Skessuhorn


Skessuhorn - 22.07.2015, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 22.07.2015, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 19 Sífellt fleiri áhugaljósmyndarar verða hugfangnir af fuglaljósmynd- un. Leggja þeir jafnvel nótt við dag til að mynda ákveðna fugla vítt og breitt. Í þessum hópi eru Sigurjón Einarsson á Hvanneyri og Finnur Andrésson á Akranesi. Nýverið tók Finnur eftir því að lómur í Akranes- höfn hafði flækt sig í nælongarn og virtist það koma í veg fyrir að hann gæti flogið. Í samráði við Fugla- vernd fékk hann Sigurjón í lið með sér og náðu þeir að fanga fuglinn í höfninni. Reyndar kom þá í ljós að girnið var að mestu farið og fuglinn hinn sprækasti. Meðfylgjandi mynd- ir sýna þessa björgun fuglsins. mm Lómi komið til bjargar Þessa mynd tók Finnur af lóminum fyrir nokkrum dögum. Sigurjón búinn að fanga lóminn.Hugað að fuglinum áður en honum var gefið frelsi að nýju. Reykhóladagar verða haldnir há- tíðlegir dagana 23. - 26. júlí næst- komandi. Dagskráin verður í gróf- um dráttum með hefðbundnu sniði en þó bætast við einhverjar nýjungar. Til dæmis verða í fyrsta sinn haldnir Össuleikar í Króks- fjarðarnesi og hið sívinsæla kassa- bílarallí hefur einnig verið fært þangað, til prufu. „Í ár verða fleiri viðburðir hér og þar um sveitina en verið hefur,“ sagði Jóhanna Ösp Einarsdóttir, tómstundafulltrúi og skipuleggjandi Reykhóladaganna, í samtali við Skessuhorn. „Það er um að gera að reyna að nýta fleiri staði í sveitinni okkar,“ bætir hún við. Í ár verður í fyrsta sinn boð- ið upp á armbönd fyrir þá sem vilja sækja allar kvöldskemmtan- ir hátíðarinnar. Auk þess eru fjór- ar máltíðir innifaldar sem og þátt- tökugjaldið í Reykhóladagahlaup- inu. Aðgangur að viðburðum er að öðru leyti ókeypis. „En að sjálf- sögðu er hægt að borga sig inn á einstaka viðburði ef fólk vill það heldur,“ segir Jóhanna. Dagskráin hefst laust eftir hádegi á fimmtu- deginum með kvikmyndasýningu á Báta- og hlunnindasýningunni. Snemma kvölds verður slegið upp harmonikkuballi þar sem Halldór Þorgils Þórðarson mun þenja nikk- una. Að því loknu verður barsvar og tónleikar með hinni fornfrægu hljómsveit Spöðum. „Þeir komu og héldu tónleika á Reykhóladög- um í fyrra og það sló algjörlega í gegn,“ segir Jóhanna. Föstudagurinn er þéttskipaður viðburðum fyrir alla fjölskylduna. Íbúar bjóða gestum og gangandi í súpu í hádeginu áður en hverfin keppa sín á milli í alls kyns þraut- um í Hvanngarðabrekku. Árleg spurningakeppni verður á sínum stað og um kvöldið verður brenna í Bjarkalundi. Strax að henni lok- inni mun trúbadorinn Halli Reyn- is stíga á svið. Laugardagurinn hefst á Reyk- hóladagahlaupi, þar sem hlaupag- arpar geta valið um nokkrar vega- lengdir. Þreyttir hlauparar geta náð sér niður á jóganámskeiði strax að hlaupi loknu. „Það hefur aldrei verið jóganámskeið áður. Hún Elísabet Norðdahl, sem er einmitt héðan, hafði samband við mig og langaði að taka þátt í dagskránni. Mér fannst þetta því upplagt og um að gera að nýta krafta heima- fólksins,“ segir Jóhanna. Framtak heimamanna verður áfram áber- andi eftir hádegi þegar hin árlega dráttarvélasýning verður haldin. Fjölskyldurnar á Grund og Selja- nesi leggja til vélarnar á sýninguna að stærstum hluta og hafa gert frá upphafi. Við sama tilefni verður gestum þrítugum og eldri gefinn kostur á að spreyta sig í aksturs- leiknibraut og er það Grundarfólk sem heldur utan um keppnina. Að því loknu verður karnival- stemning í Hvanngarðabrekku með hoppuköstulum, þaraþraut- um og fleiru fyrir börnin. Hluti af því verður skottsala, nokkurs kon- ar flóamarkaður þar sem fólk selur úr skottinu á bílnum sínum, „beint frá station-bíl(i),“ segir Jóhanna létt í bragði. Strax í kjölfar þessa hefst grillveisla á sama stað und- ir veislustjórn Jóhannesar Krist- jánssonar eftirhermu. Seinna um kvöldið verða tvö böll með hljóm- sveitinni Sóldögg, það fyrra fyrir alla aldurshópa en það síðara fyr- ir 18 ára og eldri. Dagskráin teygir sig yfir á sunnudag að þessu sinni því boð- að verður til léttmessu í Reykhóla- kirkju. Til að slá botninn í hátíð- ina verða Össuleikarnir haldnir í fyrsta sinn í Króksfjarðarnesi síð- degis og þar fer einnig fram hið ár- lega kassabílarallí. „Gestir Reykhóladaganna mega búast við fjölskylduvænni skemmt- un þar sem boðið verður upp á eitthvað við allra hæfi,“ segir Jó- hanna að lokum. kgk Eitthvað fyrir alla á Reykhóladögum Dráttarvélasýning er fastur liður á Reykhóladögum. Kassabílarallíið er árlegur viðburður og keppendur hafa mislanga reynslu af akstri kassabíla. CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA Allt í gleri ÚTI OG INNI M ynd: Josefine Unterhauser Norðurálsvöllur Allir á völlinn ÍA – Leiknir R Sunnudaginn 26. júlí kl. 19:15 Mætum öll gul og glöð SK ES SU H O R N 2 01 5 Opið: Mánud. – föstud. kl. 9 – 18 Lokað á laugardögum í sumar Grensásvegi 46, 108 Reykjavík - Sími 511 3388 SK ES SU H O R N 2 01 5 Fallegar bækur um útsaum og prjón

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.