Skessuhorn - 22.07.2015, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 201522
„Ég byrjaði hér í maí. Þar áður var
ég í Omnis í níu ár og líkaði það
mjög vel. En það var einhvern veg-
inn tímabært að breyta til. Starf-
ið á HVE er mjög krefjandi og að
mörgu sem þarf að huga. En hér er
frábært fólk á öllum vígstöðvum og
rosalega góður andi í öllu húsinu,“
sagði Fannar Sólbjartsson, kerfis-
stjóri og sjúkraflutningamaður á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi, þegar blaðamaður tók
hann tali í síðustu viku.
Nýlega var bætt við annarri stöðu
kerfisstjóra á HVE og tók Fann-
ar við henni. Nú eru kerfisstjór-
arnir tveir og hafa átta staði á Vest-
urlandi á sínu verksviði. Í starfinu
felst að sögn Fannars meðal ann-
ars bæði notendaþjónusta og utan-
umhald um netkerfi og netþjóna.
„Það er mikið lagt upp úr vörn-
um varðandi öryggi gagna. Hér eru
hýst trúnaðargögn, sjúkraskýrslur
og annað slíkt. Einnig leggjum við
mikið upp úr aðgangsstýringum á
HVE. Allir sem vinna hérna fá kort
þar sem stendur hvar þeir hafa að-
gang og þeir komast þá aðeins á þá
staði,“ segir Fannar og bætir því
við að einnig þjónusti þeir til dæm-
is símkerfi og röntgentæki stofn-
unarinnar. „Röntgentækin eru öll
tengd tölvum svo hægt sé að lesa
af þeim. Það er keyrt á Windows-
stýrikerfinu. Þjónustuaðilar eru á
tækin sem sjá um yfirferð á græjun-
um en við hugsum um allt annað,“
segir Fannar.
Að sögn Fannars hefur verið
mikið gert af því upp á síðkastið að
skipta út vélbúnaði á vegum HVE.
„Við höfum skipt vélum mikið út
upp á síðkastið. Svæðið telur tæp-
lega 300 útstöðvar og auðvitað ekki
skipt um allt í einu. Það er byrjað
á ákveðnum álagspunktum og við
höfum náð að halda öllu í lagi þar
en aðrir sitja kannski aðeins á hak-
anum fyrir vikið. Við reynum að
gera það sem hægt er að gera,“ seg-
ir hann og nefnir í því samhengi að
alltaf sé sami barningurinn í fjár-
málunum hjá stofnunum eins og
HVE. „Mikil vinna hjá stjórnend-
um fer í að berjast fyrir peningum.
Þeir hafa gert það mjög vel. En allt
hérna miðlara megin í kerfinu okk-
ar er alveg tip top. Þannig að það
er passað vel upp á hjartað í starf-
seminni.“
Þroskandi að vera
sjúkraflutningamaður
Fannar hóf á sínum tíma nám í tölv-
unarfræði við Háskólann í Reykja-
vík en hætti þegar hann var hálfn-
aður og fór að vinna fyrir Omnis.
Síðar hóf hann nám og lauk gráðu
í kerfisfræði frá Microsoft tölvuris-
anum. Þegar hann hóf störf sem
kerfisstjóri á HVE gerðist hann
einnig sjúkraflutningamaður, eins
og áður hefur komið fram. „Sjúkra-
flutninganámið er sex vikna, stíft
námskeið sem lýkur með skriflegu
og verklegu prófi. Að því loknu
tekur maður tvær vaktir á neyðar-
bíl í Reykjavík. Eftir það fær mað-
ur umsögn sem er send ásamt prófi
til landlæknis sem gefur út löggild-
ingu á að maður sé sjúkraflutninga-
maður,“ segir Fannar.
„Að stíga þetta skref, að verða
sjúkraflutningamaður, þrosk-
aði mig mjög mikið strax á fyrstu
tveimur vikunum. Það gefur manni
rosalega sýn inn í lífið,“ bætir hann
við og segir starf sitt sem sjúkra-
flutningamaður vera mjög gefandi
og skemmtilegt. En getur það ekki
verið erfitt? „Ég hef enn ekki lent í
einhverju svakalega alvarlegu. Hér
er það flott net af mönnum að ég
veit að það verður tekið á því ef
þess gerist þörf. Það kemur bara
þegar það kemur. Þetta er alveg frá-
bær hópur.“
Aðspurður um hvernig honum
líki að blanda saman starfi sjúkra-
flutningamanns og kerfisstjóra
kveðst hann mjög ánægður með
það og segir blönduna frábæra. „Að
hafa þessa fjölbreytni er einstakt.
Frá átta til fjögur hafa allir sín verk-
efni og maður er alltaf að gera eitt-
hvað, svo það er mjög mikil fjöl-
breytni sem fylgir þessu starfi. Tíu
daga í hverjum mánuði er maður
svo á þrískiptum vöktum á sjúkra-
bílnum,“ segir hann. „Hér er rosa-
lega vel haldið utan um bílana og
passað að þeir séu í góðu standi.
Andinn meðal starfsmanna er alveg
rosalega góður. Ég á eiginlega eng-
in orð til þess að lýsa því, án þess
að ætla að vera eitthvað væminn,“
bætir hann við.
Nýtur hvers dags
Fannar er fjölskyldumaður, giftur
Erlu Ösp Lárusdóttur, bókara hjá
Akraborg. Saman eiga þau fjögur
börn, Sindra Má 18 ára, Aldísi Ísa-
bellu 16 ára, Arnar Frey 8 ára og
Heiðdísi Maríu 5 ára. „Ég var 19
ára þegar við byrjuðum að eignast
börn og við gerðum þetta eiginlega
í tveimur lotum. Það er þannig jafn
langt milli tveggja eldri barnanna
og þeirra tveggja sem eru yngri,“
segir Fannar og brosir. Fjölskyldan
býr á Akranesi og Fannar segir þau
una hag sínum vel í bænum. „Ég er
Skagamaður í húð og hár og það
er frábært að vera hérna, sérstak-
lega ef maður er með börn,“ bæt-
ir hann við. Aðspurður segir hann
þau hjónin þó ekki hyggja á frekari
barneignir. „Nei, fjögur er fínt. Ég
er mjög sáttur með það bara. Við
erum búin að koma okkur ágætlega
fyrir og njótum hvers dags,“ segir
hann að lokum. kgk
Hraundís Guðmundsdóttir ilmol-
íufræðingur er að hefja framleiðslu
á ilmkjarnaolíum. Hún er fyrst hér
á landi til að hefja slíka framleiðslu.
Hún útskrifaðist sem ilmolíufræð-
ingur árið 2008 og hefur síðan átt
þann draum að framleiða olíur
heima hjá sér á Rauðsgili í Borgar-
firði. Áður en hún gat hafið fram-
leiðslu þurfti hún að læra meira um
verkferlið og þar sem ekki er mikil
þekking um framleiðslu ilmkjarna-
olía hér á landi varð hún að leita er-
lendis.
„Draumurinn var að komast í
skóla í Frakklandi en það gekk ekki
upp vegna tungumálaerfiðleika.
Eftir margra mánaða leit á inter-
netinu fann ég lítið fjölskyldufyrir-
tæki í Sedona í Arizona í Bandaríkj-
unum. Þau Max og Clare Licher
reka fyrirtækið og þau tóku vel í að
fá mig í heimsókn svo ég fór í eina
viku í janúar á þessu ári. Gleðin var
svo mikil að finna stað sem ég gæti
fengið að læra verkferlið að ég pant-
aði farmiða út án þess að átta mig á
því hvert ég væri að fara. Þegar ég
áttaði mig á að ég væri á leið inn í
miðja eyðimörk Arizona fór ég að
hafa áhyggjur af því að þetta myndi
ekkert nýtast mér,“ segir Hraun-
dís og hlær við. Hún segir að það
hafi þó komið henni á óvart hversu
margar plöntur vaxa í Arizona. „Ég
tók með mér bókina „Flóru Ís-
lands“ og komst að því að flestar
plönturnar í þeirri bók vaxa einnig í
Arizona, svo ferðin kom mér veru-
lega á óvart,“ bætir hún við.
Þegar heim var komið frá Ari-
zona lét Hraundís smíða fyrir sig
80 lítra eimingartæki sem sett hef-
ur verið upp í gömlum útihúsum á
Rauðsgili. Þar hefur hún verið að
prófa að eima þær plöntur sem hún
hefur verið að rækta sjálf og aðrar
plöntur sem vaxa í næsta umhverfi.
„Síðustu ár hefur vallhumall verið
ræktaður á einum hektara á Rauðs-
gili sem fyrirtækið Sóley Organics
notar í sínar snyrtivörur. Mark-
miðið er að rækta meira af hon-
um til eimingar. Í sumar ætla ég að
gróðursetja og sá fleiri plöntum en
stefnan er að prófa að eima 13-14
mismunandi jurtir og vera búin að
sjá hvað kemur best út fyrir haust-
ið. Í haust ætla ég að vera komin á
fullt í framleiðslu á olíunum,“ segir
Hraundís að lokum.
arg
Fannar við einn af sjúkrabílum stofnunarinnar. Hann lætur vel af starfi
sjúkraflutningamanns. Frábært fólk sé á öllum vígstöðvum á HVE og starfsandinn
afbragðsgóður.
Fannar Sólbjartsson, kerfisstjóri og sjúkraflutningamaður
„Hér er frábært fólk á öllum vígstöðvum
og góður andi í öllu húsinu“
Fannar Sólbjartsson, kerfisstjóri og sjúkraflutningamaður á HVE.
Þarna sést hvernig furuolía situr ofan
á vatninu.
Ný landbúnaðarafurð hér á landi
Hraundís að eima með aðstoð Clare Licher sem kom í heimsókn ásamt Max Licher
í byrjun júlí.
Eimingartækin tilbúin til notkunar.