Skessuhorn - 22.07.2015, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 201526
Gjörir ei neitt af góðverkum - Guð er þreyttur á honum
Vísnahorn
Það er margreynt að þau
gróðabrögð sem við bind-
um mestar vonir við verða
okkur oft til lítils fram-
dráttar þegar á reynir.
Hjálmar Árnason sem kallaður var ,,einhenti“
gaf þessa útskýringu á sinni lífsreynslu um fyr-
irhugaðan ágóða:
Enginn var það ábati.
Eitt sinn varð ég fullur.
Fargaði þá folaldi
fyrir rosabullur.
Bjarni frá Gröf sá samt bjartari hliðar í tilver-
unni enda alltaf hægt að sjá þær ef menn bara
vilja:
Ég er ekki alveg snauður
allt þó bresti mig
því fátæktin er einnig auður
útaf fyrir sig.
Guðmundur Þorláksson orti við Bensa Þór
brennivínskaupmann í Reykjavík og má kalla
orð að sönnu:
Vertu góður vinur minn
við þá menn sem hrasa
því að hinsti hjúpur þinn
hefur enga vasa.
Ekki veit ég hvernig færi fyrir okkur karlmönn-
unum ef við hefðum ekki blessað kvenfólkið að
halla okkur að og styðjast við á allan hátt. Alla
vega myndi mannkynið deyja út á ekkert óskap-
lega löngum tíma án þeirra. Að vísu er stundum
talað um eina og eina svona í greiðviknara lagi
og um eina slíka kvað Rósberg Snædal:
Meyjan þiggur hopp og hí
holds á tryggum grunni
en minna liggur efni í
yfirbyggingunni.
Nú veit ég ekkert hvort viðkomandi kona var
ef til vill sú hin sama sem Stefán frá Móskóg-
um kvað um:
Af því hún var gleðigjörn,
girnileg og fögur
eignaðist hún átta börn
og óteljandi sögur.
Væntanlega hefur þá sú hin sama haft eitthvert
gagn af hækkun fjölskyldubóta þeirri er Rós-
berg kvað um:
Þó að fatist feðrum vörn,
fúni gat á pramma
úðar mat í okkar börn
íhalds krata mamma
Piltur nokkur var eitthvað var í þingum við
stúlku sem Jóna hét. Sú átti von á arfi, eitthvað
um hundrað krónum en pilturinn skuldugur
nokkuð og innheimtumenn aðgangsharðir. Um
þær aðstæður kvað Magnús Finnsson í orðastað
piltsins:
Ekki læt ég úrið falt
eða hana Skjónu.
Ég skal borga öllum allt
með arfinum hennar Jónu.
Margir höfðu að minnsta kosti og hafa vonandi
enn gaman af góðum vísum. Sumir hafa líka
gaman af lélegum vísum en hver á svosem að
dæma um það hvort vísa er léleg eða góð. „Sá
yðar sem syndlaus er“ o.s.fv. Björn S. Blöndal
kom á bæ í nágrenni sínu og heilsaði með þess-
um orðum:
Þráir eyrað óðarklið,
orðinn meyr af vöku.
Karl sem eirir kvæðin við
kom að heyra stöku.
Annað sinn kvað hann um stökuna:
Sína galla er sýndi flest
sárt var kalli að vaka.
Mig hefur allan yngt og hresst
ómþýð falleg staka.
Það er svosem allur gangur á vinsældum manna
og stundum reynast þær ekki með sama hætti
og menn höfðu vonað. Birgir Hartmannsson
orti þessa sjálfslýsingu:
Lífsins svöð ég valtur veð,
völd og stöður sjaldan spyr um.
Rómi glöðum keskni kveð,
kem úr tröð að luktum dyrum.
Andrés Grímúlfsson orti aðra mannlýsingu og
veit ég ekki hvort hún er nokkuð skárri:
Hann er eitt af ómennum.
Er það leitt í frásögnum.
Gjörir ei neitt af góðverkum,
Guð er þreyttur á honum.
Í Karlagrobbi sínu segir Valdemar Benónýsson
og að sjálfsögðu dregur hann ekkert úr kostum
sínum:
Bernskufarfann enn ég á,
orðin þarf ei fleiri.
Líkur arfa Ólafs Pá
en þó starfameiri.
Lengi hefur það nú verið svo að mönnum þyk-
ir hólið gott og ekki amalegt að líkjast Kjartani
Ólafssyni sjálfum. Samt eldumst við öll og yfir-
gefum þetta jarðlíf að lokum hvort sem okkur
eða öðrum líkar það betur eða verr. Blessaðir
prestarnir eru manna fjölfróðastir um hvað tek-
ur við hinum megin og séra Einar Friðgeirsson
var að undirbúa einn vin sinn með þessari vísu:
Sankti Pétur sagði mér
að sjálfsagt inn þér mundi hleypt,
en dropann yrði að draga af þér
og daður væri ekki leyft.
Svo er spurningin hvort tekur því að vera að
klöngrast þetta þrönga veginn uppá þessi kjör?
Fyrir margt löngu voru tveir vinir að ræða ei-
lífðarmálin og segir þá annar: ,,Fínt að vera í
helvíti maður. Fullt af kellingum og brenni-
víni.“ Hinn leit á vin sinn fullur aðdáunar og
sagði: ,,Hefurðu komið þarna?“ Á einhverri
veraldlegri samkomu hérna megin grafar fyrir
margt löngu var kveðið:
Drengir þreyta langa leit,
láta skeytin hvína
meðan sveitameyjan feit
málar beitu sína.
Þá er nú bara að vita hvað hefur veiðst á þá góðu
beitu en aftur að öldrunarmálunum. Í Bessa-
tungu í Saurbæ bjó Hólmgöngu Bersi á sinni
tíð. Á sínum efstu árum lá hann sjúkur í fleti
sínu en fóstursonur hans í vöggu en annað fólk
var að heyverkum. Datt þá vaggan og drengur-
inn á gólfið en Bersi of máttfarinn til að hjálpa.
Varð honum þá helst að starfi að setja fram
þessar braglínur um framgang lífsins:
Liggjum báðir
í lamasessi
Halldórr ok ek,
höfum engi þrek;
veldr elli mér
en æska þér
þess batnar þér
en þeygi mér.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að
leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/
in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan
15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilis-
fang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa
aðgang að tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56,
300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síð-
asta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum inn-
sendum lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá
Skessuhorni.
55 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Listafólk“. Vinningshafi er: Óla-
fur B Jóhannsson, Sóltúni 17, 800 Selfossi.
mm
Eyðslu-
fé
Gamalt
spil
Hylur
Stjaka
Alda
Mun
Þegar
Skríkja
Ó-
freskjan
Unnur
Súrefni
Bagi
Leir
Nótan
Tví-
hljóði
Kona
Rusl
Ekki
Starf
Utan
Áma
Hæð
Duft
Sniðug
Slæm
Bunga
Samhlj.
6
Smábýli
Heiðar-
legur
8 3 Röst
Storm
Ýtir
Ódrukk-
inn
Suddi
Óttast
Býsn
Nafn-
laus
17
Bindi
Erting
Hrá
15
Duft
Arma
Gljáhúð
12 Átt
Vangi
Á fæti
Gap
Ást
14
Rösk
Fugl
Spak-
mæli
16 Krókur
Skip-
herra
Frýsa
Ólíkir
10 Ókunn
Hrekkir
Vissa
Op
Slæmur
Rasa
5
Ræðan
Reykur
Kl.. 3
1 Spyrja
Sund
Brellur
Rjátl
Þruma
Svik
Lokan
Samhlj.
Skelin
Mælir
Drolla
Hlut-
verk
Fráleit
Fæddi
Sáldra
4
Slabb
Viljug
Kusk
Verma
9
Tónn
Rófa
Ennþá
Makk
Kopar
Ruggar
Þegar
7 Hljóp
Afmá
Sk.st.
Rásin
Krydd-
jurt
Vein
13
Korn
Ókunn
Tvenna
11 2
Æstir
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17
Undir lok júnímánaðar var stofn-
að í Reykhólasveit fyrirtækið EB
bókhald sf. Stofnandi þess er Erla
Björk Jónsdóttir viðskiptafræð-
ingur í Ásaheimum í Króksfjarð-
arnesi. „Þetta er nýtt fyrirtæki á
gömlum grunni,“ sagði Erla í sam-
tali við Skessuhorn, en hún hefur
um nokkurra ára skeið sinnt bók-
haldsþjónustu meðfram annarri
vinnu án þess að hafa haft um það
sérstakt fyrirtæki. „Ég hef eigin-
lega alltaf unnið við bókhald síð-
an ég byrjaði að vinna skrifstofu-
störf,“ segir hún.
Erla útskrifaðist sem viðskipta-
fræðingur frá Háskólanum á Bif-
röst árið 2007 og hefur síðan þá
meðal annars starfað sem sölu-
og launafulltrúi Þörungaverk-
smiðjunnar og sem skrifstofustjóri
og aðalbókari Reykhólahrepps.
„Undanfarin ár hef ég mest verið
að bóka fyrir bændur og auk þess
nokkur einkahlutafélög. Auk þess
er ég með alls konar félagasamtök,
björgunarsveitir, kirkjur og auð-
vitað einstaklinga í viðskiptum,“
bætir hún við.
Aðspurð um ástæður þess að nú
hafi hún ákveðið að stofna fyr-
irtæki um þjónustuna segir hún
þær einfaldlega vera aukin um-
svif, þrátt fyrir að bókhaldsþjón-
ustan verði ekki alveg fullt stöðu-
gildi svona fyrst um sinn. Það sé
þó markmiðið að gera það að fullu
starfi í náinni framtíð. „Ég er að
vinna að því þessa dagana að aug-
lýsa mína þjónustu og mitt fyrir-
tæki. Það er auðvitað stefnan að
geta starfað við þetta eingöngu,“
segir Erla að lokum.
kgk
Splunkunýtt fyrirtæki
í Reykhólasveit
Erla Björk Jónsdóttir viðskipta-
fræðingur.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is