðir og passa okkur á því að festast ekki í því fari að horfa bara á það sem kemur sér best fyrir mig núna, við verðum að vera tilbúin að skoða þær leiðir sem koma sér best fyrir greinina í heild.“ mþh Skoða má árganga Smalans á vefsetri Landssambands sauðfjár- bænda (saudfe.is). Þar á meðal er nýjasta blaðið fyrir 2015. Þessar fegurðardrottningar fjárhúsanna eru frá Háhóli á Mýrum. Smalinn er kominn út Veiðidögum fjölgað á hrognkelsaveiðum Stjórnvöld ákváðu 31. mars að fjölga veiðidögum á grásleppuveiðum í 32. Það er fjölgun um 12 daga frá vertíð síðasta ár en þá voru veiðidagarnir 20 tals- ins. Sókninni í hrognkelsa- stofninn er stýrt með því að ákveða fjölda veiðidaga sem hverjum bát er heim- ilt að nota til veiða um hverja vertíð. Aukningin nú kemur til vegna þess að vísindamenn hafa ekki orðið varir við jafn mik- ið af grásleppu á Íslands- miðum og nú í vetur. Afla- brögð norðanlands hafa einnig gengið mjög vel sem styrkir þá trú manna að nú sé lag að auka veiðar. Fulltrúar Lands- sambands smábátaeigenda lögðu til að veiðidagarnir í ljósi þessa yrðu 36 tals- ins en stjórnvöld ákváðu hins vegar 32 daga. Þetta mun þó vera bráðabirgða- ákvörðun sem kæmi á til endurskoðunar síðar í vor telji menn efni og ástæð- ur til. Hefja má hrogn- kelsaveiðar við Vesturland í dag, 1. apríl með þeim takmörkunum þó að veið- ar eru ekki heimilaðar við innanverðan Breiðafjörð fyrr en 20. maí. mþh Unnið við grásleppunetin í Ólafsvík á vertíð síðasta árs. Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands verður haldinn á HVE Akranesi laugardaginn 25. apríl kl. 13:00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf1. Afhending sneiðmyndatækis til HVE2. Fundarmönnum gefst kostur á að skoða og fræðast um tækið í lok fundar Kaffiveitingar Stjórnin SK ES SU H O R N 2 01 5 Fimmtudaginn 9. apríl n.k. kl. 10.00 verður kynning á vegum þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns Íslands á Bókasafni Akraness. Ágúst Ó. Georgsson, safnvörður þjóð- háttasafns, kemur í heimsókn og segir frá starfsemi þjóðháttasafns og samstarfi við almenning sem sendir inn ýmsar upplýsingar og gögn til að varðveita „arfinn“. Allir velkomnir. Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranes.is Kynningarfundur á Bókasafni Akraness SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.