Skessuhorn


Skessuhorn - 08.04.2015, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 08.04.2015, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015 Hvaða málsháttur leyndist í páskaegginu þínu? Spurning vikunnar (Spurt í Reykhólasveit og Búðardal) Helga Dóra Hólm Jóhanns- dóttir: Hver er sinnar gæfu smiður. Svanborg Guðbjörnsdóttir: Sá er sæll er sínu ann. Bragi Jónsson: Ég fékk mér ekki páskaegg. Guðbjörg Karlsdóttir: Krummi verður ei hvítur þó hann baði sig. Smári Gilsfjörð Bjarkason: Það er margt vitlausara en að skipta um skoðun. Um 150 manns voru samankom- in í mennta- og menningarhúsinu Hjálmakletti í Borgarnesi sl. mið- vikudagskvöld. Þar var haldinn íbúafundur um rekstur og skipu- lag fræðslumála, og eignir sveitar- félagsins Borgarbyggðar. Starfandi hafa verið tveir vinnuhópar um þessi málefni. Markmiðið með fundinum var að fá fram hugmyndir og sjón- armið frá íbúum til vinnuhópanna og sveitarstjórnar um leiðir til að styrkja fjárhagsstöðu sveitarfélags- ins. Kolfinna Jóhannesdóttir sveit- arstjóri boðaði í upphafi fundar- ins að í haust yrði síðan ráðist í að endurskipuleggja og hagræða í fleiri málaflokkum er heyra undir sveitar- stjórn. Þar verði íbúarnir hafðir með í ráðum. Björn Bjarki Þorsteinsson for- seti sveitarstjórnar setti fundinn og hvatti fundarmenn til að vera ófeimna að koma með hugmyndir. Engar þeirra væru svo galnar að þær mætti ekki nefna, eins og Bjarki orð- aði það. Kolfinna sveitarstjóri fór í inngangi sínum á fundinum yfir þá stöðu sem sveitarfélagið Borgar- byggð er í eftir mikinn hallarekstur á síðasta ári. Einnig er yfirvofandi mikill halli á þessu ári ef ekki verð- ur gripið í taumana. Viðfangsefn- ið væri að standast þau viðmið sem sveitarfélögum væri sett til að sýna rekstrarjafnvægi á þriggja ára tíma- bili. Á það skorti mikið hjá Borgar- byggð. Markmiðið væri að ná fram varanlegri hagræðingu í rekstri sem og að skoða sölu eigna. Kolfinna sagði að ef næðist að spara og hag- ræða um nokkrar prósentur í rekstr- inum skipti það gríðarlega miklu máli. Þannig myndi þriggja pró- senta sparnaður af heildarútgjöld- um gefa rúmar 90 milljónir og fimm prósent um 150 milljónir í sparnað. Í fræðslumálum myndu þrjú prósent samsvara 48 milljónum og fimm prósent um 80 milljónum króna. Fjölbreyttar hugmyndir Fyrrnefndir starfshópar eiga að skila tillögum sínum til sveitarstjórnar um miðjan aprílmánuð. Fyrir fund- inn hafði kvisast út að hugmyndir væru í starfshópunum um að sam- eina starfsstöðvar skóla í sveitarfé- laginu. Það hafði vakið hörð við- brögð hjá íbúum, sér í lagi úr dreif- býlinu. Á íbúafundinum voru ekki skoðanaskipti milli fólks um slík- ar hugmyndir. Fundurinn var enda ekki karpfundur heldur vinnufund- ur þar sem fundarmönnum var skip- að í tíu manna vinnuhópa. Hóparnir skyldu síðan skila sínum hugmynd- um hver í sínu lagi. Fyrst voru gefn- ar 40 mínútur til að ræða fræðslu- og skólamálin og síðan aðrar 40 til að fjalla um sölu eigna sveitarfé- lagins. Borgabyggð á mikið eigna- safn; skólahúsnæði, félagsheimili og íbúðarhúsnæði. Síðan eru það stóru eignirnar; eignarhluti í Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahöfnum. Fjölbreyttar skoðanir komu fram í fundinum bæði í skóla og eignamál- um. Borðstjórar sem stýrðu vinnu- hópunum voru svo beðnir um að segja frá tveimur til þremur mikil- vægustu atriðunum sem hver vinnu- hópur kom sér saman um. Þar komu fram fjölbreyttar hugmyndir og mörgu velt upp. Einn vinnuhópur- inn kom með það álit að einn grunn- skóli ætti að vera í sveitinni og annar í Borgarnesi. Enn aðrir vildu sam- vinnu milli skóladeilda. Hugmynd- ir voru um að sameina grunnskóla og leikskóla og hagræða mætti svo sem með sameiningu mötuneyta og sameiginlegum innkaupum. Varð- andi eignamálin var gegnum gang- andi að hóparnir vildu nýta eign- ir betur eða selja þær. Þannig ætti að selja húsnæði Húsmæðraskólans á Varmalandi og skoða sölu félags- heimilanna þannig að þau yrðu færri í eigu sveitarfélagsins. Sveitar- félaginu bæri að selja eignir sem það hefði minni tekur af en kostnað og skoða beri sölu á eignarhlutunum í OR og Faxaflóahöfnum. Ráðhúsið í Varmaland Meðal hugmynda um betri nýtingu eigna Borgarbyggðar voru með- al annars að fresta hugmyndum um stækkun húsnæðis Grunnskól- ans í Borgarnesi og nýta húseignir sveitarfélagsins fyrir kennslu. Þann- ig mætti til dæmis nýta Safnahúsið með því að færa söfnin í aðrar eign- ir sveitarfélagsins. Framúrstefnu- leg hugmynd kom um að flytja Ráð- húsið í húsnæði Húsmæðraskólans á Varmalandi. Hugmyndir komu fram um að sameina skólaakstur og akstur nemenda í íþrótta- og tóm- stundastarf. Einnig að kannaður yrði sá möguleiki að hætta skóla- akstri í þéttbýli og í staðinn kæmu almenningssamgöngur sem greitt væri fyrir. Í heild má segja að hug- myndir vinnuhópanna á fundin- um hafi verið á fjárhagslegum, sam- félagslegum og faglegum nótum. Hugmyndir hópanna á íbúafund- inum fara nú til umfjöllunar starfs- hópa sveitarfélagsins. Stefnt hefur verið að því að þeir skili sínum til- lögum um miðjan aprílmánuð. þá Fjölmenni á íbúafundi um skóla- og eignamál í Hjálmakletti Um 150 mættu á íbúafundinn og var þeim skipt í tíu manna vinnuhópa. Myndirnar sem hér fylgja sýna hina ýmsu hópa að störfum. Í vetur hefur ýmislegt verið sýslað í endurbótum á reiðvegum á svæði hestamannafélagsins Dreyra. Það nær fyrir Akranes og Hvalfjarð- arsveit. „Nú um og eftir áramót hefur Hvalfjarðarsveit í samstarfi við Dreyra unnið að því að leggja reiðveg vestanvert undir sunn- anverðu Akrafjalli. Þá er búið að loka ákveðnum hring sem nær frá Leyni á Akranesi, inn með Innri Akraneshrepp hinum forna, upp með veginum framhjá félagsheim- ilinu Miðgarði og svo með þjóð- veginum ofan við bæina Kjarans- staði og Ytra-Hólm,“ segir Stefán Ármannson formaður Dreyra. Fleira hefur einnig verið unn- ið. „Vegagerðin er að leggja reið- veg frá Tungu inni að Eyri í Svína- dal. Fyrir þremur árum gerðum við hjá Dreyra svo samning við Akraneskaupstað um ýmsar end- urbætur á reiðleiðum við Akra- nes. Þær hafa verið unnar í áföng- um á tímabilinu og því verkefni er nú að ljúka. Svo var í vetur unn- ið að reiðvegi ofan bæinn Hvíta- nes undir norðanverðu Akrafjalli. Fjármagn til þeirra framkvæmdar kemur úr Reiðvegasjóði Lands- sambands hestamannafélaga,“ seg- ir Stefán. mþh Umbætur í reiðvegamálum við Akranes og í Hvalfjarðarsveit Þessi mynd var tekin á dögunum og sýnir reiðvegagerð ofan við félagsheimilið Miðgarð í Hvalfjarðarsveit sem sést hægra megin. Fjær er svo eyðibýlið Heynes.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.