Skessuhorn


Skessuhorn - 08.04.2015, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 08.04.2015, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015 Verkföll Bandalags háskólamanna, BHM hófust í gær, þriðjudaginn 7. apríl. Guðjón S. Brjánsson for- stjóri Heilbrigðisstofnunar Vest- urlands segir verkföllin hafa víð- tæk áhrif á starfsemi HVE. „Í þess- ari viku eru geislafræðingar komn- ir í ótímabundið allsherjarverk- fall og lífeindafræðingar eru hluta dags í ótímabundnu verkfalli. Ljós- mæður, iðjuþjálfar og sjúkraþjálfar- ar fara í samstöðuverkfall á fimmtu- daginn 9. apríl og hefur það áhrif hér innanhúss. Alls eru átta starfs- menn okkar í allsherjarverkfalli og 22 munu taka þátt í samstöðu- verkfallinu á fimmtudaginn,“ segir Guðjón. Samstöðuverkfall mun hafa áhrif á 108 félagsmenn í Félagi geisla- fræðinga (FG) fóru í allsherjarverk- fall þann 7. apríl. Þar með eru þrír geislafræðingar á myndgreining- ardeild HVE farnir í ótímabund- ið verkfall. Það hefur þau áhrif að engin þjónusta er á myndgrein- ingardeild nema bráðaþjónusta. 215 félagsmenn í Félagi lífeinda- fræðinga (FL) eru í ótímabundnu verkfalli hluta dags, milli klukkan 8-12 frá 7. apríl. Þá fara fimm líf- eindafræðingar á HVE í verkfall, þar af einn í Stykkishólmi. Hafa þær aðgerðir áhrif á daglega þjón- ustu rannsóknarstofu HVE. Dreg- ið verður úr skipulögðum skurðað- gerðum vegna þess að rannsókn- argeta rannsóknarstofu er mjög skert við verkfallsaðgerðirnar. Öll aðildarfélög BHM sem eiga lausa samninga við ríkið fara í samstöðu- verkfall á fimmtudag. Alls taka 22 félagsmenn frá HVE þátt í því. Milli klukkan 12 -16 munu 281 félagsmaður í Félagi sjúkraþjálfara (FS), Iðjuþjálfafélagi Íslands (IÞÍ) og Ljósmæðrafélagi Íslands (LMFÍ) leggja niður störf til að sýna félögum sínum samstöðu. Þar af eru 22 aðilar á HVE og ljóst að samstöðuverkfall- ið mun hafa áhrif á stofnunina. Truflanir á ýmsum starfsþáttum „Helstu áhrif á HVE eru að með- an sjúkraþjálfarar eru í verkfalli þá falla niður bókaðir tímar einstak- linga ásamt því að um röskunar get- ur gætt á skurðaðgerðum, þar sem sjúkraþjálfarar koma að endurhæf- ingu þeirra sem fara í liðskiptaað- gerðir. Ef verkföll dragast á lang- inn má ætla að einna helst hafi að- gerðir sjúkraþjálfara mestu áhrif á HVE í Stykkishólmi þar sem starf- rækt er sérhæfð deild fyrir háls- og bakvandamál. Fimm af sjö sjúkra- þjálfurum HVE starfa þar. Á Akra- nesi hafa aðgerðir ljósmæðra helst áhrif og munu þrettán ljósmæður á HVE taka þátt í samstöðuverkfall- inu. Áhrif þess eru á alla þjónustu við verðandi foreldra. Mæðravernd verður ekki sinnt á þessum tíma og falla allir bókaðir tímar niður. Fæð- ingar teljast þó til bráðaþjónustu og þurfa verðandi mæður ekki að ótt- ast neitt í þessu tilliti,“ segir Guð- jón S Brjánsson. eha Skökkin við Akratorg er í fal- lega innréttað og hlýlegt kaffi- hús í hjarta Akraness sem opnað var síðastliðinn nóvember. Hildur Björnsdóttir og Hafdís Bergsdótt- ir sem reka fyrirtækið Skagaferð- ir ehf. og standa þar vaktina ásamt átta manna starfsliði. Stigvaxandi uppgangur Þær stöllur eru báðar kennara- menntaðar en Hildur er í leyfi frá kennslu til að sinna kaffihúsa- rekstrinum. „Það má segja að þetta hafi alltaf blundað í mér. Það er gaman að geta sameinað áhuga- málin með þessum hætti,“ segir Hildur í samtali við Skessuhorn. Aðaláhersla er lögð á gott kaffi, bakkelsi og gott brauðmeti á borð við panini. Alla virka daga er svo réttur dagsins í hádeginu. „Þá erum við með mjög fjölbreytt úr- val, íslenskan og erlendan mat, kunnuglegan og framandi í bland. Við finnum mikinn áhuga og erum komnar með stóran hóp fastagesta. Það er mjög mikil breidd í við- skiptavinahópnum. Hingað koma mömmuklúbbar og eldri borgara hópar,“ segir Hildur. „Við erum farnar að hlakka mik- ið til að skapa sumarstemningu hérna fyrir utan hjá okkur, en við erum að bíða eftir útiveitingaleyf- inu. Það verður gott skjól hérna fyrir utan á sumrin og sólsælt.“ Reka einnig gistiheimili Þennan dag var mjög gott glugga- veður og hlýtt og gott að sitja inni á Skökkinni. „Við munum lengja opnunartímann í sumar og fjölga starfsfólki. Opið verður milli klukkan 9 og 18 sunnudaga til miðvikudaga, en til klukkan 22 frá fimmtudögum til laugar- daga.“ Það er heilmikill uppgangur hjá Hildi og Hafdísi. Þær reka líka Gistiheimilið Kirkjuhvol að Merkigerði 7, við hlið Sjúkra- hússins. „Þar erum við með átta herbergi. Það hefur verið stigvax- andi að gera hjá okkur. Við erum með vinsæl tilboð fyrir golfspil- ara og svo er brúðarsvítutilboð- ið að vekja lukku. Þá gerum við herbergið sérstaklega huggu- legt. Það er mikið um að fólk sem er að fara í brúðkaup nýti sér það og lífgi uppá án þess að vera endilega að fara að ganga sjálft í hjónaband. Bókanir hafa gengið vel og töluvert pantað fyrir sum- arið,“ segir Hildur glöð í bragði á þessum fallega sólskinsdegi. eha Áhersla er lögð á gott kaffi og bakkelsi. Ljósm. eha. Sólbjart framundan hjá Skökkinni Hildur Björnsdóttir annar eigandi Skökkinnar. Ljósmynd úr einkasafni. Hægt er að fá skemmtilega skreytt krakkakakó í bollum sem eru sérgerðir af Evu Björk leirlistakonu fyrir Skökkina. Ljósm. eha. Guðjón S. Brjánsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands segir verkfallsaðgerðir muni hafa áhrif innan HVE. Ljósm. eha. Áhrif verkfalla innan HVE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.